Sögulegur dómur

Hæsti­réttur Dan­merkur hefur úrskurðað glæpa­sam­tökin Loyal to Familia ólög­leg. Dóms­mála­ráð­herra Dan­merkur segir dóm­inn marka tíma­mót í bar­áttu gegn glæpa­sam­tökum.

Félagar í glæpasamtökunum Loyal to Familia
Félagar í glæpa­sam­tök­unum Loyal to Familia Mynd: www.news.dk

Sumarið 2018 til­kynnti Søren Pape Poulsen þáver­andi dóms­mála­ráð­herra Dana að glæpa­sam­tökin Loyal to Familia (LTF) yrðu bönnuð. Þá hafði danski rík­is­lög­mað­ur­inn kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að for­sendur væru fyrir bann­inu. Eftir að ráð­herr­ann til­kynnti bannið form­lega kærði LTF ráð­herr­ann. Rétt­ar­höld í mál­inu hófust árið 2019. Bæj­ar­réttur Kaup­manna­hafnar úrskurð­aði, í jan­úar 2020 ákvörðun dóms­mála­ráð­herr­ans lög­mæta, LTF áfrýj­aði til Lands­réttar, sem stað­festi dóm Bæj­ar­réttar, í nóv­em­ber sama ár. LTF fékk leyfi til að áfrýja til Hæsta­réttar Dan­merkur. Sem hefur nú, eins og áður sagði stað­fest að ráð­herra sé heim­ilt að banna starf­semi LTF, og bannið frá 2018 standi.

Spurning um félagafrelsi

Það er síður en svo sjálf­gefið að heim­ilt sé að áfrýja málum til Hæsta­réttar. Um slíkt ríkja ákveðnar reglur sem horft var til í þessu til­viki. Málið var talið for­dæm­is­gef­andi, því það fjall­aði um grund­vall­ar­at­riði í dönsku stjórn­ar­skránni um félaga­frelsi. Þótt í Danmörku ríki félaga­frelsi eru í lögum ákvæði sem gera stjórn­völdum kleift að banna slíka starf­semi við sér­stakar kring­um­stæður. Hæsti­réttur Dan­merkur taldi starf­semi LTF falla undir þessa skil­grein­ingu.

Banninu er ætlað að binda enda á skálmöld

Søren Pape Poulsen hafði lengi talað fyrir því að gripið yrði til aðgerða í því skyni að binda enda á skálmöld sem ríkt hafði í und­ir­heimum Kaup­manna­hafnar. Þegar hann greindi frá fyr­ir­hug­aðri máls­sókn kom fram að síðan snemma árs 2015 hefði oftar en 40 sinnum verið hleypt af skotum í átökum glæpa­gengja í Kaup­manna­höfn. Átök þessi hefðu kostað þrjú manns­líf og tugir særst. Að sögn lög­reglu höfðu félagar í sam­tök­unum LTF nær alltaf komið við sögu í þessum átökum, verið annar „stríðs­að­il­inn“ eins og tals­maður lög­reglu komst að orði. [adspot]

Ætluðu sér stóra hluti í undirheimunum

Samtökin Loyal to Familia urðu til haustið 2012. Stofn­end­urnir voru flestir inn­flytj­endur eða af erlendu bergi brotnir. Flestir voru þeir fyrr­ver­andi félagar í sam­tökum sem kenndu sig við Blågårds Plads á Norð­ur­brú í Kaup­manna­höfn. LTF ætl­uðu sér frá upp­hafi stóra hluti í und­ir­heimum höf­uð­borg­ar­innar, einkum í nágrenni inn­flytj­enda­hverf­is­ins Mjølnerpar­ken. Þar voru hins vegar fyrir á fleti nokkur önnur sam­tök, Brothas, Bandidos og fleiri. Þau tóku þessum nýju sam­tökum ekki fagn­andi. Að mati lög­regl­unnar voru félagar í LTF haustið 2018, þegar dóms­mála­ráð­herr­ann bann­aði sam­tökin, tals­vert á þriðja hund­rað tals­ins.

Barist um yfirráðin á Norðurbrú

Eins og áður sagði var Norð­ur­brú frá upp­hafi „heima­völlur“ LTF. Samtökin Brothas höfðu um ára­bil litið á Mjølnerpar­ken sem sitt yfir­ráða­svæði og voru ekki til­búin að gefa það eftir. Af þeim sökum skarst iðu­lega í odda með Brothas og LTF. Glæpa­gengin nota margs­konar aðferðir til fjár­mögn­unar. Verslun með eit­ur­lyf vegur þar þungt en enn fremur neyða sam­tökin eig­endur versl­ana og veit­inga­staða til að borga það sem þau kalla „vernd­ar­gjald“. Sé það ekki gert er haft í hót­unum og margir sem hafa neitað að borga goldið það dýru verði. Rúður í versl­unum og veit­inga­stöðum brotnar, allt inn­an­dyra brotið og bramlað og jafn­vel kveikt í að næt­ur­lagi.

Ekki haldið kyrru fyrir

Þótt LTF sam­tökin hafi verið bönnuð árið 2018 hafa félag­arnir ekki haldið kyrru fyrir. Síðan bannið tók gildi hafa verið gefnar út 87 ákærur á hendur LTF félögum og fjöl­margir hlotið dóm. 43 félagar í sam­tök­unum sæta nú far­banni eða sitja í gæslu­varð­haldi. Frá stofnun sam­tak­anna árið 2012 hafa 372, fyrr­ver­andi og núver­andi LTF félagar hlotið dóma, sam­tals 1409 ára fang­elsi. Fyrir morð, ofbeldi, hót­anir og afbrot tengd eit­ur­lyfjum.

Hvað þýðir bannið?

Það að sam­tök eins og LTF séu bönnuð þýðir að félag­arnir mega ekki láta húð­flúra sig með merki og bók­stöfum sam­tak­anna, mega ekki vera klæddir fatn­aði merktum LTF. Svartar hettu­peysur merktar sam­tök­unum í bak og fyrir eru bann­aðar og þeir sem sýna sig í þeim verða umsvifa­laust hand­teknir og mega búast við refs­ingu. Sama gildir um húfur og buxur. Lögmaður sam­tak­anna sagði, eftir að dómur Hæsta­réttar féll, að hægt væri að banna allt mögu­legt en vin­áttu­bönd fólks sem hefði þekkst frá barn­æsku breytt­ust ekki.

David Sausdal, sér­fræð­ingur við háskól­ann í Lundi í Svíþjóð, sagði í við­tali við danskt dag­blað að erfitt væri að meta áhrifin af bann­inu. „Bannið er tákn­rænt en það getur líka haft þau áhrif að sam­tökin eigi erf­ið­ara með að fá til sín nýja félaga. Ímyndin er hluti aðdrátt­araflsins og ómerkt hettu­peysa hefur ekki sömu áhrif og sú sem er kirfi­lega merkt.“

Dómsmálaráðherra og lögregla ánægð með dóminn

Nick Hækkerup dóms­mála­ráð­herra Dana lýsti ánægju með nið­ur­stöðu Hæsta­réttar. Hann kvaðst vona að þessi dómur væri aðeins fyrsta skref í upp­ræt­ingu skipu­lagðrar glæp­a­starf­semi í Danmörku. Ráð­herr­ann sagði að þótt dóm­ur­inn tæki aðeins til LTF gæfi hann ákveðna vís­bend­ingu gagn­vart öðrum sam­tökum af svip­uðum toga. Torben Svarrer yfir­lög­reglu­þjónn í Kaup­manna­höfn sagði að lög­reglan fagn­aði dóms­nið­ur­stöð­unni. „Við þurfum ekki að sjá merktar peysur til að þekkja LTF félaga en gagn­vart almenn­ingi er mik­il­vægt að sam­tökin hafi verið bönnuð og geti ekki aug­lýst sig með sama hætti og áður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár