Grænlenski fánadagurinn

Margir Danir ráku upp stór augu að morgni sól­stöðu­dags 21. júní þegar þeir sáu græn­lenska þjóð­fán­ann blakta við hún á opin­berum stofn­unum og bygg­ingum í Dana­veldi. Sumir héldu að Græn­lend­ingar stæðu fyrir þessu og væru með til­tæk­inu að vekja athygli á sjálf­stæð­is­bar­áttu sinni, eða kannski væri þetta bara svona prakk­ara­skapur. Stræt­is­vagn­arnir sem aka um götur bæja og borga skört­uðu græn­lenskum fána­veifum en á hátíðis- og tylli­dögum aka þeir með danskar fána­veifur og sömu­leiðis á afmæl­is­dögum fjöl­skyldu Mar­grétar Þór­hildar. Dönsku fána­dag­arnir hafa lengi verið sautján tals­ins, en verða fram­vegis nítján. Ástæða þess að græn­lenski fán­inn hékk við hún 21. júní er sú að for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur ákvað að Grænland og Færeyjar fengju sinn fána­dag. Græn­lenski fána­dag­ur­inn verður sól­stöðu­dag­ur­inn, sem er þjóð­há­tíð­ar­dagur Græn­lend­inga. Færeyski fána­dag­ur­inn verður hins vegar 29. júlí á Ólafs­deg­inum, þjóð­há­tíð­ar­degi Fær­ey­inga sem jafn­framt markar upp­haf Ólafsvöku. Fram til þessa hefur eng­inn fáni annar en danski þjóð­fán­inn, Dannebrog, blakt á opin­berum flagg­stöngum í Danmörku.

Flaggstangatalningin

Í jan­úar sl. bár­ust for­stöðu­mönnum danskra rík­is­fyr­ir­tækja og stofn­ana rík­is­ins bréf frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu. Þótt þeir væru ýmsu vanir þegar kemur að erindum og fyr­ir­spurnum frá því virðu­lega ráðu­neyti var inni­hald bréfs­ins ólíkt öllu því sem áður hafði borist. Þeim var semsé gert að telja þær flaggstangir sem til­heyrðu við­kom­andi stofnun og senda fjár­mála­ráðu­neyt­inu upp­lýs­ing­arnar. „Maður er nú öllu vanur úr þess­ari átt“ sagði for­stöðu­maður einnar rík­is­stofn­unar og bætti við „hvað skyldu þeir háu herrar vilja fá talið næst?“ Ekki kom þó til þess að óskað væri eftir upp­lýs­ingum um fjölda hand­lauga og fata­hengja, eins og einn for­stöðu­maður lét reyndar fylgja með þegar hann upp­lýsti að hjá sinni stofnun væri ein flagg­stöng, sem því miður hefði nýlega brotnað.

Fjöl­miðl­arnir gerðu sér mik­inn mat úr þessu taln­inga­máli sem þeir köll­uðu „Flagstangs­gate“ og veltu fyrir sér til­gang­inum. Emb­ætt­is­menn­irnir voru þög­ulir sem gröfin, vís­uðu á for­sæt­is­ráð­herr­ann þegar spurt var.

Forsætisráðherra upplýsir um málið

Nokkrum dögum eftir að taln­ing­ar­skip­un­ar­bréfið var sent út upp­lýsti for­sæt­is­ráð­herr­ann um málið á fés­bók­ar­síðu sinni. Sér væri mjög hlýtt til Græn­lend­inga og Fær­ey­inga (Sólrun, eig­in­kona ráð­herr­ans, er fær­eysk) og nú hefði hann ákveðið að Græn­lend­ingar og Fær­ey­ingar fengju sér­stakan fána­dag. „Þegar farið var að ræða um þetta kom í ljós að í fórum rík­is­ins voru engar upp­lýs­ingar til um fjölda opin­berra flaggstanga í kon­ungs­rík­inu,“ sagði ráð­herr­ann. Til að allar stofn­anir gætu fengið þjóð­fán­ana væri nauð­syn­legt að vita hve marga þyrfti að útvega. Ráð­herr­ann til­kynnti svo síðar að fána­dag­arnir yrðu 21. júní fyrir Grænland og 29. júlí fyrir Færeyjar.

534 opinberar flaggstangir

Svör við spurn­ingu ráðu­neyt­is­ins bár­ust fljótt og vel. Opin­berar flaggstangir reynd­ust 534 tals­ins. Nokkrir for­stöðu­menn til­kynntu um brotnar stangir en það stæði til bóta. Þegar stanga­fjöld­inn lá fyrir gátu emb­ætt­is­menn fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins pantað þann fjölda fána sem til þurfti og þeim var svo komið til stofn­ana rík­is­ins um land allt og sendi­ráða Dan­merkur víða um heim.

Grænlendingar stoltir og glaðir

Græn­lend­ingar sem danskir fjöl­miðlar töl­uðu við á sól­stöðu­deg­inum sögð­ust bæði vera stoltir og hrærðir þegar þeir sæju þjóð­fán­ann blakta við hún á opin­berum bygg­ingum. Sumir lýstu jafn­framt mik­illi ánægju með þetta frum­kvæði for­sæt­is­ráð­herr­ans, hann hefði með þessu hefði sýnt Græn­lend­ingum hlý­hug, sem stundum skorti hjá dönskum ráða­mönnum. 29. júlí kemur svo röðin að fær­eyska fán­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár