Sjálfstæðisflokkurinn vex og Píratar minnka

Ný kosn­inga­spá var gerð síð­degis föstu­dag­inn 28. októ­ber.

Gengið verður til kosningar á morgun, laugardaginn 29. október.
Gengið verður til kosn­ingar á morgun, laug­ar­dag­inn 29. októ­ber. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fylgi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn vex enn í ann­ari kosn­inga­spá dags­ins, dag­inn fyrir kjör­dag. Kosið verður til Alþingis í sex kjör­dæmum á morgun, laug­ar­dag­inn 29. októ­ber. Á lands­vísu mælist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stærstur með 24,9 pró­sent atkvæða.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur í und­an­förnum nið­ur­stöðum kosn­inga­spár­innar mælst stærstur flokk­anna sem bjóða fram í kosn­ing­unum og hefur heldur verið að slíta sig frá hinum flokk­unum en hitt. Á sama tíma og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vex virð­ast Píratar dala örlítið dag­ana fyrir kjör­dag. Á lands­vísu mæl­ast þeir með 19,4 pró­sent fylgi.

[adspot]

Vinstri grænir eru með 16,5 pró­sent fylgi í þess­ari kosn­inga­spá. Spáin byggir á nið­ur­stöðum fjög­urra síð­ustu kann­anna á fylgi fram­boða til Alþingis. Sú síð­asta var Þjóð­ar­púls Gallup sem birt var síð­degis í dag.

Framsókn og Viðreisn eru með nær jafn mikið fylgi. Framsókn mælist með 10 pró­sent og Viðreisn með 9,9 pró­sent. Björt fram­tíð og Sam­fylk­ingin eru einnig á svip­uðum slóðum, með 6,9 pró­sent og 6,5 pró­sent. Aðrir flokkar mæl­ast með minna en fimm pró­sent.

Um kosn­­­inga­­­spána

Nýjasta kosn­­­inga­­­spáin tekur mið af fjórum nýj­­­ustu könn­unum sem gerðar hafa verið á fylgi fram­­­boða í alþing­is­­­kosn­­­ing­unum í haust. Í spálík­­­an­inu eru allar kann­­­anir vegnar eftir fyr­ir ­fram ákveðnum atrið­­­­um. Þar vega þyngst atriði eins og stærð úrtaks, svar­hlut­­­fall, lengd könn­un­­­ar­­­tíma­bils og sög­u­­­legur áreið­an­­­leiki könn­un­­­ar­að­ila. Nánar má lesa um fram­kvæmd kosn­inga­spár­innar hér. Kann­an­­­irnar sem kosn­­­inga­­­spáin 28. októ­ber tekur mið af eru:

  • Þjóð­ar­púls Gallup 24. – 28. októ­ber (vægi 28,3%)
  • Skoð­ana­kann­anir MMR 19. – 26. og 26. – 28. októ­ber (vægi 24.4%)
  • Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 20. – 27. októ­ber (vægi 27,0%)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins, Stöðvar 2 og Vísis 25. – 26. októ­ber (vægi 20,3%)

Kosn­­­­­­­­­­­inga­­­­­­­­­­­spálíkan Bald­­­­­­­­­­­urs Héð­ins­­­­­­­­­­­sonar miðar að því að setja upp­­­­­­­­­­­lýs­ing­­­­­­­­­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­­­­­­­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­­­­­­­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­­­­­­­­­inga. Kjarn­inn birti Kosn­­­­­­­­­­­inga­­­­­­­­­­­spá Bald­­­­­­­­­­­urs fyrir sveit­­­­­­­­­­­ar­­­­­­­­­­­stjórn­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­ar­­­­­­­­­­­kosn­­­­­­­­­­­ing­­­­­­­­­­­arnar og reynd­ist sú til­­­­­­­­­­­raun vel. Á vefnum kosn­inga­spá.is má lesa nið­­­­­­­­­­­ur­­­­­­­­­­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­­­­­­­­­­vik kann­ana miðað við kosn­­­­­­­­­­inga­úr­slit­in.

Áreið­an­­­­­­­­­­­leiki könn­un­­­­­­­­­­­ar­að­ila er reikn­aður út frá sög­u­­­­­­­­­­­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­­­­­­­­­­­inga­úr­slit­­­­­­­­­­­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­­­­­­­­­­­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­­­­­­­­­­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár