350 með einkaflugi til Íslands á einni viku

Af þeim 7.000 far­þegum sem hafa komið hingað til lands á einni viku hafa ell­efu greinst með kór­ónu­veiruna en virk smit voru aðeins tvö. Lang­flestir far­þeg­anna komu um Kefla­vík­ur­flug­völl en 350 með einka­flugi.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Síð­ast­liðna viku hafa rúm­lega 7.000 far­þegar komið til lands­ins og sýni verið tekin úr um 5.500 þeirra. Ellefu hafa greinst með veiruna og þar af hafa virk smit reynst tvö. Í þeim til­fellum hefur fólk þurft að fara í ein­angrun en aðrir voru með gam­alt smit. Lang­flestir þeirra sem komu hingað til lands síð­ustu sjö daga komu með far­þega­flugi til Kefla­vík­ur­flug­vallar en 350 ein­stak­lingar komu með einka­flugi.

Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag.

Rúmlega tutt­ugu ein­stak­lingar hafa þurft að fara í sótt­kví vegna þess­ara sýk­inga sem greinst hafa. Það er m.a. fólk sem sat í nálægð hinna sýktu á leið til lands­ins. En nú verður breyt­ing þar á þar sem verið er að taka í notkun nýjar skil­grein­ingar á hættu í flugi. Öllum er nú gert að vera með grímur í flugi og einnig hefur verið gripið til ann­arra sótt­varna­ráð­staf­ana í sam­ræmi við alþjóð­legar leið­bein­ingar. „Þá mun þörfin á sótt­kví fyrir far­þega í flugi [þó að smit grein­ist] vera miklu minni en áður.“

[adspot]

Þórólfur tók svo sér­stak­lega fram að „ekk­ert COVID-smit hefur verið stað­fest í flugi til þessa“ þó að upp hafi komið grunur um nokkur slík á alþjóð­lega vísu.

Hann telur óhætt að segja að hlut­fall smita meðal komu­far­þega sé mjög lágt. „Við teljum að með núver­andi fyr­ir­komu­lagi þá munum við fá mjög verð­mætar upp­lýs­ingar með skimun­inni og getum hagað henni í sam­ræmi við það í fram­hald­inu.“

[links]Átti hann þar við að í lok þess­arar viku yrði tekin saman töl­fræði á smit­hættu frá ferða­mönnum. Nið­ur­stöður skimun­ar­innar muni m.a. nýt­ast til þess að sjá hvaðan smitað fólk er að koma og í fram­hald­inu kann að fara svo að hætt verði að skima flug frá ákveðnum löndum.

Í gær greindust fleiri smit á einum degi á heims­vísu en nokkru sinni fyrr. Þann 1. júlí stendur svo til að opna innri landa­mæri Schengen. Öllu þessu þarf að fylgj­ast vel með. „Maður er smeykur við Banda­ríkin,“ sagði Þórólfur um þau lönd þar sem áhættan gæti verið hvað mest. „Veiran virð­ist vera í tölu­verðum vexti þar.“ Benti hann einnig á Brasilíu, Indland og Rússland. Hins vegar ítrek­aði hans, eins og oft áður, að taka verði töl­fræði ein­stakra ríkja með fyr­ir­vara. „Það er erfitt að treysta mörgum nið­ur­stöðum.“

Á morgun kemur Norræna til Seyð­is­fjarðar. Enn er ekki komið upp end­an­legt skipu­lag við sýna­töku far­þega hennar en á morgun verður það leyst í sam­starfi margra aðila. Starfs­menn Íslenskrar erfða­grein­ingar munu fljúga með þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar austur þar sem sýni verða tekin í sam­vinnu við heil­brigð­is­starfs­fólk á svæð­inu. Síðan verður flogið með sýnin til baka til grein­ingar sunnan heiða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár