Eftirlitsnefnd með brúarlánum gæti fengið útvíkkað hlutverk

Bjarni Bene­dikts­son segir að til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar um brú­ar­lána­veit­ingar séu vænt­an­legar. Lánin eru ætluð fyr­ir­tækjum sem hafa upp­lifað mikið tekju­fall og verða með rík­is­á­byrgð að hluta til að tryggja lægri vexti. Viðbúið er að hluti þeirra tap­ist.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son segir að til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar um brú­ar­lána­veit­ingar séu vænt­an­legar. Lánin eru ætluð fyr­ir­tækjum sem hafa upp­lifað mikið tekju­fall og verða með rík­is­á­byrgð að hluta til að tryggja lægri vexti. Viðbúið er að stór hluti þeirra mun ekki inn­heimt­ast.

Til greina kemur að sér­stök eft­ir­lits­nefnd sem skipuð verður til að fylgj­ast með veit­ingu brú­ar­lána fái útvíkkað hlut­verk. Það fari eftir því hvernig til­lögum rík­is­stjórn­ar­innar um brú­ar­lána­veit­ing­arnar, sem séu vænt­an­legar, verði tekið.

Þetta sagði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi í dag þegar Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, spurði hann út í næsta aðgerð­ar­pakka stjórn­valda vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Næsti pakki verður kynntur á morgun. Heim­ildir Kjarnans herma að hann verði lagður fyrir rík­is­stjórn í fyrra­málið og í kjöl­farið kynntur fyrir for­mönnum ann­arra stjórn­mála­flokka áður en að blásið verður til kynn­ing­ar­fundar fyrir fjöl­miðla og almenn­ing.

Í fyr­ir­spurn sinni sagði Þor­gerður Katrín að gagn­sæið í aðgerðum stjórn­valda þyrfti að vera „algjört því að hluti af því að kraft­ur­inn í við­spyrn­unni verði meiri í haust með fyr­ir­tækj­unum og heim­il­unum er að þær aðgerðir sem við grípum til vegna þeirra fyr­ir­tækja sem við erum að miðla fjár­magni til séu trú­verð­ugar, að traust ríki um við­spyrn­una og þannig verði kraft­ur­inn meiri. Ég beini því til hæst­virts ráð­herra að við höfum leik­regl­urnar skýrar varð­andi upp­bygg­ing­una strax frá fyrsta degi.“

[adspot]Bjarni sagð­ist geta tekið undir að það skipti mjög miklu máli að verið væri að vinna með ein­hverjar meg­in­reglur og það sé gegn­sæi um beit­ingu þeirra úrræða sem verið væri að kynna til sög­unnar. „Þannig höfum við t.d. lög­leitt eft­ir­lits­nefnd með brú­ar­lán­unum og það kemur til greina að sú nefnd fái útvíkkað hlut­verk eftir því hvernig til­lögum rík­is­stjórn­ar­innar, sem eru vænt­an­legar, verður tekið.“

Erfið fæðing brúarlána

Brú­ar­lánin, við­bót­ar­lánum lána­stofn­ana til fyr­ir­tækja í tengslum við heims­far­aldur veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum, voru kynnt sem ein helsta við­spyrnu­að­gerð stjórn­valda þegar fyrsti efna­hag­s­pakki þeirra var opin­ber­aður 21. mars, eða fyrir nær einum mán­uði síðan. Þá var þó öll útfærsla lán­anna eftir, en þau eru umdeild. Í upp­runa­legu til­lög­unum voru til að mynda engar hömlur á því að fyr­ir­tæki sem myndu fá umrædd brú­ar­lán mættu greiða arð eða kaupa upp eigin bréf.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra greindi frá því í stöðu­upp­færslu á Facebook 20. mars að málið hefði verið rætt í efna­hags- og við­skipta­nefnd og að nefndin gera til­lögur sem tryggja myndu að fyr­ir­tæki sem fengju rík­is­á­byrgð á hluta lána sinna yrði bannað að greiða út arð eða kaupa eigin hluta­bréf á meðan rík­is­á­byrgðar nýt­ur.

Katrín sagði enn fremur að skipuð yrði sér­stök eft­ir­lits­nefnd sem gefi ráð­herra og Alþingi skýrslu um fram­kvæmd brú­ar­lána sem fara í gegnum banka.

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra skipar eft­ir­lits­nefnd­ina og nefnd­ar­menn skulu, sam­kvæmt lögum, hafa þekk­ingu á mál­efnum fjár­mála­mark­aðar. For­sæt­is­ráð­herra til­nefnir einn nefnd­ar­mann í eft­ir­lits­nefnd­ina, sam­starfs­nefnd háskóla­stigs­ins einn og einn er skip­aður án til­nefn­ingar og skal hann vera for­maður nefnd­ar­innar.

Nefndin mun geta kallað eftir upp­lýs­ingum og gögnum um fram­kvæmd lána­samn­ings bæði frá Seðla­bank­anum og hlut­að­eig­andi lána­stofn­unum. Hún á að skila fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra skýrslu um fram­kvæmd­ina á sex mán­aða fresti, í fyrsta sinn fyrir 1. nóv­em­ber 2020, en jafn­framt skal hún upp­lýsa ráð­herra án tafar ef hún verður vör við brotala­mir í fram­kvæmd­inni. Ráðherra á að leggja skýrslur nefnd­ar­innar fyrir Alþingi.

Ógjaldfær fyrirtæki geta fengið milljarða lán á lágum vöxtum

Áður en að lögin um aðgerðir vegna kór­ónu­veirunnar voru afgreidd frá Alþingi var hámarks­á­byrgð hins opin­bera á brú­ar­lán­unum hækkuð úr 50 í 70 pró­sent.

Lánin sem hið opin­bera mun gang­ast í ábyrgð á geta numið allt að 70 millj­örðum króna en til að fá brú­ar­lán þarf fyr­ir­tæki að hafa upp­lifað 40 pró­sent tekju­fall. Í slíkum til­vikum má ætla að fyr­ir­tækja sé lík­lega ógjald­fært. Með ábyrgð hins opin­bera á lán­unum á að tryggja að vextir af þeim verði mjög lágir.

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið og Seðla­banki Íslands und­ir­rit­uðu fyrst samn­ing um skil­mála við fram­kvæmd á veit­ingu ábyrgða rík­is­ins á brú­ar­lánum í lok síð­ustu viku og Eft­ir­lits­stofnun EFTA (ESA) greindi frá því fyrr í dag að hún hefði sam­þykkt fyr­ir­komu­lagið.

[adspot]Samkvæmt samn­ingnum milli ríkis og Seðla­banka getur hver banki nýtt til­tek­inn hluta af heild­ar­um­fangi ábyrgð­anna. Í til­kynn­ingu vegna þessa segir að við­bót­ar­lánin verði að veita fyrir lok árs 2020 og hámarks­láns­tími frá útgáfu sé 18 mán­uðir. „Horft verður til þess að ábyrgð á ein­stökum við­bót­ar­lánum verður að hámarki 70 pró­sent. Lán til ein­staks aðila munu geta að hámarki numið tvö­földum árs­launa­kostn­aði árið 2019 og launa­kostn­aður félags verður að lág­marki hafa verið 25 pró­sent af heild­ar­rekstr­ar­kostn­aði þess árið 2019.“

Lán sem nýtur ábyrgðar frá hinu opin­bera getur hæst numið 1,2 millj­örðum króna.

Sagði gáleys­is­leg útlán hafa verið dæmd refsi­verð

Brú­ar­lánin eru umdeild af ýmsum ástæðum. Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS), benti til að mynda á það í Silfrinu í gær að hér hefði reynst flókið að koma brú­ar­lán­unum í fram­kvæmd.

Ástæðan væri meðal ann­ars sú að áhættu­fælni í íslensku fjár­málaum­hverfi væri mjög mikil á síð­ustu árum, sér­stak­lega eftir að 20 dómar hafi fallið í Hæsta­rétti Íslands eftir banka­hrunið þar sem gáleys­is­leg útlán hefðu verið dæmd refsi­verð. Nú spyrji fjár­mála­kerfið hvort að bank­arnir eigi að fara að taka á sig hluta af áhættu á lánum til fyr­ir­tækja sem væru ekki gjald­fær.

Jón Þór Ólason, lektor við laga­deild Há­skóla Íslands, sagði við mbl.is í dag að þessi ummæli Heiðrúnar Lindar væru röng. Dómarnir dragi ekki úr eðli­legri áhættu­sækni fjár­mála­fyr­ir­tækj­anna. Orðfæri Heiðrúnar Lindar væri „lög­fræði­lega rangt og hreint og beint óskilj­an­legt.“ Til að um umboðs­svik sé að ræða þurfi bæði að vera sann­aður auðgun­ar­ásetn­ing­ur og mis­notk­un á aðstöðu. Gá­leys­is­leg út­lán leiði ekki til refsi­á­byrgðar fyr­ir umboðs­svik.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár