Jón Gnarr tilkynnir á föstudag hvort hann ætli í forsetaframboð

Jón Gnarr, dag­skrár­stjóri 365, ætlar að til­kynna á föstu­dag í einum af miðlum 365 hvort hann ætli að gefa kost á sér í fram­boð til for­seta Íslands. Hann seg­ist ætla að liggja undir feldi þangað til.

Jón Gnarr, dag­skrár­stjóri 365 og fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri, ætlar að til­kynna á föstu­dag­inn næst­kom­andi hvort hann ætli að bjóða sig fram til for­seta Íslands í næstu for­seta­kosn­ingum.

„Ég ætla bara að liggja undir feldi þangað til," segir Jón í sam­tali við Kjarnann.

Aðspurður hvort hann ætli að til­kynna málið í einum af miðlum 365 svarar hann því ját­andi. Það verður þá vænt­an­lega í föstu­dags­blaði Frétta­blaðs­ins, á Bylgj­unni, X-inu, FM957, Vísi.is eða Stöð 2.

Jón sagði í Jólavöku RÚV, 20. des­em­ber síð­ast­lið­inn, að honum þætti verk­efnið spenn­andi og hann „væri alveg til í að vera for­seti." Margir hafi rætt um það við hann, en hann væri þó ekki alveg viss hvort hann væri til­bú­inn í það á þessum tíma­punkti.

Í mars síð­ast­liðnum skrif­aði Jón pistil í Frétta­blaðið þar sem hann sagð­ist hins vegar ekki ætla að bjóða sig fram til for­seta. Þá hafði könnun sem blaðið birti nokkrum mán­uðum áður sýnt að 47 pró­sent aðspurðra vildu Jón í emb­ættið. Í pistl­inum sagð­ist Jóni óa við þeirri til­hugsun að verða hluti af þeim „ömur­lega og hall­æris­lega kúltúr" sem íslensk stjórn­mála­menn­ing sé. Hann sagð­ist þá ekki ætla að gera fjöl­skyld­unni sinni það að „standa aftur and­spænis freka kall­inum", sem hafi til­einkað sér til­ætl­un­ar­semi, frekju og dóna­skap í dag­legum sam­skiptum.

"Ég hef því tekið þá ákvörðun að ég mun ekki bjóða mig fram til for­seta Íslands í þetta skiptið. Kannski ein­hvern tíma seinna," sagði Jón í grein sinni fyrir tæpu ári.

Nú hefur hann nýlokið við að skrifa 10 þátta sjón­varps­s­eríu, Borg­ar­stjór­ann, sem er að fara í fram­leiðslu á næst­unni hvar hann leikur tit­il­hlut­verkið. Í stöðu­færslu sem hann skrif­aði á Facebook í síð­ustu viku fram kom meðal ann­ars að hann sé líka að skoða mögu­leika á því að gera sér­stakan jóla- og ára­móta­þætti af Næt­ur­vakt­inni.

For­seta­kosn­ing­arnar fara fram 25. júní næst­kom­andi. Nú þegar hafa nokkrir til­kynnt um fram­boð: Þor­grímur Þrá­ins­son rit­höf­undur, Elísabet Jök­uls­dóttir rit­höf­undur, Ástþór Magn­ús­son, for­svars­maður Friðar 2000, Hildur Þórð­ar­dóttir þjóð­fræð­ingur, Ari Jós­eps­son skemmti­kraftur og Sturla Jónsson bíl­stjóri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár