Jón Gnarr ætlar ekki að verða forseti, vill ekki að standa andspænis freka kallinum

Jón Gnarr, fyrrum borg­ar­stjóri Reykja­víkur, ætlar ekki að bjóða sig fram til for­seta Íslands. Þetta segir hann í pistli í Frétta­blað­inu í dag. Könnun sem Frétta­blaðið birti í byrjun nóv­em­ber í fyrra sýndi að 47 pró­sent aðspurðra vildu Jón sem næsta for­seta og rúm­lega sex þús­und manns hafa skorað á hann að bjóða sig fram á sér­stakri Facebook síðu. Jón seg­ist telja að hann yrði fínn for­seti og að starfið sé örugg­lega róleg inni­vinna.

Honum óar hins vegar þeirri til­hugsun að verða á þennan hátt hluti af "þeim ömur­lega og hall­æris­lega kúltúr" sem er íslensk stjórn­mála­menn­ing á þennan hátt. Hann ætlar ekki að gera fjöl­skyld­unni sinni það að "standa aftur and­spænis freka kall­inum", sem hefur til­einkað sér til­ætl­un­ar­semi, frekju og dóna­skap í dag­legum sam­skiptum. "Ég hef því tekið þá ákvörðun að ég mun ekki bjóða mig fram til for­seta Íslands í þetta skiptið. Kannski ein­hvern tíma seinna. Ég þakka fyrir alla þá vin­semd og virð­ingu sem mér hefur verið sýnd. fjöl­skyldu sinni", segir Jón Gnarr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár