Víðir: Ekki eðlilegt að krefja ferðamenn um niðurstöður úr skimun

Ferða­mönnum er ekki skylt að geyma nið­ur­stöður úr landamæra­skimun. Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn segir í sam­tali við Kjarnann að það sé ekki eðli­legt að þeir séu krafðir um að fram­vísa nið­ur­stöð­unum á veit­inga­húsum eða ann­ars staðar.

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra. Mynd: Lögreglan

Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn hjá rík­is­lög­reglu­stjóra segir ekki eðli­legt að ferða­menn séu beðnir að fram­vísa nið­ur­stöðum úr landamæra­skimun á veit­inga­húsum eða ann­ars staðar. Hafi slíkt verið gert velti hann því fyrir sér á hverju sú krafa sé byggð. Fólk fái nið­ur­stöðu úr skimun senda í smitrakn­ing­arappið. „Það er eina stað­fest­ingin sem fólk getur fengið,“ segir Víðir. Ekki sé um að ræða opin­bert plagg á pappír og ferða­mönnum sé ekki skylt að geyma þessar upp­lýs­ingar til fram­vís­unar síðar.

Um helg­ina var greint frá því á íbúa­grúbbu á Facebook að starfs­fólk veit­inga­staðar á Suð­ur­nesjum hefði beðið ferða­menn sem þangað komu um að fram­vísa nið­ur­stöðum úr skimun. Fullyrt var í færsl­unni að í ljós hafi komið að hana hefðu þeir ekki enn fengið. Eftir að fólk­inu var bent á að það ætti ekki að vera innan um annað fólk á þessum tíma­punkti var því vísað út en boðið vel­komið aftur þegar nið­ur­staðan lægi fyrir.

Víðir segir að til að byrja með hafi borið á því að fólk biði ekki á sínum gisti­stað eftir nið­ur­stöðu úr landamæra­skimun, eins og því beri þó að gera. „En við mátum það þannig að skila­boðin okkar væru ekki nógu skýr en nú höfum við bætt þar úr og ég held að þetta sé komið í betra stand.“

[adspot]

Í sjón­varps­fréttum nýverið var við­tal við par sem var að skoða sig um við Geysi en hafði ekki enn fengið nið­ur­stöðu úr skimun. Sagðist það gæta þess að koma ekki nálægt öðrum.

Það er þó ekki í takt við skila­boð yfir­valda: „Farið var­lega þangað til nið­ur­stöður prófs­ins ber­ast,“ stendur í leið­bein­ingum land­læknis til þeirra sem hafa farið í skimun við landa­mæri. Nið­ur­stöður á Kefla­vík­ur­flug­velli eiga að liggja fyrir innan tólf klukku­stunda og innan sól­ar­hrings á öðrum áfanga­stöðum.

Svo stendur: „Haldið kyrru fyrir á heim­ili eða áfanga­stað og haldið ykkur í hæfi­legri fjar­lægð frá öðru fólki. Forðist snert­ingu eins og faðm­lög eða handa­bönd. Þvoið hendur reglu­lega og ekki nota almenn­ings­sam­göngur.“

Einnig er bent á að þó að fólk mælist ekki með veiruna við komu sé engu að síður æski­legt að fara far­lega fyrstu fjórtán dag­ana því nið­ur­stöður prófs­ins séu ekki „alveg óyggj­andi“. Fái við­kom­andi hins vegar skila­boð um að hafa greinst með veiruna þurfi hann að „forð­ast allt sam­neyti við aðra og und­ir­gang­ast ein­angrun þar til frek­ari rann­sóknir hafa farið fram“.

Við slíkar aðstæður kemur til kasta COVID-göngu­deildar Land­spít­ala sem boðar við­kom­andi í við­tal og blóð­sýna­töku, þ.e. mótefna­mæl­ingu. „Þar fæst nið­ur­staða um hvort þú ert smit­andi og þurfir áfram ein­angrun í 14 daga eða hvort þér sé frjálst að fara ferða þinna en áfram að sýna varúð.“

Víðir bendir á að erlendir ferða­menn sem grein­ast með virkt smit við kom­una til lands­ins geti ekki snúið aftur til síns heima á meðan ein­angrun stendur. „Hafi ein­stak­lingur ekki tök á að dvelja í heima­húsi sætir hann ein­angrun í sótt­varna­húsi. Sótt­varna­hús eru rekin í Reykja­vík, Akureyri og á Egils­stöðum.“

4.730 sýni hafa verið tekin við landa­mæri frá því að skimun við þau hófst þann 15. júní. Tíu hafa greinst með veiruna en í ein­hverjum til­fellum hefur mótefna­mæl­ing sýnt fram á „gam­alt smit“ og við­kom­andi því ekki tal­inn smit­andi.

Farþegar sem setið hafa í nálægð við hina sýktu á leið­inni hingað hafa, meti smitrakn­ing­arteymið það svo, orðið að fara í sótt­kví. Að sögn Víðis á það fólk kost á að dvelja sér að kostn­að­ar­lausu í sótt­varna­húsi en það má einnig nýta sér aðra gisti­mögu­leika á eigin kostnað, s.s. heima­hús, hótel, sum­ar­hús o.s.frv. Víðir bendir á að fjöldi hót­ela bjóði upp á dvöl á meðan sótt­kví stendur og má finna upp­lýs­ingar um þau á heima­síðu Ferða­mála­stofu.

Þar verða þeir þó að fylgja leið­bein­ingum um sótt­kví sem eiga jafnt við um almenn­ing hér á landi sem og ferða­menn, að sögn Víðis. Samkvæmt þeim má ein­stak­lingur í sótt­kví til dæmis ekki heim­sækja fjöl­farna ferða­manna­staði þótt að þeir séu undir beru lofti.

Sá sem þarf að fara í sótt­kví við kom­una til lands­ins hefur mögu­leika á því, sé hann ein­kenna­laus og ekki með veiruna, að snúa til síns heima innan tveggja sól­ar­hringa í stað þess að vera hér á landi í sótt­kví í fjórtán daga. Víðir segir þetta metið í hverju til­felli fyrir sig og að ákvörðun um veit­ingu slíkra und­an­tekn­inga sé sam­vinnu­verk­efni sótt­varna­læknis og smit­sjúk­dóma­lækna Land­spít­ala með aðkomu smitrakn­ing­arteymis. Hann ítrekar að sótt­kví sé fjórtán dagar og nei­kvæð nið­ur­staða úr skimun geti ekki stytt þann tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár