Stóra danska flaggstangamálið upplýst

Fyrir tíu dögum eða svo fengu for­stöðu­menn danskra rík­is­fyr­ir­tækja og stofn­ana bréf frá Fjár­mála­ráðu­neyt­inu. Sumir þeirra héldu að bréfið væri eins­konar fyr­ir­fram 1. apr­ílgabb, en við nán­ari athugun kom í ljós að svo var ekki. Þeim var semsé skipað að telja þær utandyra­flaggstangir sem undir þeirra stofnun heyra og senda nið­ur­stöður taln­ing­ar­innar til ráðu­neyt­is­ins.

Í bréf­inu var til­gangur taln­ing­ar­innar ekki útskýrður og emb­ætt­is­menn neit­uðu að svara spurn­ingum fjöl­miðl­anna, slógu úr og í. Fjöl­miðla­full­trúi Fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins sagði að stundum væri það svo að almenn­ingur ætti ekki að vita allt, taln­ingin hefði til­gang en ekki yrði upp­lýst nánar um málið. Að sinni.

Taln­ing­ar­til­skip­unin vakti athygli langt út fyrir danska land­steina og var frá henni greint í fjöl­miðlum víða um lönd. Ótal til­gátur komu fram um til­gang þess­arar óvenju­legu til­skip­unar sem, að sögn danskra fjöl­miðla, á sér hvorki for­dæmi né hlið­stæðu. Dönsku miðl­arnir skírðu þetta Flagstang­gate, og skop­mynda­teikn­arar brostu með blý­öntum sínum.

Frestur til að skila upp­lýs­ingum um flaggastanga­eign stofn­ana og fyr­ir­tækja rann út 11. jan­úar, ekki hefur verið upp­lýst hvernig heimtur voru.

Forsætisráðuneytið upplýsir um tilganginn

Í gær sendi For­sæt­is­ráðu­neytið frá sér til­kynn­ingu til fjöl­miðla.

Þar var greint frá því að Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra væri að íhuga (over­veje) hvort gera ætti fána­dag Færeyja, 25. apríl, og græn­lenska fána­dag­inn, 21. júní, að dönskum fána­dögum. Þá yrði fær­eyski fán­inn við hún 25. apríl og sá græn­lenski 21. júní. Þegar þessar vanga­veltur byrj­uðu kom í ljós að engar upp­lýs­ingar voru til um fjölda flaggstanga í eigu opin­berra stofn­ana og fyr­ir­tækja í land­inu. Þess vegna var ákveðið að senda til­skip­un­ar­bréfið. Hvers vegna það var For­sæt­is­ráðu­neytið sem sendi upp­lýs­inga­bréfið veit eng­inn en blaða­maður Politi­ken giskaði á að það væri gert til að auka trúð­verð­ug­leik­ann. Ef upp­lýs­inga­bréfið hefði komið frá Fjár­mála­ráðu­neyt­inu hefði fólk kannski haldið að það væri við­bót­ar­grín.

Sumir dönsku fjöl­miðl­anna hafa lýst von­brigðum með að búið sé að upp­lýsa málið. „Þá er þessi gesta­þraut úr sög­unni,” sagði einn þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár