Hvaða skýrsla um skýrslur er þetta eiginlega?

Síðdegis á föstu­dag birt­ist skýrsla sem Alþingi óskaði eftir í jan­úar árið 2018, um það hvernig fram­kvæmda­valdið hefði brugð­ist við ábend­ingum sem finna mætti í þremur rann­sókn­ar­skýrslum Alþingis, þar á meðal þeirri stóru um fall bank­anna.

Rannsóknarskýrsla Alþingi kom út árið 2010. Alls fann framkvæmdavaldið 249 ábendingar sem lúta að stjórnsýslunni við yfirferð sína á skýrslunni og segir að brugðist hafi verið við flestum.
Rann­sókn­ar­skýrsla Alþingi kom út árið 2010. Alls fann fram­kvæmda­valdið 249 ábend­ingar sem lúta að stjórn­sýsl­unni við yfir­ferð sína á skýrsl­unni og segir að brugð­ist hafi verið við flestum. Mynd: kjarninn_myndir

Síðdegis á föstu­dag skil­aði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra skýrslu til Alþingis, sem beðið hefur verið í næstum því þrjú ár. Beiðni nokk­urra þing­manna um þessa skýrslu var sam­þykkt í Alþingi í lok jan­úar árið 2018.

Verk­efnið sem stjórn­völdum var falið var að fara í gegnum þrjár rann­sókn­ar­skýrslur Alþingis og athuga hvort búið væri að bregð­ast við ábend­ingum sem þar komu fram til stjórn­sýsl­unnar.

Skýrsl­urnar þrjár eru sú stóra, rann­sókn­ar­skýrslan með stóra R-inu, um aðdrag­anda og orsakir falls íslensku bank­anna árið 2008 (útg. 2010) og svo tvær aðrar skýrslur, um aðdrag­anda og orsakir falls spari­sjóð­anna (útg. 2014) og um Íbúða­lána­sjóð (útg. 2013).

Um er að ræða skýrslur sem sam­tals eru rúm­lega 5.000 blað­síður í 20 bindum. Þeim þing­mönnum sem báðu um skýrsl­una fannst nauð­syn­legt að sú mik­il­væga grein­ing­ar­vinna sem rann­sókn­ir­nefnd­irnar unnu nýtt­ist. Því væri nauð­syn­legt að hafa yfir­sýn yfir ábend­ing­arnar sem fram kæmu í skýrsl­unum og tryggja að farið væri eftir þeim, svo að sömu mis­tökin yrðu ekki gerð á ný.

Verk­efnið sem fram­kvæmda­valdið fékk í fangið var því að fara yfir skýrsl­urnar, koma auga á allar ábend­ingar sem þar var að finna varð­andi stjórn­sýsl­una, taka þær saman og leggja mat á hvort, og þá hvernig, það hefði verið gert.

Skiptar skoðanir á sínum tíma

Tíu þing­menn stóðu að þess­ari skýrslu­beiðni, úr fimm flokkum af þeim átta sem eiga full­trúa á þingi. Það voru þau Björn Leví Gunn­ars­son, Halldóra Mogensen, Helgi Hrafn Gunn­ars­son, Smári McCarthy og Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir Píratar, Hanna Katrín Frið­riks­son og Jón Steindór Valdi­mars­son þing­menn Við­reisnar, Oddný G. Harð­ar­dóttir frá Sam­fylk­ingu, Inga Sæland úr Flokki fólks­ins og Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé úr Vinstri grænum, sem var eini stjórn­ar­þing­mað­ur­inn í hópi flutn­ings­manna.

Ekki voru allir á einu máli um það hvort gáfu­legt væri að láta gera þessa skýrslu með þessum hætti. Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra var til dæmis ekki sann­færður um það. „Ég ætla ekki að leggj­ast gegn því að beiðnin nái fram að ganga. Ég ætla að koma því að að mér finnst býsna langt gengið að þegar þingið hefur látið vinna fyrir sig skýrslu sem út kemur í níu bindum sé því síðan beint til fram­kvæmd­ar­valds­ins að veiða upp úr skýrsl­unni allar ábend­ingar eins og verið er að biðja um hér,“ sagði Bjarni í umræðum um skýrslu­beiðn­ina á sínum tíma.

Í kjöl­far þess­ara orða fjár­mála­ráð­herra lýstu nokkrir þing­menn furðu sinni á þeim. „Til hvers er farið af stað ef fram­kvæmd­ar­valdið skoðar ekki ábend­ing­arnar og kannar hvort eitt­hvað hafi verið brugð­ist við þeim ábend­ingum sem og þingið sjálft? Þá getum við alveg sleppt því að fara í svona rann­sóknir,“ sagði Helga Vala Helga­dóttir þing­maður Sam­fylk­ingar.

Þor­steinn Víglunds­son þáver­andi þing­maður Við­reisnar lýsti einnig furðu sinni. „Til hvers var þá starfið unnið ef stjórn­sýslan hefur öllum þessum árum síðar ekki einu sinni kom­ist svo langt að taka saman hvaða ábend­ingum var beint til hennar, hvað þá að gera ein­hverja brag­ar­bót þar á eða fylgja því eftir hvernig úr þeim ábend­ingum væri unnið? Ég get ekki ímyndað mér að þessi skýrslu­beiðni hvað þennan þátt­inn varðar feli í sér ein­hverja við­bót­ar­vinnu fyrir stjórn­sýsl­una. Hún hlýtur fyrir löngu síðan að vera búin að taka saman þær ábend­ingar sem til hennar var beint,“ sagði Þor­steinn.

Helgi Hrafn Gunn­ars­son þing­maður Pírata benti á að skýrslu­beiðnin fjall­aði ekki ein­fald­lega um að draga eitt­hvað út úr skýrslum rann­sókna­nefndar Alþingis sem hefðu verið lagðar fram, heldur að kanna hjá stjórn­sýsl­unni hvernig ábend­ing­unum hefði verið fylgt eftir.

Bjarni steig aftur í pontu að sagð­ist telja að hann og þessir þing­menn og fleiri sæju hlut­ina með ólíkum hætti. Hann sagði að honum hefði þótt eðli­legra að Alþingi hefði sjálft tekið saman ábend­ing­arnar úr skýrsl­unum og spurt fram­kvæmda­valdið hvort og hvernig búið væri að bregð­ast við þeim.

„Ókei, það er alveg rétt hjá fjár­mála­ráð­herra að þingið hefði alveg getað gert það, en nú erum við að biðja ráðu­neytið að taka saman hvernig upp­lifun ráðu­neyt­is­ins gagn­vart þessum ábend­ingum hefur verið, hvaða ábend­ingar ráðu­neytið hefur tekið saman og ákveðið að gera það. Er það í sam­ræmi við það sem stendur í skýrsl­unni? Þetta er mjög eðli­legt eft­ir­lits­hlut­verk, mjög þarft og það er gott að við ætlum að sam­þykkja beiðn­ina,“ sagði Jón Þór Ólafsson Pírati í umræð­unni.

Skýrslu­beiðnin var sam­þykkt með 44 atkvæðum á þingi. Tveir þing­menn, þeir Brynjar Níelsson og Ásmundur Frið­riks­son, greiddu ekki atkvæði um málið og 17 þing­menn voru fjar­ver­andi. Og þá gat vinnan haf­ist, sem nú er loks lokið.

Ærið verkefni

Orð Þor­steins Víglunds­sonar, um að hann gæti ekki ímyndað sér að það yrði ein­hver við­bót­ar­vinna fyrir stjórn­sýsl­una að taka ábend­ing­arnar í skýrsl­unni saman, virka eilítið fyndin þegar lýs­ing á þeim vinnu­brögðum sem við­höfð voru við ritun skýrsl­unnar er lesin.

Þar segir að ljóst hafi verið strax frá upp­hafi að verk­efnið yrði stórt. Mikil áskorun yrði ann­ars að fara í gegnum þessar þrjár skýrslur, 5.000 blað­síður í 20 bindum, og ann­ars vegar greina og afmarka ábend­ing­arnar sem lúta að stjórn­sýsl­unni og hins vegar að draga þær fram á sem óhlut­drægastan hátt, í sem mestu sam­ræmi við efni þeirra og án þess að slíta þær úr sam­hengi.

„Það er vegna þess að í rann­sókn­ar­skýrsl­unum eru ábend­ingar að jafn­aði settar fram í tengslum við umfjöllun um til­tekna atburði og atvik sem nefnd­irnar fjalla um. Þannig er almennt ekki að finna afmark­aðar ábend­ingar sem slíkar heldur eru í lok hvers kafla dregnar saman álykt­anir rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar um þau atriði sem um ræðir hverju sinni. Sem dæmi má taka að nálgun rann­sókn­ar­nefndar Alþingis í skýrslu um fall bank­anna hefur verið að rekja ein­staka atburði í aðdrag­anda hruns­ins án þess að til­taka sér­stak­lega hvaða ábend­ingar hún ætli stjórn­sýsl­unni. Oft eru þá til­teknir atburðir not­aðir sem dæmi um stærri kerf­is­lægan vanda án þess að sér­stak­lega séu dregnar heild­stæð­ari álykt­anir af því eða settar fram ákveðnar ábend­ingar,“ segir í skýrsl­unni.

339 ábendingar og kannski hefði verið gáfulegra að þingið ritstýrði

En þetta hafð­ist, í sam­vinnu fjöl­margra ráðu­neyta og stofn­ana og með aðkomu margra sér­fræð­inga á þeirra snærum, auk utan­að­kom­andi sér­fræð­ings sem falið var að afmarka ábend­ingar á fyrstu stigum verks­ins.

Alls 339 ábend­ingar sem lúta að stjórn­sýsl­unni voru dregnar fram úr skýrsl­unum þremur, þar af 249 úr rann­sókn­ar­skýrsl­unni um fall bank­anna árið 2008. Samkvæmt því sem fram kemur í skýrsl­unni hefur verið brugð­ist við þeim í yfir­gnæf­andi hluta til­fella.

Í inn­gangi skýrsl­unnar er minnst á að í umræðum um skýrslu­beiðn­ina á Alþingi hafi meðal ann­ars komið fram það sjón­ar­mið að þingið færi sjálft með rit­stjórn við skýrslu­gerð­ina, frekar en að fram­kvæmda­valdið ann­að­ist hana. Skýrslu­höf­undar segja „ljóst að færa hefði mátt góð rök fyrir þeirri nið­ur­stöðu,“ en nið­ur­staða Alþingis hafi þó verið önnur.

„Enda þótt í hví­vetna hafi verið reynt að gæta hlut­leysis í svörum við fyr­ir­spurnum er sjálf­sagt og eðli­legt að les­endur hafi ávallt í huga að svörin eru rituð og sett fram af hlut­að­eig­andi stjórn­völdum í sam­ræmi við beiðni Alþingis,“ segir þar einnig.

Skýrslan um skýrsl­urnar þrjár og eft­ir­fylgni þeirra hjá fram­kvæmda­vald­inu er sem fyrr segir aðgengi­leg á vef Alþingis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár