Samfylking með eitt prósent í yngsta aldurshópnum

Sam­fylk­ingin mælist með eins pró­sents fylgi í yngsta ald­urs­hópnum, 18 til 29 ára, sam­kvæmt nýj­ustu könnun MMR. Fylgi flokks­ins hækkar með hækk­andi aldri, og er 12% meðal 68 ára og eldri. Það er fjögur pró­sent í ald­urs­hópnum 30 til 49 ára og 10 pró­sent meðal 50 til 67 ára.

Sama þróun er hjá Sjálf­stæð­is­flokknum, hann er með minnsta fylgið í yngsta ald­urs­hópnum og það fer svo hækk­andi eftir því sem fólk eld­ist. Flokk­ur­inn mælist með 18% fylgi meðal 18 til 29 ára, 24% meðal 30 til 49 ára, 28% meðal 50 til 67 ára og 34% meðal 68 ára og eldri.

Þróunin er öfug hjá Pírötum og Bjartri fram­tíð, þótt hún sé mun meira áber­andi hjá Pírötum. Þeir eru með 33% fylgi í yngsta ald­urs­hópnum, 26 pró­sent í þeim næstyngsta, 30 til 49 ára. Meðal 50 til 67 ára er fylgið komið niður í níu pró­sent og er svo sjö pró­sent meðal 68 ára og eldri.

Hjá Bjartri fram­tíð er fylgið 10 pró­sent meðal 18 til 29 ára, átta pró­sent meðal 30 til 49 ára en fer svo niður í fjögur pró­sent meðal 50 til 67 ára og þrjú pró­sent hjá 68 ára og eldri.

Vinstri græn mæl­ast líka með mest fylgi hjá elsta ald­urs­hópnum, 23%. Þau eru með frekar jafnt fylgi í öðrum ald­urs­hópum, 15-16%.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er með lang­mest fylgi meðal fólks á aldr­inum 50 til 67 ára, 17%. Flokk­ur­inn er með 10 pró­sent hjá 18 til 29 ára, níu pró­sent hjá 30 til 49 ára og átta pró­sent í elsta ald­urs­hópnum, 68 ára og eldri.

Viðreisn er með fremur jafnt fylgi í öllum ald­urs­hópum nema þeim elsta, þar sem flokk­ur­inn mælist aðeins með þriggja pró­senta fylgi. Meðal 18 til 29 ára er fylgið 10%, níu pró­sent hjá 30 til 49 ára og 11 pró­sent hjá 50 til 67 ára.

MMR veltir því upp að ef kosn­inga­þátt­taka yngra fólks verður hlut­falls­lega minni en eldra fólks, eins og gerst hefur í fyrri kosn­ingum, má leiða líkur að því að kjör­fylgi flokka sem ná betur til yngra fólks verði lægra en könn­unin gefur til kynna.

Mikill munur milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis

Hjá sumum flokkum er mjög mik­ill munur á fylg­inu eftir því hvort fólk býr á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eða lands­byggð­inni. Það á einkum við hjá Fram­sókn­ar­flokknum og Viðreisn. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist þannig með 24% fylgi á lands­byggð­inni en aðeins 5% á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hjá Viðreisn er þessu öfugt farið, flokk­ur­inn er með 12% fylgi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en aðeins þrjú pró­sent á lands­byggð­inni.

Píratar eru með 22% fylgi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en 17% á lands­byggð­inni, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er með nán­ast sama fylgi á höf­uð­borg­ar­svæð­ingu og lands­byggð­inni, og Björt fram­tíð og Sam­fylk­ingin eru með sjö pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og fimm pró­sent á lands­byggð­inni. Vinstri græn eru með 15% á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en 18% á lands­byggð­inni.

Kynjamunur hjá VG og Framsókn

Mikill munur er á kynjum hjá kjós­endum Vinstri grænna og Fram­sóknar. Níu pró­sent karla ætla að kjósa VG en 24% kvenna. 17% karla ætla aftur á móti að kjósa Framsókn en aðeins fimm pró­sent kvenna.

Fleiri karlar ætla að kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn en konur, 27% á móti 22%. Sömu sögu er að segja hjá Pírötum, 23% karla og 18% kvenna ætla að kjósa flokk­inn. Hjá Viðreisn eru 10% karla og sjö pró­sent kvenna, en hjá Bjartri fram­tíð og Sam­fylk­ingu eru konur fleiri. Átta pró­sent kvenna og fimm pró­sent karla ætla að kjósa Bjarta fram­tíð og átta pró­sent kvenna og fjögur pró­sent karla ætla að kjósa Sam­fylk­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár