Forseti Brasilíu greinist með COVID-19 en segist ekkert óttast

Jair Bol­son­aro for­seti Brasilíu greindi frá því í dag að hann hefði greinst með COVID-19, en hann hefur fundið fyrir slapp­leika frá því á sunnu­dag. For­set­inn hefur kallað veiruna aumt kvef, en 65.000 Bras­il­íu­menn liggja í valnum eftir að hafa smit­ast.

Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu.
Jair Bol­son­aro, for­seti Brasilíu. Mynd: EPA

Jair Bol­son­aro, for­seti Brasilíu, hefur greinst með kór­ónu­veiruna, en hann fór í sýna­töku í gær­kvöldi eftir að hafa fundið fyrir slapp­leika, þreytu og hita frá því á sunnu­dag. For­set­inn hefur verið harð­lega gagn­rýndur und­an­farnar vikur og mán­uði fyrir við­brögð sín við heims­far­aldr­inum, en yfir 65.000 Bras­il­íu­menn hafa lát­ist eftir að hafa smit­ast af COVID-19 til þessa og 1,6 millj­ónir manna smit­ast.

For­set­inn sagði blaða­mönnum sjálfur frá því í dag að sýnið hefði reynst jákvætt, en hann lagði áherslu á að honum liði vel. Samkvæmt frétt New York Times ræddi for­set­inn við blaða­menn úr nokk­urra metra fjar­lægð fyrir utan for­seta­höll­ina um hádeg­is­bil í dag. Hann sagði að honum líði vel sökum þess að hann hefur verið að taka malar­íu­lyfið hydroxycloroquine, sem rann­sóknir hafa reyndar sýnt fram á að gerir lítið í bar­átt­unni við veiruna.

For­set­inn sagði að það væri engin ástæða til að ótt­ast. Svona væri bara lífið og lífið myndi halda áfram. Bol­son­aro hefur ítrekað gert lítið úr alvar­leika far­ald­urs­ins og kallað kór­ónu­veiruna lítið annað en aumt kvef, sem hann sjálfur myndi standa af sér af því að hann væri hraustur.

Við­brögðin í Brasilíu hafa tekið nokkuð mið af því, en Bol­son­aro hefur verið í hörðum slag gegn bæði fylk­is­stjórum og borg­ar­stjórum sem hafa gengið lengra í sam­komu­tak­mörk­unum en hann sjálfur hefur viljað. Brasilía hefur auk þess haft þrjá heil­brigð­is­ráð­herra síðan að far­ald­ur­inn kom upp, Bol­son­aro spark­aði einum í apríl og annar hætti í maí eftir ein­ungis mánuð í starfi.

For­set­inn hefur sagt að efna­hagur lands­ins þoli ekki að staðna og hefur líkt veirunni við rign­ingu sem ómögu­legt sé að sleppa undan. Í gær slak­aði hann á lögum sem skylda Bras­il­íu­menn til þess að bera grímur á almanna­færi, en hann sjálfur hefur ofsinnis sleppt því að bera grímu er hann sést opin­ber­lega, jafn­vel þrátt fyrir að það sé skylda á þeim stöðum sem hann heim­sækir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár