Ásgeir þekktist ekki boð um að ræða við þingnefnd um völd hagsmunahópa

Þing­maður Vinstri grænna segir seðla­banka­stjóra ekki hafa þegið boð um að mæta og ræða orð sín um áhrif hags­muna­hópa í íslensku sam­fé­lagi á fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri taldi sig ekki rétta manninn til þess að koma á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að ræða áhrif hagsmunahópa, en orð hans í nýlegu viðtali við Stundina hafa vakið mikla athygli.
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri taldi sig ekki rétta mann­inn til þess að koma á fund stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar að ræða áhrif hags­muna­hópa, en orð hans í nýlegu við­tali við Stundina hafa vakið mikla athygli. Mynd: Bára Huld Beck

Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri telur sig ekki rétta aðil­ann til þess að koma á fund stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis til þess að ræða áhrif hags­muna­hópa í íslensku sam­fé­lagi. Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé þing­maður Vinstri grænna segir frá því, í færslu á Facebook, að seðla­banka­stjóri hafi ekki þegið boð hans um að mæta á fund nefnd­ar­innar til þess að ræða ummæli Ásgeirs í umtöl­uðu við­tali við Stundina.

„Mér finnst þetta mik­il­væg umræða og tel að við eigum að taka allar ábend­ingar um þetta alvar­lega. Best er ef við getum rætt þetta kon­kret, hvaða hags­muna­hópar eru það sem við teljum að ráði, hafi óeðli­leg áhrif, hvað er hægt að gera í því,“ skrifar þing­mað­ur­inn í færslu sinni.[links]

Hann bætir því við að hann hafi fengið leyfi frá Ásgeiri til þess að birta hluta af því svari sem kom frá Seðla­bank­anum varð­andi við­tal við seðla­banka­stjóra í Stund­inni, því honum þyki „mik­il­vægt að umræðan sé mark­viss og við séum öll að tala um sama hlut­inn.“

Í við­tal­inu við Stundina sagð­ist seðla­banka­stjóri vera undir það búinn að geta lent upp á kant við hags­muna­að­ila á Íslandi í starfi sínu. „Ég er ekki hallur undir neinn flokk, og sjálf­stæði bank­ans skiptir mig miklu máli og um leið og bank­inn verður í vegi fyrir hags­munum ein­hverra aðila þá munum við verða fyrir aðkasti. Ég er alveg við­bú­inn fyrir það. Seðla­bank­inn þarf að geta varið sig og komið fram sínum skoð­unum. Íslandi er að miklu leyti stjórnað af hags­muna­hópum og það er meiri háttar mál að lenda uppi á kant við þá,“ sagði Ásgeir við Stundina.

Allskonar hagsmunahópar fyrirferðamiklir

Í svari frá Seðla­bank­anum, sem Kolbeinn birti að hluta í Facebook-færslu sinni, segir: „Efni við­tals­ins beind­ist einkum að því að vekja athygli á að marg­vís­legir hags­muna­hópar eru fyr­ir­ferð­ar­miklir í íslensku þjóð­lífi og hafa áhrif á stefnu­mótun, stefnu og lög­gjöf, til að mynda hags­muna­sam­tök laun­þega, vinnu­veit­enda, atvinnu­rek­enda, líf­eyr­is­sjóðir og fleiri.“

[adspot]

Kolbeinn segir að hann telji mik­il­vægt að þessi mál séu rædd, hags­muna­hópar séu ýmis konar eins og Seðla­bank­inn bendi á í svari sínu. Hann hyggi þó að mörg okkar vilji að þeir hafi sín áhrif.

„Kannski er fólk heldur ekki alltaf sama sinnis um hvort allir hóp­arnir eigi að hafa sömu áhrif; telja þau sem vilja áhrif hags­muna­sam­taka laun­þega sem mest að vinnu­veit­endur eigi að hafa sömu áhrif? Upp­hrópana­laus umræða er alltaf best og því þakka ég Seðla­banka­stjóra fyrir hans inn­legg,“ skrifar Kolbeinn.

Ummæli seðla­banka­stjór­ans hafa verið til mik­illar umræðu í sam­fé­lag­inu und­an­farna viku. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði, í umræðum á þingi á mánu­dag, að áhuga­vert væri að fá frek­ari skýr­ingar á ummælum seðla­banka­stjóra.

„Hefði ég verið blaða­maður hefði ég beðið seðla­banka­stjór­ann um dæmi, ég verð nú að við­ur­kenna að ég hefði kosið að hann færi yfir það hvað hann nákvæm­lega ætti við með þessu,“ sagði Katrín meðal ann­ars í þing­inu í svari við fyr­ir­spurn Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur for­manns Við­reisnar um orð seðla­banka­stjóra.

Þor­gerður Katrín sagði að rík­is­stjórn­inni hefði „alger­lega mis­tek­ist í því að koma í veg fyrir að hags­muna­hópar ráði hér svo miklu“ og að það mætti segja „að rík­is­stjórnin hafi að vissu leyti veitt þessum hags­muna­hópum skjól.“

Því var for­sæt­is­ráð­herra alls ekki sam­mála og vís­aði til þess að hún hefði beitt sér fyrir því að draga sam­skipti hags­muna­varða við fram­kvæmda­valdið „upp á yfir­borðið“ með nýlega sam­þykktum lögum um varnir gegn hags­muna­á­rekstrum.

Athuga­semd rit­stjórnar: Í fyrri útgáfu frétt­ar­innar sagði að Kolbeinn hefði eignað seðla­banka­stjóra svar sem honum barst frá Seðla­bank­anum. Ómögu­legt var að lesa annað út úr færslu þing­manns­ins, sem var síðar breytt. Þing­mað­ur­inn ætl­aði sér ekki að eigna svar Seðla­bank­ans seðla­banka­stjóra sjálfum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár