Lífeyrissjóðir hafa ekki lánað meira í íbúðalán frá því fyrir faraldur

Kerf­is­lega mik­il­vægu bank­arnir þrír lán­uðu minna í ný útlán í jan­úar en þeir höfðu gert frá því að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á. Líf­eyr­is­sjóð­irnir lán­uðu að sama skapi meira en þeir höfðu gert á sama tíma­bili.

Útlánum til íbúðakaupa hefur verið skóflað út á faraldurstímum.
Útlánum til íbúða­kaupa hefur verið skóflað út á far­ald­urs­tímum. Mynd: Andrea Pacquadio/Pexels

Ný útlán líf­eyr­is­sjóða til íbúð­ar­kaupa, að frá­dregnum upp- og umfram­greiðsl­um, í jan­úar námu 1,9 millj­arði króna. Það er hæsta fjár­hæð sem þeir hafa lánað innan eins mán­aðar til íbúð­ar­kaupa síðan í mars 2020, þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall af fullum krafti á Ísland.

Við­snún­ingur hefur verið á útlánum líf­eyr­is­sjóð­anna til sjóðs­fé­laga sinna vegna íbúð­ar­kaupa frá því seint á síð­asta ári. Frá júní­mán­uði árið 2020 og út októ­ber í fyrra, alls í 16 mán­uði, þá voru upp- eða umfram­greiðslur lána sjóð­anna meiri en ný útlán. Alls voru greidd upp lán fyrir 66,7 millj­arða króna umfram ný lán á tíma­bil­inu. Frá byrjun nóv­em­ber og út jan­ú­ar­mánuð lán­uðu líf­eyr­is­sjóð­irnir hins vegar 5,1 millj­arð króna meira en upp- og umfram­greiðslur. Þar mun­aði mestu um auk­inn áhuga lán­tak­enda á óverð­tryggðum lánum, en þeir tóku 10,5 millj­arða króna af nýjum slíkum lánum á tíma­bil­inu á meðan að verð­tryggð lán voru greidd upp fyrir 5,4 millj­arða króna.

Ástæðan liggur í stór­auk­inni verð­bólgu, sem mælist nú 6,2 pró­sent, en hún gerir verð­tryggð lán veru­lega óhag­stæð sem stendur.

Bankarnir sópuðu til sín markaðnum

Bank­arnir tóku yfir íslenska íbúð­ar­lána­mark­að­inn eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á. Það sem gerði þeim það kleift voru aðgerðir Seðla­banka Íslands, sem lækk­aði stýri­vexti niður í 0,75 pró­sent og afnam tíma­bundið hinn svo­kall­aða sveiflu­jöfn­un­ar­auka, og rík­is­stjórn Íslands, sem lækk­aði banka­skatt þannig að tekjur rík­is­sjóðs af honum rýrn­uðu um sex millj­arða króna á ári.

Frá mars 2020 og fram í jan­úar síð­ast­lið­inn juk­ust hrein ný útlán Lands­bank­ans, Íslands­banka og Arion banka, með veði í íbúð, um 610 millj­arða króna. Mark­aðs­hlut­deild bank­anna í öllum úti­stand­andi lánum til íbúð­ar­kaupa hefur vaxið úr 55 í meira en 70 pró­sent.

Þessi miklu útlána­vöxtur mynd­aði grunn­inn að gríð­ar­legum hagn­aði bank­anna þriggja í fyrra, sem sam­tals var 81,2 millj­arðar króna. Hann hafði líka mikil ruðn­ings­á­hrif á hús­næð­is­verð sem hefur hækkað um tugi pró­senta á skömmum tíma.

[adspot]Kerf­is­lega mik­il­vægu bank­arnir þrír lán­uðu minna í íbúða­lán umfram upp- og umfram­greiðslur í jan­úar 2022 en þeir höfðu gert frá því fyrir far­aldur. Ný útlán voru samt sem áður 13,3 millj­arðar króna þannig að þeir eru enn að bæta við mark­aðs­hlut­deild sína. Til sam­an­burðar voru þeir að lána á fimmta tug millj­arða króna á mán­uði í ný útlán að frá­dregnum upp- og umfram­greiðslum þegar best lét á kór­ónu­veiru­tíma­bil­inu.

Bjóða nú upp á miklu lægri vexti sem hækka hægar

Frá mars 2020 og út októ­ber í fyrra dróg­ust útlán líf­eyr­is­sjóð­anna til íbúð­ar­kaupa, að frá­dregnum upp- og umfram­greiðsl­um, saman um 64 millj­arða króna og mark­aðs­hlut­deild þeirra skrapp skarpt sam­an.

[links]Frá þeim tíma hefur orðið umtals­verður við­snún­ingur. Þar skiptir senni­lega mestu að Líf­eyr­is­­sjóður verzlunarmanna, næst stærsti líf­eyr­is­­sjóður lands­ins, ákvað í haust að stofna nýjan lána­­flokk sjóðs­­fé­laga­lána og lánar nú óverð­­tryggð lán til íbúð­­ar­­kaupa með breyt­i­­legum vöxt­­um.

Um er að ræða þá teg­und lána sem notið hefur mestra vin­­sælda hjá íslenskum hús­næð­is­­kaup­endum síð­­ast­liðin ár. Vext­irnir eru nú mun betri en þeir bestu sem bank­arnir bjóða upp á og þeir hækka ekki jafn skarpt og hjá bönk­unum, sem elta hverja til­kynnta stýri­vaxta­hækkun. Frá því að nýi lána­flokk­ur­inn var til­kynntur í októ­ber í fyrra hafa vextir ein­ungis verið hækk­aðir einu sinni, og sú hækkun tók gildi í febr­úar 2022. Sem stendur eru vextir á breyti­legum óverð­tryggðum vöxtum hjá Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna 4,13 pró­sent á grunn­láni á meðan að þeir eru 4,7 pró­sent hjá Lands­bank­anum, sem hefur verið allra banka stór­tæk­astur á íbúða­lána­mark­aði und­an­farin tvö ár.

Líf­eyr­is­sjóð­irnir njóta þess fram yfir banka að bera engan kostnað vegna fjár­mögn­un­ar. Bankar þurfa að fá lán­aða pen­inga, annað hvort hjá við­skipta­vinum sínum í formi inn­lána eða frá fjár­festum með skulda­bréfa­út­gáfu, og greiða vexti af því fé. Líf­eyr­is­sjóðir eru áskrif­endur að fé almenn­ings sem flæðir inn í hirslur þeirra um hver ára­mót án vaxta, þótt krafa sé gerð um að þeir ávaxti það fé. Það gefur sjóð­unum tæki­færi á að bjóða upp á betri við­skipta­kjör.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár