Sósíalistaflokkurinn biður um að fá ókeypis auglýsingar á RÚV

Gunnar Smári Egilsson for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks­ins hefur sent útvarps­ráði erindi með beiðni um að Sós­í­alista­flokk­ur­inn fái ókeypis pláss í miðlum Rík­is­út­varps­ins til þess að aug­lýsa sig fyrir kosn­ingar.

Gunnar Smári Egilsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins.
Gunnar Smári Egilsson, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Gunnar Smári Egilsson, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks­ins, hefur sent erindi fyrir hönd flokks­ins á þá ein­stak­linga sem skip­aðir eru í útvarps­ráð Rík­is­út­varps­ins, með beiðni um að Sós­í­alista­flokk­ur­innn fái úthlutað aug­lýs­inga­tíma hjá miðlum Rík­is­út­varps­ins án þess að greiða nokkuð fyrir.

Í þessu erindi Sós­í­alista­flokks­ins, sem einnig var sent til útvarps­stjóra og aug­lýs­inga­stjóra RÚV auk fjöl­miðla, segir að að stjórn­mála­flokk­arnir sem eru núna á þingi hafi ákveðið að „styrkja sjálfa sig fjár­hags­lega með því að færa á kjör­tíma­bil­inu 2.848 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði í eigin sjóði, þar með talda kosn­inga­sjóði sína“ og að sú ákvörðun skaði lýð­ræðið „þar sem hætta er á að erindi nýrra gras­rót­ar­fram­boða almenn­ings muni drukkna í aug­lýs­ingum þeirra flokka sem hafa skammtað sér þessa styrki,“ sem séu „í raun ekki til að örva lýð­ræðið heldur til að verja völd og stöðu þeirra flokka sem fyrir eru.“

Gunnar Smári, sem mun leiða lista Sós­í­alista­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður til kom­andi kosn­inga, segir að fjöl­miðlum og þá sér­stak­lega Rík­is­út­varp­inu beri að „verja lýð­ræðið og heil­brigða umræðu og gæta þess að sú mynd sem þeir færa almenn­ingi af sam­fé­lag­inu sé sönn en ekki skekkt af ægi­valdi pen­ing­anna“ og að sú skylda hverfi ekki „þótt þeir flokkar sem hafa kom­ist í aðstöðu til sjálftöku úr rík­is­sjóði mis­noti þá stöðu,“ heldur verði þvert á móti rík­ari.

Verði Ríkisútvarpinu að tjónlausu

„Fram­kvæmda­stjórn Sós­í­alista­flokks Íslands fer því þess á leit við útvarps­ráð og yfir­stjórn Rík­is­út­varps­ins að flokk­ur­inn fái úthlutað aug­lýs­inga­tíma hjá miðlum fyr­ir­tæk­is­ins eins og með­al­tal þess sem flokk­arnir á alþingi kaupa, í það minnsta eins og sá flokkur sem aug­lýsir minnst kaupir af Rík­is­út­varp­inu. Fyr­ir­komu­lagið getur verið þannig að í upp­hafi hverrar viku fá flokk­ur­inn úthlutað þeim tíma sem jafn­gildir notkun hinna flokk­anna í vik­unni á undan og í kosn­inga­vik­unni til við­bótar þeim tíma sem flokk­arnir hafa pantað í aug­lýs­inga­tímum miðla Rík­is­út­varps­ins,“ segir í erind­inu frá Gunnari Smára.

[adspot]

Hann segir að það muni ekki skaða Rík­is­út­varpið á nokkurn hátt að verða við þess­ari beiðni, heldur þvert á móti „styrkja það sem ábyrga stofnun“ og bætir við að ólík­legt sé að aug­lýs­inga­tímar verði upp­seldir.

„Það er því Rík­is­út­varp­inu að tjón­lausu að verða við þess­ari beiðni. Það er hins vegar mik­il­vægt fyrir sam­fé­lagið að veita við­nám sjálftöku stjórn­mála­flokk­anna og til­raunum þeirra til að verja eigin völd á kostnað jafn­ræðis og lýð­ræðis,“ segir í erind­inu frá fram­kvæmda­stjórn Sós­í­alista­flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár