Íslenska sveitin heillar ekki

Hlutfall íbúa sem búa sveit og dreif­býli er lægst á Íslandi af öllum Norð­ur­löndum, um sex pró­sent. Hlut­fallið er hæst í Noregi. Sam­nor­ræn skýrsla segir Ísland skera sig úr þegar kemur að breyt­ingu á íbúa­fjölda.

Hlutfall þeirra sem búa í sveit er lægst á Íslandi af öllum Norðurlöndunum.
Hlutfall þeirra sem búa í sveit er lægst á Íslandi af öllum Norð­ur­lönd­unum. Mynd: Birgir ÞÛr Hararson

Nær allir á Íslandi búa í þétt­býli, eða um 94 pró­sent. Hlut­fallið er hæst á Íslandi af öllum Norð­ur­löndum. Í Noregi búa um 80 pró­sent íbúa í þétt­býli og 20 pró­sent í sveit og er það lægsta hlut­fall þétt­býl­isí­búa á Norð­ur­lönd­unum. Hlutfall íbúa í þétt­býli er næst­hæst í Danmörku, um 88 pró­sent. Þetta kemur fram í nýrri sam­nor­rænni skýrslu um stöðu Norð­ur­land­anna sem birt var í dag.

Sérstakur kafli um íbúafjöldaþróun á Íslandi

Í skýrsl­unni er sér­stakur kafli sem heitir Íbúa­þróun á Íslandi. Þar segir að í góð­ær­inu 1997 til 2008 hafi íbúum lands­ins fjölgað gíf­ur­lega, en fólk hafi þó yfir­gefið landið að sama skapi eftir efna­hags­hrunið. Það var þó ein­ungis einn fjórði af fjölg­un­inni árin áður.

Ísland er ólíkt hinum Norð­ur­löndum hvað varðar fólks­flutn­inga því það er breyti­legt á milli ára hvort fleiri flytj­ast til eða frá land­inu. Þannig hefur það verið frá árinu 1960. Árið 2014 var stærstur hluti inn­flytj­enda á Norð­ur­lönd­unum erlendir rík­is­borg­arar eða að með­al­tali 81% en hlut­fallið er breyti­legt, frá 62% á Íslandi til 88% í Noregi. Sé horft til fólks­flutn­inga innan Norð­ur­land­anna flytja mun færri til Íslands og Finn­lands en hinna land­anna, 25% þeirra sem flytja til Finn­lands eru af öðru þjóð­erni en aðeins 14% þeirra sem flytja til Íslands. Munurinn kanna að end­ur­spegla ólíka atvinnu- og náms­mögu­leika í lönd­unum, þar sem til dæmis náms­fram­boð í Svíþjóð, Noregi og Danmörku kann að laða að Íslend­inga og Finna.

Minnsta atvinnuleysið á Íslandi, Færeyjum og Álandseyjum

Atvinnu­leysi er mun minna á Íslandi heldur en gengur og ger­ist á hinum Norð­ur­lönd­unum. Samkvæmt skýrsl­unni trónir Ísland, Færeyjar og Álandseyjar á toppnum varð­andi hlut­fall þeirra íbúa sem hafa vinnu árið 2014. Ekki er að finna merkj­an­legan mun sam­kvæmt skýrsl­unni á atvinnu­leysi karla og kvenna í þessum löndum.

Atvinnu­leysið er mest á Finn­landi af Norð­ur­lönd­unum, og næst­mest í Danmörku. Noregur og Svíþjóð eru í miðj­unni. Farið er ítar­lega yfir áhrif efna­hag­skrepp­unnar 2008 á öll Norð­ur­löndin í skýrsl­unni. Tekið er fram að hag­vöxtur hafi ein­ungis vaxið umtals­vert á Íslandi og í Svíþjóð.

Reykjavík minnst eftirsótti höfuðstaðurinn

Reykja­vík er minnst eft­ir­sótta nor­ræna höf­uð­borgin. Osló, Kaup­manna­höfn, Stokk­hólmur og Helsinki verma efstu sæti list­ans í skýrsl­unni og Reykja­vík endar í því tíunda. Kjarninn greindi frá þessu í morgun. Svæðin í eftstu sæt­unum búa yfir mik­illi sam­keppn­is­hæfni og laða að sér bæði fjár­magn og mannauð. Horft er á þróun og fram­tíð­ar­horfur ein­stakra svæða eru háðar efna­hags­horfum, horfum á vinnu­mark­aði og íbúa­þróun. Notast er við nýjan flokk­un­ar­stuðul Nor­dregio til að greina og flokka ein­staka þætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár