Kerecis verður áfram gert út frá Ísafirði

Eftir söl­una á Kerecis á Ísafirði fyrir metfé fyrr í júlí hafa vaknað vanga­veltur hjá ein­hverjum um hvort sagan um Gugguna gulu muni end­ur­taka sig. Guð­mundur Fertram Sig­ur­jóns­son, stofn­andi fyr­ir­tæk­is­ins, segir að svo sé ekki því mark­aðs­leyfi fyr­ir­tæk­is­ins í Banda­ríkj­unum sé bundið við vörur frá Ísafirði.

Markaðsleyfið bundið við Ísafjörð
Mark­aðs­leyfið bundið við Ísafjörð Guð­mundur Fertram Sig­ur­jóns­son, stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri Kerecis, segir að mark­aðs­leyfi fyr­ir­tæk­is­ins frá Banda­ríska lyfja­eft­ir­lit­inu (FDA) sé bundið við vörur frá Ísafirði.

Leyfi líf­tækn­i­s­fyr­ir­tæk­is­ins Kerecis frá Banda­ríska lyfja­eft­ir­lit­inu (FDA) til að selja sára­vörur sínar úr þorskroði í Banda­ríkj­unum er bundið við að hrá­efnið og fram­leiðslan komi frá verk­smiðj­unni á Ísafirði. Þetta kemur fram í svari frá Guðmundi Fertram Sig­ur­jóns­syni, fram­kvæmda­stjóra og stofn­anda Kerecis. Fyr­ir­tækið er því ekki á leið frá Ísafirði segir hann. 

Eftir sölu á Kerecis til alþjóð­lega stór­fyr­ir­tæk­is­ins Kerecis hafa vaknað upp spurn­ingar um hvort þetta þýði mögu­lega að verk­smiðj­unni á Ísafirði verði lokað og starf­semin flutt annað með til­heyr­andi skaða fyrir starfs­menn og sam­fé­lagið fyrir vestan. Salan á fyr­ir­tæk­inu hefur verið sett í sam­hengi við það þegar tog­ar­inn Guð­björgin var seldur til Samherja í lok síð­ustu aldar og fyr­ir­heit um að gera hann áfram út frá Ísafirði urðu að engu. 

70 starfs­menn vinna hjá Kerecis á Ísafirði og er fyr­ir­tækið því einn stærsti einka­rekni atvinnu­rek­and­inn á Vest­fjörðum.  Samtals starfa 160 manns hjá Kerecis í nokkrum löndum og er því rúmur þriðj­ungur stað­settur í þessu litla sveit­ar­fé­lagi fyrir vestan. 

Kerecis og Guð­björginSamkvæmt svörum stofn­anda Kerecis verða örlög fyr­ir­tæk­is­ins í bænum ekki eins og örlög tog­ar­ans Guð­bjarg­ar­innnar eða Gugg­unnar á sínum tíma.

Þegar Guggan var ekki lengur gerð út frá Ísafirði

Ummælin um Guð­björg­ina, eða Gugguna eins og skipið var yfir­leitt kallað, eru með þeim fleyg­ari í íslenskri sam­tíma­sögu.

Eins og Halldór Hall­dórs­son, þáver­andi bæj­ar­stjóri á Ísafirði orð­aði stefnu­breyt­ing­una hjá Samherja á sínum tíma: „Þeir gáfu þá yfir­lýs­ingu á fundi með full­trúa bæj­ar­stjórnar á sínum tíma, og það kom í heima­fjöl­miðlum að engin breyt­ing yrði. Guð­björgin yrði áfram Guð­björgin og gerð út frá Ísafirði, eða eins og þeir sögðu: „Guggan verður áfram gul og gerð út frá Ísafirði.“ Það gleymd­ist að taka það fram að hún myndi heita Hannover, gerð út frá Þýska­landi og yrði lengd um 18 metra.“

Þessari sögu um Gugguna var svo gerð þekkt skil með stíl­færðum hætti í þátt­unum Ver­búð­inni sem sýndir voru á RÚV á fyrra hluta síð­asta árs. 

„Mark­aðs­leyfi okkar í Banda­ríkj­unum er bundið við afurð­irnar frá Ísafirði, aðferðir og ferla í hátækni­setri Kerecis þar og meira að segja við sjálfan fiski­stofn­inn
Guð­mundur Fertram Sig­ur­jóns­son,
stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri Kerecis

Flutningur á framleiðslunni tæki mörg ár

Guð­mundur Fertram segir í svari til Heim­ild­ar­innar að áhyggjur af því að starf­semi Kerecis verði ekki áfram á Ísafirði séu óþarfar: „Mark­aðs­leyfi okkar í Banda­ríkj­unum er bundið við afurð­irnar frá Ísafirði, aðferðir og ferla í hátækni­setri Kerecis þar og meira að segja við sjálfan fiski­stofn­inn – vest­firska þorskinn sem er veiddur á til­teknu svæði. Við höldum mark­aðs­leyf­inu við með marg­vís­legri vöktun og skýrslu­gjöf, t.d. um magn snefil­efna og bakt­ería á fiski­mið­unum o.fl.  Það væri því mjög flókið, erfitt og tíma­frekt að að flytja fram­leiðsl­una, slíkt tæki mörg ár og ótal heim­sóknir frá úttekt­ar­að­il­unum. Þar að auki byggir allt mark­aðs­efnið okkar á upp­runa vör­unnar; norð­ur­slóðum og bænum sjálfum, sjálf­bærni við nýt­ingu á fiski­stofnum, orku­nýt­ing­unni o.s.frv...,“ segir hann í skrif­legu svari til Heim­ild­ar­innar. 

Guð­mundur Fertram er sjálfur skuld­bund­inn til að vera fram­kvæmda­stjóri Kerecis næstu tvö árin eftir söl­una. 

Starfsemin í Bandaríkjunum byggir á leyfum FDA 

Banda­ríska lyfja­eft­ir­litið hefur ratað í fréttir hér á landi að unda­förnu vegna til­rauna lyfja­þró­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Alvotech til að fá leyfi til að selja lyfið Humira þar í landi. Framtíð Alvotech byggir á því að þetta mark­aðs­leyfi fáist því aðeins þá getur félagið sett Humira á markað í Banda­ríkj­unum, sem er risa­vax­inn mark­aður. Alvotech hefur nú ítrekað verið synjað um þetta mark­aðs­leyfi í Banda­ríkj­unum, með til­heyr­andi verð­falli á hluta­bréfa­verði þess og vænt­ingum í kringum það. 

Rétt eins og fram­tíð Alvotech byggir á mark­aðs­leyf­inu frá banda­rísku ston­fun­inni þá skipti það Kerecis öllu máli að kom­ast með sínar sára­um­búðir inn á Banda­ríkja­markað. Umbúðir félags­ins eru seldar til sjúkra­húsa vítt og breitt um landið sem og til rík­is­stofn­ana eins og Pentagon, fyrir banda­ríska her­inn.  Megnið af söl­unni á vörum Kerecis fer fram í Banda­ríkj­unum og í Zurich: „Meg­in­hluti sölu­að­gerða félags­ins eru fram­kvæmdar í gegnum banda­ríska og sviss­neska dótt­ur­fé­lagið. Banda­ríska dótt­ur­fé­lagið er stað­sett í Washington D.C. og sviss­neska dótt­ur­fé­lagið í Zurich. Rann­sókna og þró­un­ar­starf­semi félags­ins er að mestu leyti starf­rækt í Reykja­vík, Íslandi. Fram­leiðsla fer fram í starf­stöð félags­ins á Ísafirði, Íslandi.“

Í árs­reikn­ingi Kerecis fyrir árið 2022 segir að félagið hafi fengið tvær nýjar lækn­inga­vörur sam­þykktar í fyrra - þetta er það sem Alvotech er að reyna að fá í gegn með Humira sem skiptir félagið svo miklu máli. Þá vinnur fyr­ir­tækið að því að fá frek­ari lækn­inga­vörur sam­þykktar hjá FDA á þessu ári: „Vöru­þró­un­ar­starf­semi á árinu 2022 leiddi til tveggja nýrra FDA sam­þykkta. Eitt fyrir útvortis sára­lyf og eitt fyrir notkun vöru í munni við skurð­að­gerðir. Umtals­verðar próf­anir á dýrum voru gerðar árið 2022 í tengslum við næstu kyn­slóðir efna fyr­ir­tæk­is­ins sem styður fyr­ir­hug­aða inn­send­ingu FDA árið 2023.“

Samkvæmt þessu, og svörum Guð­mundar Fertrams, byggja leyf­is­veit­ingar FDA til Kerecis á því að fram­leiðslan á vör­unni fari fram á Ísafirði og að þar af leið­andi verði hún áfram þar. 

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár