Ríkið stefnir að því að selja Íslandsbanka

Fjár­mála­ráðu­neytið hefur sam­þykkt nýja eig­enda­stefnu fjár­mála­fyr­ir­tækja, en hún felur í sér að selja allan eign­ar­hlut sinn í Íslands­banka.

Íslandsbanki verður að fullu einkavæddur, samkvæmt nýsamþykktri eignastefnu
Íslands­banki verður að fullu einka­væddur, sam­kvæmt nýsam­þykktri eigna­stefnu Mynd: Birgir Þór Harðarsson

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið til­kynnti í dag að ný eig­enda­stefna fyrir fjár­mála­fyr­ir­tæki í eigu rík­is­sjóðs hafi tekið gildi eftir að hún hafi verið sam­þykkt af rík­is­stjórn. Í til­kynn­ing­unni segir að mark­mið stefn­unnar séu að tryggja góða og fyr­ir­sjá­an­lega stjórn­ar­hætti fjár­mála­fyr­ir­tækja. 

Um er að ræða upp­færða eig­enda­stefnu fyrir fjár­mála­fyr­ir­tæki í eigu rík­is­ins, en fyrsta stefnan var sett fram árið 2009. Í ljósi stöðu þeirrar tíma var mark­mið þeirrar stefnu því að byggja upp almennt traust á stjórn og starf­semi rík­is­rek­inna fjár­mála­fyr­ir­tækja, sam­kvæmt ráðu­neyt­inu.

Stefnan gildir fyrir fjögur fyr­ir­tæki: Lands­bank­ann, Íslands­banka, Arion banka og Spari­sjóð Aust­ur­lands.

Stefnt er að því að rík­is­sjóður eigi 34-40% eign­ar­hlut í Lands­bank­anum til lang­frama í því skyni að „stuðla að stöð­ug­leika í fjár­mála­kerfi lands­ins og tryggja nauð­syn­lega inn­viði þess“.

Á hinn bóg­inn er stefnt að því að selja allan eign­ar­hlut rík­is­ins í Arion banka þegar hag­felld og æski­leg skil­yrði eru fyrir hendi. Salan muni að öllum lík­indum eiga sér stað í tengslum við sölu meiri­hluta­eig­and­ans og skrán­ingu bank­ans á hluta­bréfa­markað.

Einnig stendur til sam­kvæmt stefn­unni að selja allan hlut rík­is­ins í Íslands­banka þegar nægi­leg skil­yrði eru fyrir hendi. Arð­greiðslum og sölu­and­virði bank­ans skuli ráð­stafað til nið­ur­greiðslu skulda rík­is­sjóðs, sam­kvæmt stefn­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár