Fréttamál

Jarðhræringar við Grindavík

Fréttir

Styðja stjórn­ina í að taka utan um stöðu Grind­vík­inga

Frá flokk­unum í stjórn­ar­and­stöðu á þingi ber­ast þau svör við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar að þeir hygg­ist styðja stjórn­völd í aðgerðum til að taka utan um stöðu íbúa í Grinda­vík­urbæ. Píratar telja til­efni til að taka upp frum­varp sem þing­maður flokks­ins kom fram með á síð­asta þing­vetri og felur í sér afnám sjálfs­á­byrgðar hjá þeim sem fá tjón bætt frá Nátt­úru­ham­fara­trygg­ingu Íslands.
Myndir

„Allt sem lifir er komið í skjól“

Fjöl­skylda sem flúði Grinda­vík hefst nú við á ætt­ar­óð­ali við Sogið. Þau eru þar tíu saman, fjórir ætt­liðir en einnig hundar og hænur. ,,Allt sem lifir er komið í skjól,” segir Ísak Þór Ragn­ars­son. Valdís Ósk Sig­ríð­ar­dóttir, unnusta hans, segir mik­il­vægt að tek­ist hafi að bjarga mynda­albú­mum og kassa sem í voru fæð­ing­ar­skýrslur barn­anna og fyrstu fötin þeirra og skór.
Fréttir

Kallar boð lána­stofn­ana til Grind­vík­inga „sam­fé­lags­lega sið­firrt“

Sigríður María Eyþórs­dóttir, íbúi í Grinda­vík, gagn­rýnir lána­stofn­anir harð­lega fyrir að bjóða Grind­vík­ingum upp á fryst­ingu lána, sem felur í sér að vextir og verð­bætur falla á höf­uð­stól. „Þetta eru ekki kaldar kveðjur til okkar sem horfum inn í óviss­una, þetta er sví­virða,“ skrifar Sigríður í blaða­grein um upp­lifun sína af við­brögðum banka við krísu Grind­vík­inga.
Fréttir

Grinda­vík rýmd af örygg­is­á­stæðum – Brenni­steins­dí­oxíð mælist

Grinda­vík var rýmd eftir að nýir gasmælar Veð­ur­stofu Íslands sýndu að brenni­steins­dí­oxíð er að koma upp úr jörðu nær Grinda­vík. Rýmingin er vegna örygg­is­á­stæðna – ekki neyð­ar­á­stæðna, að sögn almanna­varna. Lög­reglu­stjór­inn á Suð­ur­nesjum segir boð um rým­ingu hafa verið aft­ur­kölluð en þá hafi verið of seint að hætta við.

Mest lesið undanfarið ár