360-370 manns þurfa í sóttkví vegna þriggja smita

Yfir­maður smitrakn­ing­arteym­is­ins segir að 360-370 manns þurfi að fara í sótt­kví vegna þriggja smita sem greinst hafa hér á landi síð­ustu daga. Hann segir unnið „á fullu“ að því að hafa sam­band við fólkið.

Ævar Pálmi Pálmason er yfirmaður smitrakningateymis almannavarna.
Ævar Pálmi Pálmason er yfir­maður smitrakn­ingateymis almanna­varna. Mynd: Lögreglan

Milli 360-370 manns þurfa að fara í sótt­kví vegna þriggja kór­ónu­veirusmita sem greinst hafa hér á landi síð­ustu daga. Meðal ann­ars er um að ræða fót­boltalið og gesti í veislum sem áttu í sam­neyti við hina smit­uðu.

Þetta stað­festir Ævar Pálmi Pálmason, yfir­maður smitrakn­ing­arteym­is­ins og aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn, við Kjarnann.

Hann segir að í dag hafi verið unnið að því „á fullu“ að hafa sam­band við fólk sem þarf að fara í sótt­kví.

Ævar sagði í við­tali við Kjarnann í gær að ekki væri hægt að full­yrða að knatt­spyrnu­kona í Breiða­bliki hefði smit­ast erlendis og borið smit hingað. Mögulega hefði hún smit­ast hér á landi. Hún kom til lands­ins frá Banda­ríkj­unum þann 17. júní og reynd­ist nei­kvæð í landamæra­skimun. Í kjöl­farið lék hún tvo fót­bolta­leiki og fór í útskrift­ar­veislu.

Þann 23. júní fór hún aftur í skimun, eftir að hafa fengið upp­lýs­ingar um að her­berg­is­fé­lagi hennar ytra hefði greinst með veiruna. Þá var stað­fest að hún var sýkt af veirunni.

[links]Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra, sagði í fréttum RÚV í gær að upp­runi hópsmits­ins, kunni að vera allt annar en talið var. Starfs­fólk Íslenskrar erfða­grein­ingar vinnur nú að því að kom­ast að hinu sanna.

Samkvæmt upp­lýs­ingum sem birtar voru á covid.is í dag voru í gær ell­efu virk smit hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár