Danir þurfi að læra meira um Færeyjar og Grænland

Fána­dagar í danska kon­ungs­rík­inu urðu 19 í ár þegar fær­eyskum og græn­lenskum fána­dögum var bætt við. Þessi sátta­hendi danskra stjórn­valda er hins vegar orðin hálf lympu­leg því Danir flögg­uðu vit­lausum fána fyrir Færeyjar.

Svona er færeyski fáninn; rauður kross með bláum borða á hvítum fleti.
Svona er fær­eyski fán­inn; rauður kross með bláum borða á hvítum fleti. Mynd: Úr safni

Enn rak veg­far­endur í Danmörku í rogastans þegar þeir sáu annan fánan en Dannebrog, þjóð­fána Dan­merkur, blakta við opin­berar bygg­ingar síð­ast­lið­inn laug­ar­dag þegar fyrsti opin­beri fær­eyski fána­dag­ur­inn var í Danmörku. Áður höfðu Danir velt fyrir sér að morgni sól­stöðu­dags 21. júní hvers vegna græn­lenski þjóð­fán­inn blakti við allar stjórn­ar­bygg­ingar og á stræt­is­vögnum, eins og Dannebrog gerir á opin­berum fána­dögum. Ástæðan var sú að þá var fyrsti græn­lenski fána­dag­ur­inn í Danmörku.

En það var ekki vegna þess að fyrsti fær­eyski fána­dag­ur­inn var í Danmörku laug­ar­dag­inn 29. júlí sem fólki brá í brún þegar það báru fán­ana augum, heldur vegna þess að lit­unum hafði verið snúið við í fær­eyska flagg­inu. Í stað þess að rauður kross með bláum borða lægi á hvítum fleti var kross­inn blár og með rauðum borða.

[adspot]

Dönum tókst nefni­lega að flagga vit­lausum fána á þessum fyrsta opin­bera fána­degi Færeyja í Danmörku og þykir málið hið vand­ræða­leg­asta fyrir dönsk stjórn­völd og Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra. „Þetta und­ir­strikar — þyngra en tárum taki — punkt­inn minn um að við þurfum að vita meira um hvort annað,“ skrif­aði Rasmus­sen á Twitter þegar mis­tökin uppgvöt­uð­ust.

Færeyski stjórn­mála­mað­ur­inn Sjúrður Skaale lét svo hafa eftir sér á danska vefnum Politiko að hann hafi fyrst haldið að mynd­irnar hefðu verið skrum­skældar í tölvu. „Þetta sýnir ótrú­lega mik­inn skort á þekk­ingu meðal Dana á Færeyjum. Það eru margir Fær­ey­ingar sem telja sér sýnd mikil van­virð­ing með þessu.“

Vitlausu fán­ana fram­leiddi elsta fána­sauma­stofa í Danmörku. Dahls Flag­fa­brik stærir sig af því á vef­síðu sinni að danski fán­inn, Dannebrog, hafi aldrei selst upp í versl­un­inni nema dag­inn sem Danmörk var leyst undan járn­hæl Þýska­lands eftir seinni heim­styrj­öld­ina 5. maí 1945. Peter Østerbye, for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, segir málið vera allt hið vand­ræða­leg­asta.

Töldu fánastangir í janúar

Stjórn­völd í Danmörku ákváðu upp­hafi árs að fjölga opin­berum fána­dögum úr 17 í 19 þetta árið. Opinber græn­lenskur fána­dagur yrði 21. júni á þjóð­há­tíð­ar­degi Græn­lands og á þjóð­há­tíð­ar­degi Færeyja, Ólafs­deg­inum 29. júlí, yrði opin­ber fær­eyskur fána­dagur. Það var hins vegar ekki til­kynnt fyrr en eftir sér­lega flaggstanga­taln­ingu í danska rík­inu.

Í jan­úar sl. bár­ust for­stöðu­mönnum danskra rík­is­fyr­ir­tækja og stofn­ana rík­is­ins bréf frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu. Þótt þeir væru ýmsu vanir þegar kemur að erindum og fyr­ir­spurnum frá því virðu­lega ráðu­neyti var inni­hald bréfs­ins ólíkt öllu því sem áður hafði borist. Þeim var semsé gert að telja þær flaggstangir sem til­heyrðu við­kom­andi stofnun og senda fjár­mála­ráðu­neyt­inu upp­lýs­ing­arn­ar. „Maður er nú öllu vanur úr þess­ari átt“ sagði for­stöðu­maður einnar rík­is­stofn­unar og bætti við „hvað skyldu þeir háu herrar vilja fá talið næst?“ Ekki kom þó til þess að óskað væri eftir upp­lýs­ingum um fjölda hand­lauga og fata­hengja, eins og einn for­stöðu­maður lét reyndar fylgja með þegar hann upp­lýsti að hjá sinni stofnun væri ein flagg­stöng, sem því miður hefði nýlega brotn­að.

Fjöl­miðl­arnir gerðu sér mik­inn mat úr þessu taln­inga­máli sem þeir köll­uðu „Flagstangs­ga­te“ og veltu fyrir sér til­gang­in­um. Emb­ætt­is­menn­irnir voru þög­ulir sem gröf­in, vís­uðu á for­sæt­is­ráð­herr­ann þegar spurt var.

Nokkrum dögum eftir að taln­ing­ar­skip­un­ar­bréfið var sent út upp­lýsti for­sæt­is­ráð­herr­ann um málið á fés­bók­ar­síðu sinni. Sér væri mjög hlýtt til Græn­lend­inga og Fær­ey­inga (Sól­run, eig­in­kona ráð­herr­ans, er fær­eysk) og nú hefði hann ákveðið að Græn­lend­ingar og Fær­ey­ingar fengju sér­stakan fána­dag. „Þegar farið var að ræða um þetta kom í ljós að í fórum rík­is­ins voru engar upp­lýs­ingar til um fjölda opin­berra flaggstanga í kon­ungs­rík­in­u,“ sagði ráð­herr­ann. Til að allar stofn­anir gætu fengið þjóð­fán­ana væri nauð­syn­legt að vita hve marga þyrfti að útvega. Ráð­herr­ann til­kynnti svo síðar að fána­dag­arnir yrðu 21. júní fyrir Græn­land og 29. júlí fyrir Fær­eyj­ar

Flaggstangirnar eru 534

Svör við spurn­ingu ráðu­neyt­is­ins bár­ust fljótt og vel. Opin­berar flaggstangir reynd­ust 534 tals­ins. Nokkrir for­stöðu­menn til­kynntu um brotnar stangir en það stæði til bóta. Þegar stanga­fjöld­inn lá fyrir gátu emb­ætt­is­menn fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins pantað þann fjölda fána sem til þurfti og þeim var svo komið til stofn­ana rík­is­ins um land allt og sendi­ráða Dan­merkur víða um heim.

Á opin­berum fána­dögum í Danmörku, sem telja almenna hátíðis- og tylli­daga auk afmæl­is­daga fjöl­skyldu Mar­grétar Þór­hildar Dana­drottnignar, er flaggað við opin­berar bygg­ingar og stræt­is­vagnar aka um götur bæja og borga með fána­veifur. Þar til græn­lenski fán­inn var dreg­inn að húni að morgni dags 21. júní hafði eng­inn fáni annar en danski þjóð­fán­inn, Dannebrog, blakt á opin­berum flagg­stöngum í Danmörku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár