Nýjustu smitin „mjög harkaleg áminning“

Ekki er úti­lokað að leik­maður Breiða­bliks hafi smit­ast af veirunni hér á landi þótt lík­legra sé að það hafi gerst í Banda­ríkj­unum, segir yfir­maður smitrakn­ing­arteym­is­ins. Samkvæmt leið­bein­ingum KSÍ skulu leik­menn ekki fagna mörkum með snert­ingu.

Kórónuveiran smitast við snertingu. Handþvottur og nándarmörk eru bestu aðferðirnar við að hindra útbreiðsluna
Kór­ónu­veiran smit­ast við snert­ingu. Hand­þvottur og nánd­ar­mörk eru bestu aðferð­irnar við að hindra útbreiðsl­una Mynd: Pexels

„Það er talið að hún hafi komið með smitið frá Banda­ríkj­unum en það er ekki hægt að úti­loka að hún hafi smit­ast af ein­hverjum öðrum í fjöl­mennum fót­bolta­leikjum og útskrift­ar­veislu sem hún sótti.“

Þetta segir Ævar Pálmi Pálmason, yfir­maður smitrakn­ing­arteym­is­ins og aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn, um smit sem greind­ist hjá konu í knatt­spyrnu­liði Breiða­bliks fyrr í vik­unni. Tvö inn­an­lands­smit hafa greinst í kjöl­farið. „En hver smit­aði hvern er aldrei hund­rað pró­sent öruggt.“

Konan kom til Íslands frá Banda­ríkj­unum 17. júní. Nið­ur­staða úr landamæra­skimun fyrir veirunni var nei­kvæð. Nokkrum dögum eftir heim­kom­una fékk hún fregnir af því að her­berg­is­fé­lagi hennar ytra hefði greinst með veiruna. Hún fór þá sjálf í sótt­kví og fékk svo nið­ur­stöðu úr annarri skimun og reynd­ist hún jákvæð. Í milli­tíð­inni hafði hún hins vegar leikið tvo fót­bolta­leiki og farið í útskrift­ar­veislu.

[adspot]

Í gær­kvöldi voru 210 manns komnir í sótt­kví vegna þessa eina smits. Sá fjöldi kann að breyt­ast, hann getur að sögn Ævars átt eftir að minnka en einnig er mögu­legt að hann auk­ist. Hópurinn sem kom­inn er í sótt­kví er á nokkuð breiðu ald­urs­bili þó að kjarn­inn sé ungt fólk. Um umfangs­mestu smitrakn­ingu frá upp­hafi er að ræða. Að sögn Ævars var hún nokkuð flókin og leggj­ast þurfti í tals­verða grein­ingar- og rann­sókn­ar­vinnu til að hafa uppi á fólki.

Í smitrakn­ing­arteym­inu eru nú þrír starfs­menn að stað­aldri en í gær var kallað inn fólk til aðstoðar og átta unnu því að rakn­ing­unni.

Það er orðið nokkuð síðan að Íslend­ingar áttu von á sím­tölum frá rakn­ing­arteym­inu um að það þurfi að fara í sótt­kví. „Fólk tekur þessum sím­tölum almennt ágæt­lega,“ segir Ævar, „og áttar sig á alvar­leika máls­ins og er í raun­inni þakk­látt að við náum til þess svona fljótt.“

Ævar segir vara­samt að tala um að ákveð­inn ein­stak­lingur sé að smita aðra og verða til þess að fjöldi manns fari í sótt­kví. „Því það er alltaf erfitt að full­yrða hver smit­aði hvern. Sá sem að fer fyrstur í sýna­töku og grein­ist fyrstur er ekki endi­lega sá sem smit­aði þann sem næstur fer.“

Hann gagn­rýnir, af þessum sökum, að nafn kon­unnar hafi verið birt í fjöl­miðlum. Hann ítrekar að þó að það sé lík­legt að hún hafi smit­ast erlendis sé ekki hægt að úti­loka að hún hafi smit­ast eftir að hún kom til lands­ins. Það margir dagar liðu frá landamæra­skimun­inni.

„Af því að ég er nú rann­sókn­ar­lög­reglu­maður að upp­lagi þá er þetta næstum því sam­bæri­legt við það að ein­hver myndi ganga inn til okkar og játa á sig glæp. En það verður alltaf að skoða alla hina mögu­leik­ana.“

Æskilegt að fara varlega í tvær vikur

Í leið­bein­ingum yfir­valda varð­andi landamæra­skimun kemur fram að ef fólk mælist ekki með veiruna á próf­inu sé samt „æski­legt“ að fara var­lega fyrstu fjórtán dag­ana „því nið­ur­stöður prófs­ins eru ekki alveg óyggj­andi“.

Einnig segir: „Allir ferða­menn eru hvattir til að gera var­úð­ar­ráð­staf­anir til að vernda sjálfa sig og aðra, s.s. tíðan hand­þvott, notkun sótt­hreinsi­efna, tveggja metra nánd­ar­regl­una og að virða þær heil­brigðis- og örygg­is­reglur sem í gildi eru.“

Eftir því hefur verið tekið síð­ustu daga að á fót­bolta­leikjum eru leik­menn liða að fagna mörkum með faðm­lögum. „Ég held að eina fólkið sem ekki tekur þátt í því [inni á vell­inum] séu dóm­ar­arnir, þeir passa sig,“ segir Ævar.

[adspot]

Hann segir það til­finn­ingu flestra sem talað hefur verið við vegna þess­arar smitrakn­ingar að lands­menn hafi sofnað á verð­inum og séu orðnir kæru­lausir. Spritt­brúsar sjá­ist ekki í sumum versl­unum og merk­ingar á gólfum um tveggja metra regl­una hafi verið fjar­lægðar. „Svo heyrir maður sögur af því að það sé rokið á fólk og það faðmað og tekið í hend­ina á því áður en það veit af. Fólk er óör­uggt um hvað á að gera, hvort það eigi að við­halda þessum reglum eða ekki.“

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir hefur hins vegar hamrað áfram á því að fólk þurfi að gæta að sótt­vörnum – veiran sé enn á sveimi. „Þessi smit sem eru að koma upp núna eru mjög harka­leg áminn­ing um það að við þurfum að halda því áfram.“

Beðið upplýsinga áður en ákvarðanir teknar

Klara Bjartmarz, fram­kvæmda­stjóri KSÍ, sagði í sam­tali við Kjarnann í morgun að sam­bandið væri í bið­stöðu á meðan sótt­varna­yf­ir­völd færu yfir málin sem upp eru komin vegna smita meðal leik­manna knatt­spyrnu­lið­anna. Í gær­kvöldi kom fram í fréttum að leik­maður í karla­liði Stjörn­unnar hefði greinst með veiruna og stað­festir Klara það. „Núna erum við að bíða frek­ari upp­lýs­inga, bæði um hvort og þá hversu margir leik­menn Stjörn­unnar þurfa að fara í sótt­kví. Síðan tökum við ákvörðun um fram­haldið.“

Í morgun sagði hún sam­bandið því ekki enn hafa for­sendur til þess að ákveða hvort að ein­hverjum leikjum verði frestað eða aflýst vegna smit­anna. Spurð hvort að ein sviðs­myndin sé sú að slá því sem eftir er af leik­tíð­inni á frest segir hún: „Við erum langt frá því að vera þar. Eins og staðan er núna erum við að glíma við ein­angruð til­felli. Okkar allra vegna bindum við vonir við að það verði nið­ur­staðan. Þetta snýst um miklu meira heldur en fót­bolt­ann.“

Spurð hvort starfs­mönnum KSÍ sé brugðið vegna fregna af smitum innan hreyf­ing­ar­innar bendir hún á að talað sé um hópsmit „og að sjálf­sögðu tökum við þessum fréttum mjög alvar­lega og gerum hvað við getum til að vinna þetta eins vel og við getum“.

Það hefur vakið athygli að leik­menn eru að fagna inni á vell­inum með faðm­lögum og þar fram eftir göt­unum, eru til ein­hverjar reglur um þetta hjá KSÍ?

Klara segir að á heima­síðu KSÍ séu leið­bein­ingar til félaga vegna COVID-19 sem séu upp­færðar reglu­lega. Hún segir þær hafa verið kynntar mjög vel. Í þeim segir m.a.: „Leikmenn og starfs­menn fagna mörkum án snert­ingar.“

„En ég held að fót­bolt­inn sé ekk­ert frá­brugð­inn öðru í þjóð­fé­lag­inu að þessu leyti,“ bendir Klara á. „Ég og þú vitum það alveg að það eru allir byrj­aðir að slaka á.“

Hún segir stjórn­endur KSÍ hafa haft áhyggjur af því und­an­farið að fólk sé farið að slaka á sótt­vörnum. Spurð hvort KSÍ hafi þá gert athuga­semdir við þá nánd sem leik­menn hafa sýnt inni á vell­inum segir hún svo ekki vera. En strax í gær hafi var­úð­ar­orð verið ítrekuð. „Þetta eru leið­bein­ingar og til­mæli. Þetta eru ekki reglur. Við höfum enga lög­sögu í slíkum málum [varð­andi sótt­varn­ar­svæði og annað].“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár