Sósíalistaflokkurinn segist vilja „brjóta upp Samherja“ og hefja „fjórða þorskastríðið“

Sós­í­alista­flokk­ur­inn boðar að stærstu útgerð­ar­fé­lögum lands­ins verði skipt upp bæði þversum og langsum ef hann kom­ist til valda. Einnig segir flokk­ur­inn að veiði­gjöld, sem inn­heimt verði við löndun, geti skilað hinu opin­bera 35 millj­örðum króna.

Gunnar Smári Egilsson, frambjóðandi og formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins.
Gunnar Smári Egilsson, fram­bjóð­andi og for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Sós­í­alista­flokk­ur­inn segir að að núver­andi fyr­ir­komu­lag fisk­veiði­stjórn­un­ar­mála hafi brotið niður byggðir og safnað upp auð örfárra, svo miklum auð að hann ógni lýð­ræð­inu og frelsi almenn­ings.

Flokk­ur­inn seg­ist í til­kynn­ingu í dag, um stefnu sína í sjáv­ar­út­vegs­málum, vilja leggja kvóta­kerfið niður og „byggja rétt­lát­ari umgjörð utan um fisk­veiðar og vinnslu.“

Uppbrot fyrirtækja, þversum og langsum

Í til­kynn­ingu flokks­ins, sem birt er á vef hans, segir að þær til­lögur sem flokk­ur­inn muni leggja fram snú­ist um að brjóta fyr­ir­tæki í sjáv­ar­út­vegi upp, bæði „langsum“ og „þversum.“

„Sós­í­alista­flokk­ur­inn mun leggja til að tak­mark­anir verði settar á umfang stór­út­gerða svo stærstu útgerð­irnar verði brotnar upp langsum, að þær verði að kljúfa sig upp í tvö eða fleiri félög. Þetta er gert til að draga úr ægi­valdi stór­út­gerð­anna yfir byggð­unum og til að tryggja fjöl­breyti­leika og nýliðun.

Þá leggja sós­í­alistar til að útgerðar- og fisk­vinnslu­fyr­ir­tækin verði brotin upp þversum, þannig að sama fyr­ir­tækið geti ekki veitt fisk­inn og selt sjálfu sér afl­ann, unnið fisk­inn og selt sjálfu sér afurð­irnar og selt síðan sjálfu sér afurð­irnar í útlöndum og falið þar gróð­ann,“ segir á vef­síðu flokks­ins.

Flokk­ur­inn, sem sendir þessa stefnu­mörkun sína út undir fyr­ir­sögn­inni „Brjótum upp Samherja - End­ur­heimtum auð­lind­arnar“, tekur dæmi um Samherja og segir að það fyr­ir­tæki yrði „klofið upp vegna stærðar sinnar“ bæði langsum og þversum.

„Yfir­gangur og frekja þessa fyr­ir­tækis ætti ekki að koma neinum á óvart. Þegar stór­fyr­ir­tækjum er leyft að vaxa sam­fé­lag­inu yfir höfuð þá verða þau að skað­valdi og það ber að bregð­ast við þeim sem slíkum. Það er löngu tíma­bært að þjóðin sýni Samherja hver hefur völdin,“ segir í til­kynn­ingu flokks­ins.

Þjóðareign í stjórnarskrá og fiskiþing

Í til­kynn­ingu sós­í­alista segir einnig að flokk­ur­inn leggi til að bundið verði í stjórn­ar­skrá að fisk­veiði­auð­lindin sé eign þjóð­ar­innar og að þjóðin ákveði sjálf hvernig nýt­ingu hennar sé háttað.

Flokk­ur­inn leggur einnig til „fiski­þing í hverjum lands­hluta þar sem sjó­menn, fisk­verka­fólk og almenn­ingur allur sest niður og mótar fisk­veiði­stefn­una til lengri tíma“ og segir í til­kynn­ing­unni að til að „losna við yfir­gang útgerða og ann­arra hags­muna­að­ila“ færi best á því að nota slembival til að velja full­trúa á þingin, að stærstu eða öllu leyti.

Flokk­ur­inn seg­ist einnig vilja „loka kvóta­kerf­inu strax“ og taka upp daga­kerfi fyrir tog­ara og báta, með ófram­selj­an­legum dögum á skip og báta, þar til fiski­þingin hafi mótað fram­tíð­ar­stefnu.

Verði jafn einfalt og virðisaukaskattur

Sós­í­alistar segj­ast einnig ætla að gera kröfu um að allur afli fari á markað og að veiði­gjöld verði inn­heimt við löndun, „á jafn ein­faldan máta og virð­is­auka­skattur“.

„Það má meira að segja vel hugsa sér að veiði­gjaldið sé það sama og virð­is­auk­inn í dag, eða 24%. Það myndi gefa um 35 millj­arða króna á ári í veiði­gjöld miðað við verð afla á síð­asta ári, en reikna má með að afla­verð hækki þegar allur fiskur fer á markað. Veiði­gjöldin renni jafnt til sveit­ar­fé­laga og ríkis,“ segir flokk­ur­inn í yfir­lýs­ingu sinni.

Þar segir einnig að vilji flokks­ins sé að gefa hand­færa­veiðar frjálsar fimm veiði­daga í viku að eigin vali frá mars til októ­ber og að „afla­heim­ildir í Barents­hafi, í Smugunni og ann­ars staðar í úthaf­inu“ verði boðnar upp.

Sérstök rannsókn á hendur stærstu fimm fyrirtækjunum

Sós­í­alista­flokk­ur­inn vill einnig, „í ljósi Sam­herj­a­máls­ins,“ að fimm stærstu útgerð­ar­fyr­ir­tækin á Íslandi verði „rann­sökuð til að kanna hvort þar hafi mútum verið beitt, fisk­verð falsað, sjó­menn hlunn­farnir, skotið undan skatti, arður af rekstr­inum og auð­lind­inni fal­inn í aflöndum eða brotið með öðrum hætti gegn sam­fé­lag­inu.“

Í yfir­lýs­ingu flokks­ins segir enn fremur að ef „stór­felld svik“ komi í ljós við þessar rann­sóknir verði efnt til rann­sóknar á næstu fimm útgerð­ar­fyr­ir­tækjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár