Kristján Vilhelmsson vildi láta svipta Helga Seljan Edduverðlaunum

Útgerð­ar­stjóri Samherja, sem var um ára­bil annar af stærstu eig­endum fyr­ir­tæk­is­ins, vildi láta taka Eddu­verð­laun Helga Seljan af honum vegna Seðla­banka­máls­ins. Helgi var val­inn sjón­varps­maður árs­ins af almenn­ingi tvö ár í röð.

Kristján Vilhelmsson.
Kristján Vil­helms­son. Mynd: Skjáskot

Kristján Vil­helms­son, útgerð­ar­stjóri Samherja og um ára­bil annar stærstu eig­enda útgerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins, sendu tölvu­póst til fram­kvæmda­stjóra Íslensku kvik­mynda- og sjón­varps­aka­dem­í­unnar (ÍKSA), sem veitir Eddu­verð­launin ár hvert, þann 17. jan­úar árið 2019, og fór fram á að Helgi Seljan yrði sviptur Eddu­verð­launum. Helgi hafði hlotið verð­launin sem besti sjón­varps­maður lands­ins árin 2016 og 2017, en almenn­ingur kýs þann sem hlýtur þau.

Frá þessu er greint í Stund­inni í dag.

Þar segir að í tölvu­pósti Krist­jáns, sem bar yfir­skrift­ina „Helgi Seljan“ hafi staðið: „Sæl. Er svona fölsun frétta­manns til­efni til að draga verð­laun hans til­baka?“ Tengd við póst­inn var aðsend grein eftir Elínu Björgu Ragn­ars­dóttur, lög­fræð­ing og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Samtaka fisk­fram­leið­enda, sem birst hafði í Morg­un­blað­inu.

Í grein­inni vændi hún Kastljós og Helga um slæ­leg vinnu­brögð í þætti um hús­leit hjá Samherja vegna meintra brota á lögum um gjald­eyr­is­mál sem sýndur var í lok mars árið 2012. ÍKSA vildi ekki svara spurn­ingum Stund­ar­innar um málið.

[adspot]Kristján seldi stærstan hluta sinn í Samherja hf., ann­ars helm­ings Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, til barna sinna fyrir skemmstu. Hann er enn stærsti eig­andi Samherja Holding, hins helm­ings sam­stæð­unnar, sem heldur utan um þorra erlendrar starf­semi hennar og rúm­lega 30 pró­sent eign­ar­hlut í Eimskip.

Sendi bréf á þekktan háskóla

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem greint er frá því opin­ber­lega að Kristján hafi beitt sér gegn nafn­greindu fólki sem hafði fjallað með gagn­rýnum hætti um hann eða sjáv­ar­út­vegs­mál.

Í maí 2014 greindi Kjarn­inn frá könnun sem sýndi að sjött­i hver háskóla­­maður á Íslandi hafði komið sér hjá því að tjá sig við fjöl­miðla ­vegna ótta við við­brögð valda­­fólks úr stjórn­­­mála- og efna­hags­­lífi. Þar kom einnig í ljós að meiri­hluti háskóla­­manna taldi að akademísku frelsi fræði- og ­vís­inda­­manna á Íslandi stafi ógn af gagn­rýni eða hót­­unum frá valda­­fólki í stjórn­­­mál­um, efna­hags- og atvinn­u­­lífi.

Skömmu síðar birti Kjarn­inn umfjöllun eftir Björn Gísla­son þar sem sagt var frá­ því hvern­ig Jón Steins­­son, þá dós­ent í hag­fræði við Columbia-há­­skól­ann í New York sem flutti sig yfir til Berkeley-há­skól­ans í fyrra, hefði fengið að finna fyrir því að ­skrifa reglu­­lega um hita­­mál sam­­fé­lags­ins í íslenska fjöl­miðla, sér­­stak­­lega um ­fisk­veið­i­­­stjórn­­un­­ar­­kerf­ið, auð­linda­nýt­ingu og skatta­­mál.

[links]Þar nefndi Jón dæmi af áhrifa­manni í íslensku atvinnu­lífi sem hafi nokkrum árum áður sent deild­ar­for­seta Columbia-há­skóla bréf þar sem hann gerði athuga­semdir við skrif Jóns í íslenska miðla.

Umrædd skrif voru skoð­anap­ist­ill sem birt­ist á Press­unni 10. maí 2011 þar sem Jón gagn­rýndi orð útvegs­manna um að sér­stakt auð­linda­gjald væri í raun lands­byggð­ar­skatt­ur. „Í dag fá eig­endur útgerð­ar­fyr­ir­tækja einka­af­nota­rétt af auð­lindum sjávar nán­ast án end­ur­gjalds,“ sagði í grein­inni eftir Jón. „Allur auð­lindaarð­ur­inn í sjáv­ar­út­vegi rennur því til eig­enda útgerð­ar­fyr­ir­tækja. Um þessar mundir er auð­lindaarð­ur­inn lík­lega í kringum 45 ma. kr. á ári. Stærstur hluti þessa fjár fer í lúx­uslíf og gælu­verk­efni útgerð­ar­manna, svo sem kampa­vín og kav­íar í útlönd­um, þyrlur og bíla­um­boð og það að dekka tap­rekstur Morg­un­blaðs­ins. En vita­skuld eru ein­staka brauð­molar sem detta fyrir fæt­urna á venju­legu fólki á lands­byggð­inni. Útgerð­ar­menn styrkja til dæmis íþrótta­fé­lög víða á lands­byggð­inn­i.“

Jón vildi ekki greina frá því hver þessi maður væri við Kjarn­ann árið 2014 en sagði deild­ar­for­set­ann hafa sagt að aug­ljós­lega myndi hann ekki gera neitt í mál­inu enda nyti Jón frelsis sem háskóla­maður til þátt­töku í opin­berri umræðu. „Ef þessir menn reyna að hafa áhrif á yfir­mann hag­fræði­deildar í Columbia, sem þeir hafa aug­ljós­lega engin tök á, þá getur maður bara ímyndað sér hvernig það er þegar ein­hver í háskólum á Íslandi skrifar eitt­hvað svona.“

Jón sagð­ist ekki hafa upp­lifað við­líka hót­anir eða gagn­rýni eftir að hafa tjáð sig um önnur mál.

Í bók­inni „Ekk­ert að fela – Á slóð Sam­herja í Afr­ík­u“, eftir Helga Selj­an, Aðal­stein Kjart­ans­son og Stéfán Aðal­stein Drengs­son, sem kom út fyrir rúmu ári, var greint frá því hver áhrifa­mað­ur­inn er í fyrsta sinn opin­ber­lega. Um var að ræða Krist­ján Vil­helms­son.

Þar var líka vitnað í bréfið sem Kristján skrif­aði. Í því stóð meðal ann­ars: „„Í krafti stöðu minnar sem for­maður stjórnar Útvegs­manna­fé­lags Norð­ur­lands beini ég þeirri spurn­ingu til þín hvort slíkur póli­tískur áróður sam­ræm­ist siða­reglum Col­umbi­a-há­skóla.“

Starfsmaður Samherja áreitti Helga

Kjarn­inn greindi frá því 27. ágúst síð­ast­lið­inn að Jón Óttar Ólafsson, fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­manns, sem starf­aði hefur fyrir Sam­herja árum sam­an, hefði allt frá því að umfjöllun Kveiks og Stund­­ar­innar um við­­skipta­hætti Sam­herja í Namibíu birt­ist þann 12. nóv­­em­ber á síð­­asta ári verið tíður gestur á Kaffi­­­fé­lag­inu, kaffi­­­húsi í miðbæ Reykja­vík­­­ur, einatt til að hitta á og ná tali af Helga Seljan – en þar hitt­ist hópur fólks iðu­­lega á morgn­ana til að spjalla um dag­inn og veg­inn.

Kjarn­inn greindi enn fremur frá því að Jón Óttar hefði ítrekað sent Helga skila­­boð, bæði í gegnum SMS og Facebook-­­reikn­ing eig­in­­konu sinn­­ar. Ingi Freyr Vil­hjálms­­son, blaða­­maður á Stund­inni sem fjallað hefur um Sam­herja, fékk einnig send skila­­boð þar sem honum var hótað „um­­fjöll­un“.

Jón Óttar sendi frá sér yfir­lýs­ingu í kjöl­far umfjöll­un­ar­innar og sagði að það hefði verið rangt af sér að senda Helga SMS-skila­­boð. Þau end­­ur­­spegl­uðu dóm­­greind­­ar­brest af hans hálfu og hann sagð­ist sjá mikið eftir að hafa sent þau. Jóni Ótt­­ari fannst miður ef þessi gagn­rýni­verða hátt­­semi hans yrði á ein­hvern hátt bendluð við Sam­herja „og starfs­­fólk þess því hún er alfarið á mína ábyrgð“.

Félög Jóns Óttars fengu um 135 millj­ónir króna í greiðslur frá Samherja yfir nokk­urra ára tíma­bil vegna vinnu þeirra við Seðla­banka­málið svo­kall­aða. Samherji gerði kröfu um að Seðla­banki Íslands myndi greiða þann kostnað í skaða­bóta­máli sem fyr­ir­tækið höfð­aði á hendur bank­anum. Það mál tap­að­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár