Margir jókerar í forsetakaplinum

Þingmenn, rit­höf­undur, fyrr­ver­andi verk­efna­stjóri í Stjórn­ar­ráð­inu og yfir­maður hjá einum stærsta fjöl­miðli lands­ins halda öllu opnu um for­seta­fram­boð. Þing­for­seti og Stuð­maður blása á sögu­sagnir. Kosn­inga­bar­átta almenn­ings er hafin á sam­fé­lags­miðlum.

For­seta­tíðin er að ganga í garð. Eftir að Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, til­kynnti á nýj­árs­dag að hann ætli ekki að bjóða sig fram í fjögur ár til við­bótar hefur tölu­verður fjöldi nýrra fram­bjóð­enda sprottið fram á sjón­ar­sviðið.

Það er samt hálft ár í kosn­ingar. Þær fara fram 25. júní næst­kom­andi, eins og lög gera ráð fyrir. Nú þegar hafa nokkrir til­kynnt um fram­boð: Þor­grímur Þrá­ins­son rit­höf­undur, Elísabet Jök­uls­dóttir rit­höf­undur, Ástþór Magn­ús­son, for­svars­maður Friðar 2000, Hildur Þórð­ar­dóttir þjóð­fræð­ingur, Ari Jós­eps­son skemmti­kraftur og Sturla Jónsson bíl­stjóri.

Vilja skapa spennu í kring um sig

Jón Gnarr, dag­skrár­stjóri 365 og fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri, sagði í sam­tali við Kjarnann í vik­unni, að hann ætli að til­kynna hvort hann ætli í fram­boð í einum af miðlum 365 á föstu­dag­inn næst­kom­andi. Myllu­merkið #besta­staðir er komið í umferð á Twitter.

Össur Skarp­héð­ins­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, hefur verið orð­aður við fram­boð, en hann hefur ekki viljað svara hvort hann sé að íhuga það.

Þá gekk sá orðrómur inni á Alþingi að Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis, hafi mögu­lega áhuga á því að verða ann­ars konar for­seti, það er for­seti Íslands. Einar þver­tekur þó fyrir það í sam­tali við Kjarnann. Það sama gerir Jakob Frímann Magn­ús­son, Stuð­maður og Mið­borg­ar­stjóri, sem hefur einnig verið orð­aður við emb­ættið.

Mikið hefur verið rætt um þau Katrínu Jak­obs­dóttur, for­mann Vinstri grænna, og Andra Snæ Magnason rit­höf­und í tengslum við emb­ættið. Katrín er einn vin­sæl­asti stjórn­mála­maður lands­ins um þessar mundir og Andri Snær hefur látið mikið til sín taka í þjóð­mála­um­ræðu, einkum á sviði umhverf­is­mála. Hvorugt vill úti­loka fram­boð.

Stefán Jón Hafstein seg­ist í sam­tali við Kjarnann enn vera að hugsa málið. Hann vill sjá hvort hug­myndir hans um emb­ættið fái und­ir­tektir áður en hann ákveður sig.

Þá hafa þau Hrannar Pét­urs­son, fyrr­ver­andi verk­efna­stjóri í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu og upp­lýs­inga­full­trúi Vodafone, og Halla Tóm­as­dóttir, athafna­kona og einn stofn­enda Auðar Capital, bæði lýst því yfir að þau séu sterk­lega að íhuga að bjóða sig fram til for­seta. Hrannar vildi ekki stað­festa fram­boð í sam­tali við Kjarnann, en býst við því að hann taki ákvörðun bráð­lega. Halla Tóm­as­dóttir hefur ekki látið ná í sig.

Kosningabarátta þeirra óviljugu

Sam­fé­lags­miðl­arnir hafa heldur ekki látið sitt eftir liggja. Samkvæmt laus­legri sam­an­tekt Kjarnans er að finna að minnsta kosti 20 Facebook-síður þar sem skorað er á ýmsa þjóð­þekkta, og nokkra minna þekkta, ein­stak­linga til að bjóða sig fram á Bessa­staði 2016.

Stuðn­ings­síða Jóns Gnarr er með lang­flesta fylgj­endur, yfir 6.120, en þetta er líka lang­elsta fram­boðs­síðan á Facebook og hefur verið uppi síðan í maí 2014, í rúmt eitt og hálft ár. Áskor­un­ar­síða helguð Ólafi Ragnari, Hvetjum Ólaf Ragnar til að gefa kost á sér til for­seta­kjörs 2016, er með næst-flesta fylgj­endur, tæpa 2.000.
 Fram­boðs­síða Höllu Tóm­as­dóttur þar sem skorað er á hana, er í þriðja sæti, með rúm 1.350 like. Leik­konan Halldóra Geir­harðs­dóttir er líka með fjöl­menna stuðn­ings­síðu, en rúm­lega 1.150 hafa líkað við hana.

Meðal ann­arra fram­boðs­síðna á Facebook, mis­fjöl­mennar þó, má nefna stuðn­ings­síður Davíðs Odds­sonar, rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra (tæp 1.000 like), sem ber tit­il­inn Kónginn á Bessa­staði, og Jóns Þórs Ólafs­sonar, fyrr­ver­andi þing­manns Pírata (tæp 480 like), Guðrúnar Haf­steins­dóttur, fram­kvæmda­stjóra Kjörís (um 400 like), Þóru Arn­órs­dóttur, rist­jóra Kast­ljóss­ins og fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­anda (tæpir 340 fylgj­endur), Ómars Ragn­ars­sonar fjöl­miðla­manns (um 180 like), Páls Óskars Hjálmtýs­sonar tón­list­ar­manns (um 170 like), Ómars Valdi­mars­sonar, fyrr­ver­andi blaða­manns, (um 110 like), en hann var að íhuga fram­boð síð­asta sumar, Mar­grétar Frið­riks­dóttur, frum­kvöðla­fræð­ings og stuðn­ings­konu PEGIDA á Íslandi, (um 105 fylgj­endur), Hafliða Breið­fjörð, fram­kvæmda­stjóra Fótbolta.net, (um 60 fylgj­endur) og Eddu Andr­és­dóttur, fjöl­miðla­konu (um 30 fylgj­endur).

Ég drekki mér í mógröf

Fleiri síður en form­lega stuðn­ings­síðan hafa sprottið upp í kring um Ólaf Ragnar, mis­vin­sam­legar. Fylgj­endur þeirra fjöl­menn­ustu, Ólafur Ragnar Grímsson - for­seti til 2016 (1.150 like) og Við viljum að Ólafur Ragnar verði áfram for­seti (um 800 með­limir) vilja að hann láti af emb­ætti, þó að tit­ill þeirra síð­ar­nefndu gefi annað til kynna. Lýsingin á þeirri síðu er: „Hann á þennan hóp ekki skilið”.

Mótvægið við þann hóp er vænt­an­lega stuðn­ings­hóp­ur­inn Við viljum að Ólafur Ragnar verði áfram for­seti (um 240 með­limir) með slag­orðið „Hann á þennan hóp skilið”. Svo er einn sem ber hinn lát­lausa titil „Ég drekki mér í mógröf ef Ólafur Ragnar verður aftur for­seti" (um 120 með­limir). Svo er umræðu­síðan Hlutverk for­seta (430 með­limir) þar sem almennar hug­leið­ingar um emb­ættið eru viðr­aðar á mis­mál­efna­legan hátt.

Og nú er bara að halla sér aftur og njóta, eða hundsa, öldu­gang­inn sem á eftir að skella á íslensku þjóð­inni næsta hálfa árið eða svo. Vigdís Finn­boga­dóttir til­kynnti sitt fram­boð í byrjun febr­úar 1980 og síð­asta kosn­inga­bar­átta Ólafs Ragnars fór ekki á fullt síð­ast fyrr en í mars. Nægur er tím­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár