Lág verðbólga, dómar og erlendir ferðamenn í lykilhlutverki

Liðið kjör­tíma­bil hefur verið mikið end­ur­nýj­unar og upp­gangs­tíma­bil fyrir íslenskt við­skipta­líf.

Eitt af stóru atriðum á kjör­tíma­bil­inu, sem nú er að klár­ast með kosn­ingum á laug­ar­dag­inn, hefur verið end­ur­reisn íslensks við­skipta­lífs og fjár­mála­mark­að­ar­ins. Kjarninn tók saman stór og mik­il­væg mál sem skiptu miklu máli fyrir íslenskt við­skipta­líf á kjör­tíma­bil­inu.

1. Mikill upp­gangur hefur verið víð­ast hvar í efna­hags­líf­inu, og er mikil inn­spýt­ing gjald­eyris frá erlendum ferða­mönnum þar vega­mik­ill þáttur. Tölurnar um vöxt­inn í ferða­þjón­ust­unni eru stór­merki­legar. Árið 2010 komu innan við 500 þús­und erlendir ferða­menn á ári til Íslands en á næsta ári er gert ráð fyrir að ferða­mönnum muni fjölga um 500 þús­und frá árinu í ár, sem þó var algjört metár. Á þessu ári bendir flest til þess að fjöldi ferða­manna verði 1,7 millj­ónir og á næsta ári verði fjöld­inn kom­inn í 2,2 millj­ónir. Frá vori 2013, þegar rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar tók við völdum, hefur upp­gang­ur­inn í ferða­þjónst­unni hafa mikið að segja um það að atvinnu­leysi hefur minnkað og hag­vöxtur verið við­var­andi. Atvinnu­leysi mælist nú 2,9 pró­sent gera spár Seðla­banka Íslands ráð fyrir að 4 til 5 pró­sent hag­vexti á þessu ári.

2. Eitt af því sem má telja til mik­illa tíð­inda í íslensku við­skipta­lífi á kjör­tíma­bil­inu eru dómar sem fallið hafa í svo­nefndum hrun­málum. Með dómum Hæsta­réttar í mál­unum eru nýjar línur dregnar í sand­inn um það sem má og má ekki, þegar kemur að banka­starf­semi og fjár­fest­ingum. Má sér­stak­lega nefna dóm­inn í mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings, frá 6. októ­ber, þar sem níu ein­stak­lingar voru ákærðir og dæmdir. Í dómnum segir meðal ann­ars að ólög­legt verk­lag hafi verið við­haft í bank­anum frá árinu 2005, en ákæru­tíma­bilið náð ein­ungis til áranna 2007 og 2008. Eins og í fyrri dómum Hæsta­réttar, þar sem mark­aðs­mis­notkun hefur verið til umfjöll­unar, segir að hið ólög­lega athæfi hafi beinst gegn almenn­ingi og grafið undan til­trú á hluta­bréfa­mark­aði. Þrátt fyrir að þessi dómar hafi verið mikið til umfjöll­unar í fjöl­miðlum, þá má segja grein­ing og rýn­ing á áhrifum dómanna eigi eftir að koma betur fram. Páll Harð­ar­son, for­stjóri kaup­hall­ar­innar, er einn þeirra sem hefur gagn­rýnt það, hvernig við­horf hafa verið uppi gagn­vart þýð­ingu dómanna fyrir íslenskt efna­hags­líf. Hann segir mik­il­vægt að íslenskt við­skipta­líf læri af þessum dómum, og við­ur­kenni skil­yrð­is­laust að lög­brot hafi verið framin sem ollu stór­kost­legu tjóni.

3. Gengi krón­unnar hefur styrkst veru­lega á und­an­förnum mánum. Banda­ríkja­dalur kostar nú 114 krónur en fyrir rúm­lega ári kost­aði hann 136 krónur. Þá kostar evran nú 127 krónur en fyrir ári kost­aði hún 150 krónur. Mesta breyt­ingin hefur orðið á gengi krón­unnar gagn­vart pund­inu, sem nú kostar tæp­lega 140 krónur, en það kost­aði 206 krónur fyrir ári síðan. Eftir Brexit-kosn­ing­una í júní, hefur pundið veikst umtals­vert gagn­vart helstu við­skipta­myntum heims­ins og sér ekki fyrir end­ann á þeirri þróun ennþá. Áhyggju­raddir hafa heyrst að und­an­förnu vegna þess­arar þró­unar, einkum hjá útflutn­ings­fyr­ir­tækjum og fyr­ir­tækjum í ferða­þjón­ustu. Frekari styrk­ing krón­unnar getur leitt til rekstr­ar­vand­ræða hjá útflutn­ings­fyr­ir­tækjum sér­stak­lega. Flest bendir til þess að gengi krón­unnar muni halda áfram að styrkj­ast á næstu miss­erum, en inn­grip Seðla­banka Íslands í mark­að­inn hafa komið í veg fyrir að krónan hafi styrkst meira.

4. Eftir miklar hækk­anir á olíu­verði tók verðið að lækka með dramat­ískum hætti árið 2014. Það féll úr 110 Banda­ríkja­dölum á tunn­una af hrá­olíu niður í 26 Banda­ríkja­dali, í febr­úar á þessu ári. Síðan þá hefur verðið tekið að hækka, og stendur í dag í 49,6 Banda­ríkja­dölum. Þetta mikla verð­fall hafði vítæk efna­hags­leg áhrif um heim allan, á Íslandi voru áhrifin jákvæð, þar sem það dró mikið úr inn­fluttum verð­bólgu­þrýst­ingi. Verð­fallið hjálpað þannig til í því að halda verð­bólgu í skefjum.

5. Verð­bólga mælist nú 1,8 pró­sent og hefur verið undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­mið­inu í meira en tvö ár. Þessi staða hefur verið lyk­ilá­stæðan fyrir því að vel hefur tek­ist til við að byggja upp kaup­mátt. Samhliða styrk­ingu krónu, minnk­andi verð­bólgu­þrýst­ingi erlendis frá og launa­hækk­unum á vinnu­mark­aði, hefur kaup­máttur launa auk­ist jafnt og þétt. Fast­eigna­verð hefur hækkað hratt, eða um 30 pró­sent á síð­ustu tæpu þremur árum. Und­an­farið ár hefur kaup­mátt­ar­aukn­ingin numið ríf­lega tíu pró­sentum, og bendir margt til þess að aukn­ingin geti haldið áfram á næstu mán­uðum, þó alltaf sé vandi um slíkt að spá nákvæm­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár