Að breyta svínakótelettu í nautasteik

Á und­an­förnum árum hafa margoft, víða um heim, komið upp mál sem tengj­ast svikum og prettum með mat­væli. Starf­semi af því tagi teng­ist nær und­an­tekn­ing­ar­laust þeirri áráttu, sem fylgt hefur mann­kyn­inu frá upp­hafi, að fá meira fyrir minna. Græða.

Fólk í Taívan varð mun meðvitaðra um innihald matvara eftir að mikið matarhneyksli skók landið 2014 þegar einn stærsti matarolíuframleiðandinn var afhjúpaður fyrir að hafa endurnýtt notaða matarolíu og selt hana sem nýja.
Fólk í Taívan varð mun með­vit­aðra um inni­hald mat­vara eftir að mikið mat­ar­hneyksli skók landið 2014 þegar einn stærsti mat­ar­ol­íu­fram­leið­and­inn var afhjúp­aður fyrir að hafa end­ur­nýtt not­aða mat­ar­olíu og selt hana sem nýja. Mynd: EPA

Kjarn­inn end­­­­­­­ur­birtir nú valda pistla Borg­þórs Arn­gríms­­­­­­­sonar sem sam­hliða eru gefnir út sem hlað­varps­þætt­­­­­­­ir. Frétta­­­­­­­skýr­ingar Borg­þórs njóta mik­illa vin­­­­­­­sælda og sú sem er end­­­­­­­ur­birt hér að neðan var upp­­­­­­­haf­­­­­­­lega birt þann 3. apríl 2016.

Þegar pistla­skrif­ari var að alast upp var töfra­mað­ur­inn og búktal­ar­inn Baldur Georgs, ásamt dúkkunni Konna, vin­sæll skemmti­kraftur. Baldur töfraði kan­ínur úr hatti og sýndi ýmsa galdra svo áhorf­endur stóðu á önd­inni. Aldrei hefði þó hvarflað að Baldri (né Konna) að breyta svína­kótel­ettu í nauta­steik en það vefst hins­vegar ekki fyrir víetnömskum mat­vöru­svindl­urum. Nokkurra mán­aða aðgerð Alþjóða­lög­regl­unnar Interpol og Evr­ópu­lög­regl­unnar Europol gegn svindli með mat­væli lauk fyrir nokkrum dögum. 

Á und­an­förnum árum hafa margoft, víða um heim, komið upp mál sem tengj­ast svikum og prettum með mat­væli. Starf­semi af því tagi teng­ist nær und­an­tekn­ing­ar­laust þeirri áráttu, sem fylgt hefur mann­kyn­inu frá upp­hafi, að fá meira fyrir minna. Græða.

Síð­ast­lið­inn ára­tug hafa flest slík mál, í Evrópu, með einum eða öðrum hætti tengst nautum og hrossum. Í flestum, eða öllum, til­vikum hefur verið um það að ræða að hross hefur breyst í naut, gam­all drátt­ar­klár orð­inn að úrvals tudda. Iðulega hefur þetta gerst á leið­inni gegnum hakka­vélar kjöt­vinnslu­fyr­ir­tækja. Skýr­ingin á því að hross verður oft­ast að nauti en ekki öfugt liggur í því að nauta­kjöt er eft­ir­sótt vara, and­stætt því sem gildir um hrossa­kjöt. Þaraf leið­andi er verðið á nauta­kjöt­inu hærra, auk þess sem erfitt getur reynst að selja hrossa­kjöt því að í flestum Evr­ópu­löndum er ekki hefð fyrir neyslu þess.

Findus málið

Í febr­úar 2013 var greint frá því í fjöl­miðlum víða um lönd að mat­væla­fram­leið­and­inn Findus hefði orðið upp­vís að því að nota hrossa­kjöt í ýmsa til­búna rétti og ham­borg­ara, í stað nauta­kjöts eins og stóð á umbúð­unum. Margt athygl­is­vert kom í ljós við rann­sókn þessa máls og leiðir hrossa­kjöts­ins á leið­inni í neyt­enda­pakkn­ingar Findus bæði langar og flóknar. Milli­lið­irnir reynd­ust margir og mjög flókið að kom­ast að upp­runa kjöts­ins, hvaðan gat allt þetta hrossa­kjöt komið, var spurt. Grunur beind­ist að Rúmeníu en nokkrum árum áður höfðu tekið þar gildi lög sem bönn­uðu hesta­kerrur á vegum. Á árunum eftir að bannið tók gildi er talið að allt að sex hund­ruð þús­und kerru­klárum hafi verið slátrað og miklum fjölda asna sem höfðu verið not­aðir til dráttar. Rúmenar harð­neit­uðu öllum slíkum ásök­unum og aldrei tókst að kom­ast til botns í mál­inu. Hrossa­kjötsskandall­inn (eins fjöl­miðlar komust að orði) vakti mikla athygli og olli Findus fyr­ir­tæk­inu, sem er sænskt og með fram­leiðslu í mörgum löndum, miklum skaða. Þótt Findus yrði að eins konar sam­nefn­ara fyrir þetta umfangs­mikla mál tengd­ust því mörg önnur fyr­ir­tæki, í mörgum löndum. Þetta mál hefur iðu­lega verið kallað stærsta mat­væla­hneyksli Evrópu.

26 handteknir

Árið 2015, tveimur árum eftir að Findus málið komst upp voru 26 manns hand­teknir sem taldir voru tengj­ast umfangs­miklu smygli og svindli með hrossa­kjöt. Evrópska rétt­ar­að­stoðin (Eurojust) og franska lög­reglan skipu­lögðu aðgerð­irnar en hand­tök­urnar fóru fram í sjö löndum. Í til­kynn­ingu Eurojust kom fram að Belgi væri höf­uð­paur máls­ins.

Hér hafa aðeins verið nefnd tvö mál sem tengj­ast svindli með mat­væli. Ótal mál af svip­uðu tagi, ekki þó jafn umfangs­mikil, væri hægt að nefna.

Stóra rassían

Fyrir nokkrum dögum sendu Alþjóða­lög­reglan Interpol og Evr­ópu­lög­reglan Europol frá sér frétta­til­kynn­ingu. Tilefnið var að lokið var nokk­urra mán­aða aðgerðum gegn ólög­legum mat­væla­iðn­aði. Aðgerðir lög­regl­unnar, sem lög­regla í 57 löndum tók þátt í, áttu sér langan adrag­anda, und­ir­bún­ing­ur­inn hafði staðið yfir í nokkur ár. Þótt margir hafi talið sig vita að víða væri maðkur í mat­væla­mys­unni hefur lík­lega fæsta grunað að svind­lið væri jafn umfangs­mikið og teygði anga sína jafn víða og rann­sóknin leiddi í ljós. Hvatinn í öllum til­vikum gróða­vonin og grun­laus almenn­ingur getur fátt gert annað en treysta á eft­ir­lit lög­reglu og eft­ir­lits­stofn­ana. Þessi ólög­lega starf­semi veltir árlega þús­undum millj­arða og hækk­andi mat­ar­verð víða um heim kyndir enn frekar undir gróða­von­ina.

Hug­mynda­flugi þeirra sem þessa iðju stunda virð­ast lítil tak­mörk sett og margt af því sem nefnt er í til­kynn­ing­unni með hreinum ólík­indum.

Á Ítalíu lagði lög­regla hald á 85 tonn af ólífum sem höfðu verið bað­aðar í kop­ar­s­úlfati til að fá á þær sterk­ari grænan lit.

Í Belgíu gerði lög­reglan upp­tækt apa­kjöt sem hafði verið flutt til lands­ins, slíkt er ólög­legt og veiðar á öpum víð­ast hvar bann­aðar. Belgíska og franska lög­reglan lögðu líka hald á engi­sprettur og lirfur, hvort tveggja ólög­legt og ekki vitað hver ætl­unin með inn­flutn­ingnum var.

Í Bolívíu fann lög­reglan tug­þús­undir sard­ínu­dósa og jafn­framt lím­miða með nafni þekkts nið­ur­suðu­fyr­ir­tækis í Perú. Eigandi sard­ínulagers­ins hafði vandað til prent­un­ar­innar á mið­unum því þeir voru nákvæm­lega eins og fyr­ir­myndin.

Gríska lög­reglan fann þrjú ólög­leg vín­gerð­ar­hús, þarsem fram­leiðsla var í fullum gangi. Þar fund­ust 7400 flöskur með merki­miðum þekktra fram­leið­enda og sömu­leiðis tappar og merki­miðar í tug­þús­unda­tali, ásamt tómum flöskum undir fram­leiðsl­una.

Í Indónesíu lagði lög­reglan hald á margs­konar mat­vörur, bæði eft­ir­lík­ingar þekktra vöru­merkja og ýmis­konar ólög­legan varn­ing. Sumt af þeim varn­ingi hættu­legt heilsu manna, þar á meðal 70 kíló af kjúklinga­görnum, sem geymdar voru í forma­líni.

Í Bret­landi fann lög­regla 10 þús­und lítra af sterku ólög­lega fram­leiddu víni sem blandað hafði verið með enn ódýr­ari vökva. Á vef breska útvarps­ins BBC segir að alls hafi í þess­ari aðgerð víða um lönd fund­ist ólög­legt vín sem dugi til að fylla 10 þús­und bað­ker. Ekki algeng mæli­ein­ing enda fremur óná­kvæm!

Í Ung­verja­landi, Litháen, Rúmeníu og á Ítalíu fann lög­reglan tugi tonna af súkkulaði og kexi, pakkað í nákvæmar eft­ir­lík­ingar þekktra fram­leið­enda. Á Ítalíu fannst einnig, og ekki í fyrsta sinn, ólífu­olía á flöskum merktum þekktum fram­leið­endum. Fyrir þremur árum kom upp hlið­stætt mál, lög­regla taldi þá að allt að 80 pró­sent af því sem selt væri sem ólífu­olía í hæsta gæða­flokki væri ódýrt sull.

Þótt svindl­arar um allan heim séu hug­vits­samir slá lík­lega fáir þeim tælensku við. Þar greip lög­reglan nokkra menn sem voru að dunda sér við að breyta svína­kótel­ettum í nauta­steikur. Kótel­ett­unum var dýft í pott með nauta­blóði sem natr­íumblöndu hafði verið bætt í. Eftir ferð­ina í pott­inn voru kótel­ett­urnar blóð­rauðar en líkt­ust kannski ekki, af myndum að dæma, að öðru leyti nauta­kjöti. Af því hvernig þessar lit­breyttu svína­kótel­ettur smökk­uð­ust fer ekki sögum. Tælenska lög­reglan gerði auk þess upp­tæka tugi tonna af nauta­kjöti sem talið var óhæft til mann­eldis, en var eigi að síður á leið í versl­anir.

Í Danmörku fann Mat­væla­eft­ir­litið 81 tonn af sírópi sem eftir „lag­fær­ingar” er selt sem hun­ang. Eitt stærsta fyr­ir­tækið á þessu sviði í Danmörku er nú til sér­stakrar skoð­unar þar sem ætl­unin er að kom­ast að hvort ”breyt­ingin úr sírópi í hun­ang” hefur farið fram í Danmörku eða Kína en þaðan kemur stór hluti þess hun­angs sem selt er í dönskum versl­unum.

Hér hefur ein­ungis fátt eitt verið nefnt af því sem fannst í rassíu Interpol og Europol. Einn af yfir­mönnum Europol sagði í við­tali að þótt mörgum blöskr­aði eflaust það mikla umfang sem getið væri um í til­kynn­ingu Interpol og Europol væri það því miður aðeins topp­ur­inn á ísjak­anum.

Á allra síð­ustu árum hafa stjórn­völd víða um heim aukið mjög eft­ir­lit með öllu því sem við kemur mat­væla­iðn­að­inum. Það gildir bæði um fram­leiðslu og sölu, merk­ingar og geymslu­þol svo eitt­hvað sé nefnt. Evr­ópu­sam­bandið hefur lagt mikla áherslu á þessi mál, stundum svo mikla að ýmsir hafa kallað ofur­eft­ir­lit. Miðað við nið­ur­stöð­urnar úr rassíu Alþjóða­lög­regl­unnar og Evr­ópu­lög­regl­unnar er ekki van­þörf á slíku eft­ir­liti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

matvælamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár