Finnst ómaklega vegið að nefndarmönnum

Formaður utan­rík­is­mála­nefndar telur að þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar hafi ómak­lega vegið að nefnd­ar­mönnum nefnd­ar­innar á þingi í dag. Bókanir nefnda séu ekki til að lýsa afstöðu til til­tek­inna mála.

Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra.
Sigríður Á. Andersen, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Sigríður Á. Andersen, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður utan­rík­is­mála­nefndar Alþingis, segir að Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og nefnd­ar­maður, hafi ómak­lega vegið að öðrum þing­mönnum í nefnd­inni þegar hún sagði að þing­menn VG og Fram­sókn­ar­flokks­ins hefðu ekki „treyst sér“ til að vera með á bókun sem lögð var fram og sam­þykkt af þing­mönnum hinna flokk­anna í morgun.

Þetta kom fram í máli Sigríðar á þingi í dag. Þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins í nefnd­inni gagn­rýnir einnig orð Rósu Bjarkar og segir í sam­tali við Kjarnann að sam­þykkt bók­unar í nefndum hafi ekk­ert með það að gera hver afstaða ein­stakra þing­manna sé.

Kjarninn greindi frá því í dag að athygli hefði vakið að þing­menn Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks­ins hefðu ekki stutt bókun á fundi utan­rík­is­mála­nefndar Alþingis í morgun þar sem hvers kyns árásir á óbreytta borg­ara í átökum und­an­farna daga á svæðum Ísraels og Palest­ínu­manna voru for­dæmdar.

Rósa Björk gerði málið enn fremur að umræðu­efni undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag en þar sagði hún að það væri með ólík­indum að þing­menn VG og Fram­sókn­ar­flokks­ins hefðu „ekki treyst sér til þess að taka ein­arða afstöðu með mann­rétt­indum“ en hefðu „lagst undir hæl Sjálf­stæð­is­manna þegar kemur að því að veigra sér við því ein­falda hlut­verki að bóka á fundi utan­rík­is­mála­nefndar“.

Þingmenn taki ekki afstöðu með bókunum

Sigríður mót­mælir þessum orðum þing­manns­ins og segir að Rósa Björk hafi látið að því liggja að efn­is­leg afstaða sumra nefnd­ar­manna væri slík að þeir treystu sér ekki til þess að vera með þess­ari bókun.

[links]„Þarna finnst mér ómak­lega vegið að nefnd­ar­mönnum í hátt­virtri utan­rík­is­mála­nefnd og vil nefna það hér að til­gangur bókanna fasta­nefnda Alþingis er að bóka afstöðu manna til afgreiðslu til­tek­inna mála – fyr­ir­vara sem þing­menn hafa. Að öðru leyti taka þing­menn afstöðu til mála hvers lags eðli sem þau eru, með afstöðu til þing­mála hér í þing­sal en ekki með bók­unum af þessu tagi,“ sagði hún.

Telur Sigríður enn fremur að ómak­lega sé að rík­is­stjórn­inni vegið „þegar látið er að því liggja að þing­menn stjórn­ar­flokk­anna treysti sér ekki til þess að taka þátt í bók­unum sem þessum“.

Hafa miklar áhyggjur af þessum málum

Silja Dögg Gunn­ars­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og nefnd­ar­maður í utan­rík­is­mála­nefnd, segir í sam­tali við Kjarnann að hún taki undir þessi orð Sigríðar og telur hún orð Rósu Bjarkar vera ósann­gjörn um að þing­menn hafi ekki treyst sér til að vera með á bók­un­inni.

„Við í Fram­sókn­ar­flokknum höfum miklar áhyggjur af þessum málum – en hvort að það sé við hæfi út frá þing­sköpum eða hefðum að leggja fram bókun eða ekki hefur ekk­ert með það að gera hvort fólk hafi miklar áhyggjur og syrgi það sem er að ger­ast. Það hefur ekk­ert með það að gera,“ segir hún.

Bendir hún jafn­framt á yfir­lýs­ingu Fram­sókn­ar­flokks­ins varð­andi átök Palest­ínu­manna og Ísra­els­manna en í henni segir að þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks for­dæmi harð­lega árásir ísra­elska hers­ins á Palest­ínu­menn á Gaza strönd­inni. „Fórn­ar­lömbin eru helst íbúar Palest­ínu, óbreyttir borg­arar, konur og börn. Árásir ísra­elska hers­ins eru gróft brot á alþjóða­samn­ingum, alþjóða­lögum og glæpur gegn mannúð,“ segir meðal ann­ars í yfir­lýs­ing­unni.

Bókanir gerðar við afgreiðslu mála – ekki til að lýsa afstöðu í tilteknum málum

Silja Dögg segir að þau hafi gert grein fyrir því á fundi utan­rík­is­mála­nefndar af hverju þau hefðu ekki verið með á bók­un­inni.

„Mér finnst að okkur vegið,“ segir hún í fram­hald­inu. Varðandi það af hverju þau hafi ekki verið með á bók­un­inni þá bendir hún á að hefðin sé sú á Alþingi að bók­anir séu gerðar við afgreiðslu mála – en ekki til að lýsa afstöðu í til­teknum málum. Til þessi noti þing­menn ann­ars vegar ræðu­stól­inn og hins vegar leggi þeir fram þing­mál, til að mynda þings­á­lykt­anir.

Í reglum um frá­gang fund­ar­gerða fasta­nefnda Alþingis segir um bók­anir um með­ferð máls og afgreiðslu þess að ein­stakir nefnd­ar­menn geti óskað eftir að gera bókun um afstöðu til þeirra mála sem til umræðu eru eða afgreiðslu þess, sem skrá skal í fund­ar­gerð. Bókanir skulu vera afmark­aðar og hnit­mið­aðar.

„Þannig að þetta er ekki venjan og strangt til tekið hefð­bundin þing­sköp. Og þetta hefur ekk­ert með það að gera hver afstaða ein­staka þing­manna sé til þess sem er að ger­ast á þessu svæði núna,“ segir hún.

Vinstri græn fordæmdu valdníðslu í fyrirlýsingu

Þing­flokkur Vinstri grænna sendi einnig frá sér yfir­lýs­ingu í síð­ustu viku þar sem hann for­dæmdi vald­níðslu, margend­ur­teknar land­tökur og brott­vís­anir palest­ínskra heima­manna úr byggðum sem svo eru eyði­lagðar og lagðar undir ísra­elska land­töku­menn. Í yfir­lýs­ing­unni segir að þær séu gróf brot á alþjóða­samn­ingum, alþjóða­lögum og mann­rétt­indum.

„Þá eru harka­leg við­brögð Ísra­els­stjórnar við eld­flauga­skotum af Gaza strönd til Ísraels, loft­árásir með full­komnum vopnum (eða mann­lausum dráp­stækjum) á ofur þétt­býl svæði Palest­ínu­manna, óverj­andi. Lög­reglu­að­gerðir ísra­el­skra yfir­valda gegn mót­mæl­endum í Jer­úsalem eru einnig óverj­andi.

Vinstri græn hafi ávallt lagt áherslu á nauð­syn þess að leitað sé frið­sam­legra lausna í deil­um fyr­ir botni Mið­jarðar­hafs. Raun­veru­leg­ur friður kom­ist aldrei á með vopna­valdi og kúg­un og mik­il­vægt sé að standa vörð um alþjóða­lög og brjóta ekki á mann­rétt­ind­um íbúa svæðis­ins,“ segir í yfir­lýs­ingu þing­flokks­ins.

Þá minntu þau jafn­framt á sam­þykkt Alþing­is Íslend­inga frá 2011 um viður­kenn­ingu á sjálf­stæði og full­veldi Palest­ínu og þar með rétt þeirra til eigin ríkis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár