„Læðist að manni sterkur og rökstuddur grunur að þrýstingur Sjálfstæðisflokksins hafi orðið ofan á“

Athygli vekur að þing­menn Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks­ins hafi ekki stutt bókun á fundi utan­rík­is­mála­nefndar Alþingis í morgun þar sem hvers kyns árásir á óbreytta borg­ara í átökum und­an­farna daga á svæðum Ísraels og Palest­ínu­manna voru for­dæmdar.

Mótmæli við Hörpu í gær til stuðnings Palestínumönnum.
Mótmæli við Hörpu í gær til stuðn­ings Palest­ínu­mönnum. Mynd: Bára Huld Beck

Þingmenn Sam­fylk­ing­ar­innar, Við­reisnar og Mið­flokks­ins í utan­rík­is­mála­nefnd hvetja til þess að utan­rík­is­ráð­herrar Norð­ur­landa beiti sér sam­eig­in­lega á alþjóð­legum vett­vangi í kröf­unni um taf­ar­laust vopna­hlé á svæðum Ísraels og Palest­ínu­manna og að rík­is­stjórn Íslands beiti sér fyrir að neyð­ar­að­stoð og hjálp­ar­gögn kom­ist til nauð­staddra á svæð­inu.

Þetta kemur fram í bókun sem lögð var fram á fundi utan­rík­is­mála­nefndar Alþingis í morgun. Áheyrn­ar­full­trúi Pírata studdi bók­un­ina en þing­menn VG, Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks í utan­rík­is­mála­nefnd gerðu það ekki. Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og nefnd­ar­maður í utan­rík­is­mála­nefnd, segir í sam­tali við Kjarnann að það læð­ist að henni sá grunur að þrýst­ingur Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi orðið ofan á og orðið þess vald­andi að þing­menn þess­ara flokka hafi ekki verið á bók­un­inni.

„Þingmenn utan­rík­is­mála­nefndar for­dæma hvers kyns árásir á óbreytta borg­ara í átökum und­an­farna daga á svæðum Ísraels og Palest­ínu­manna. Þing­menn­irnir leggja áherslu á að alþjóða­lög og mann­rétt­indi séu virt í hví­vetna og að öryggi almenn­ings verði tryggt. Ólíðandi er að loft­árásum sé beitt gegn sak­lausum borgum þar sem fjöldi barna hefur látið lífið í verstu stríðs­á­tökum á svæð­inu síðan 2014,“ segir í bók­un­inni.

[links]Þá kemur fram að þing­menn nefnd­ar­innar harmi að eld­flauga­árásum sé beint gegn óbreyttum borg­urum. „Alþjóða­sam­fé­lagið verður að gefa skýr skila­boð um að leggja eigi niður vopn strax og að frið­sam­legar lausnir í deil­unni milli Ísrael og Palest­ínu sé eina lausnin. Ísland á í sér­stöku sam­bandi við bæði Palest­ínu og Ísrael. Ísland var fyrsta vest­ræna ríkið til að við­ur­kenna sjálf­stæði og full­veldi Palest­ínu með sam­hljóða sam­þykkt Alþingis 2011 en Ísland lék einnig sér­stakt hlut­verk þegar Ísrael varð full­valda ríki árið 1948. Þing­menn­irnir hvetja til þess að utan­rík­is­ráð­herrar Norð­ur­landa beiti sér sam­eig­in­lega á alþjóð­legum vett­vangi í kröf­unni um taf­ar­laust vopna­hlé og að rík­is­stjórn Íslands beiti sér fyrir að neyð­ar­að­stoð og hjálp­ar­gögn kom­ist til nauð­staddra á svæð­inu.“

Mjög mikilvægt að skýr skilaboð komi frá nefndinni

Rósa Björk segir að það sé merki­legt að sjá að þing­menn VG og Fram­sókn­ar­flokks­ins hafi ekki treyst sér til að vera á þess­ari bókun í ljósi stefnu VG frá stofnun flokks­ins og sögu Fram­sókn­ar­flokks­ins í málum Palest­ínu­manna.

„Það læð­ist að manni sterkur og rök­studdur grunur að þrýst­ingur Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi orðið ofan á og orðið þess vald­andi að þing­menn þess­ara flokka hafi ekki verið á bók­un­inni. Aftur á móti er fagn­að­ar­efni að þing­menn ann­arra flokka hafi verið með á henni.“

Hún segir það vera mjög mik­il­vægt að skýr skila­boð komi frá nefnd­inni þegar utan­rík­is­ráð­herrar Banda­ríkj­anna og Rúss­lands funda hér á landi, sér­stak­lega í ljósi þess að þing­menn hafa ekki tæki­færi til að tala beint við þá.

Athuga­semd rit­stjórnar: Í fyrri útgáfu frétt­ar­innar sagði að meiri­hluti nefnd­ar­innar stæði að bók­un­inni. Það er ekki rétt, heldur er rétt­ara að tala um þing­menn nefnd­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár