Eitt heitasta deilumál Íslendinga í áratugi er skipting auðs vegna nýtingu fiskveiða. Þar er nú til umræðu.
Katrín segir að hún vilji að arðurinn skiptist jafnar en að flokkur hennar vilji ákveðna byggðarfestu í sjávarútvegsstefnunni. Það sé að sjálfsögðu mikilvægt að sjálfbærni haldist í greininni. Vinstri grænir vilja hækka hlut almennings í arðinum af auðlindinni.
Oddný og Samfylkingin vilja bjóða út aflaheimildir. Hún segir að það megi setja byggðarskorður en það þurfi að fá fullt verð fyrir auðlindina. Stjórnmálamenn mega ekki setja puttann upp í loftið og ákveða hvert virði auðlindarinnar sé.
Viðreisn vill markaðstengt auðlindagjald. Benedikt segir að það sé eðlilegt að t.d. þrjú prósent af kvóta fari á markað. Það geri það að verkum að markaðurinn ræður þá gjaldinu. Þessa peninga á að setja í sérstaka innviðasjóði til að stuðla að uppbyggingu innviða, meðal annars í hinum dreifðu byggðum.
Sigurður Ingi segir að veiðigjöldin hafi ekki lækkað í tíð ríkisstjórnarinnar. Þau hafi þvert á móti verið hærri en nokkru sinni áður. Það er ákveðin hálfsannleikur. Veiðigjöld hafa farið úr 12,8 milljörðum króna í 4,8 milljarða króna á kjörtímabilinu, vegna lagasetningar sem sett var sumarið 2013 af sitjandi ríkisstjórn. Hann segir að leita verði allra leiða til að finna réttu leiðina til að hirða auðlindarentu.
Bjarni Benediktsson segir að McKinsey skýrslan hafi sagt að sjávarútvegskerfið íslenska væri afburðakerfi. Það væri að skila meiri verðmætum en nokkurt annað sjávarútvegskerfi í heiminum. Það sé glapræði að gera kerfisbreytingar sem ógni þessu, og uppboð muni setja kerfið í mjög mikla óvissu.
Spyrill segir að Björt framtíð segi ekki mikið um sjávarútveg í sinni stefnu. Björt Ólafsdóttir hafi hins vegar sagt að álverin mættu fara. Hvað ætti að koma í staðinn? Óttarr segir að horfa verði til þess að þetta séu takmarkaðar auðlindir. Það verði að horfa til þess að það séu ekki bara sumir sem fái að nýta auðlindir, hvort sem þær séu í sjó eða hvort það sé t.d. orka. Ákveðnir aðilar séu að fá aðgang að forréttindum í sjávarútvegi og Björt framtíð vilji færa sig yfir í uppboðsleið til að tryggja jafnrétti í greininni.
Birgitta vill taka sérstaka veiðigjaldið aftur upp, gjaldið sem það sem hún kallar „óreiðustjórnin“, ákvað að afnema.
Athugasemdir