Rannsóknarnefndin kemur fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd á morgun

Ólafur Ólafsson kemur fyrir þing­nefnd síð­degis á mið­viku­dag. Sá fundur verður opinn fjöl­miðlum. Fund­ur­inn þar sem rann­sókn­ar­nefnd Alþingis um aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaupum á Bún­að­ar­bank­anum svarar spurn­ingum nefnd­ar­manna verður það hins vegar ekki.

Kjartan Bjarni Björgvinsson héraðsdómari var formaður rannsóknarnefndarinnar. Finnur Vilhjálmsson saksóknari var starfsmaður hennar. Þeir koma fyrir þingnefnd á morgun.
Kjartan Bjarni Björg­vins­son hér­aðs­dóm­ari var for­maður rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar. Finnur Vil­hjálms­son sak­sókn­ari var starfs­maður hennar. Þeir koma fyrir þing­nefnd á morgun. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Kjartan Bjarni Björg­vins­son, sem sat í rann­sókn­ar­nefnd Alþingis um aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaupum á 45,8 pró­sent hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­banka Íslands í jan­úar 2003 mun koma fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd á fundi hennar á morgun klukkan klukkan 9. Finnur Vil­hjálms­son, sem var starfs­maður rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar, mun einnig koma fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd og svara spurn­ingum nefnd­ar­manna. Fund­ur­inn verður lok­aður fjöl­miðlum. Þetta stað­festir Jón Steindór Valdi­mars­son, vara­for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, í sam­tali við Kjarnann.

[links]

Daginn eftir, á mið­viku­dag, mun Ólafur Ólafsson svo koma fyrir nefnd­ina. Sá fundur verður síð­degis, og hefst klukkan 15:15. Fund­ur­inn verður opinn fjöl­miðlum.

Högnuðust um milljarða með baksamningum

Rann­sókn­ar­nefnd sem rann­sak­aði aðkomu þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser að 45,8 pró­sent hlut í Bún­að­ar­bank­anum í jan­úar 2003 skil­aði af sér skýrslu 29. mars síð­ast­lið­inn.

Helstu nið­ur­stöður nefnd­ar­innar voru þær að stjórn­völd, almenn­ingur og fjöl­miðlar hefðu verið blekktir við söl­una. Ítar­leg gögn sýni með óyggj­andi hætti að þýski bank­inn Hauck & Auf­häuser, Kaup­­þing hf. á Íslandi, Kaupt­hing Bank Luxembourg og hópur manna sem vann fyrir og í þágu Ólafs Ólafs­­sonar not­uðu leyn­i­­lega samn­inga til að fela raun­veru­­legt eign­­ar­hald þess hlutar sem Hauck & Auf­häuser átti í Bún­­að­­ar­­bank­­anum í orði kveðnu. „Í raun var eig­andi hlut­­ar­ins aflands­­fé­lagið Welling & Partners, skráð á Tortóla á Bresku Jóm­frú­a­eyj­­um. Með fjölda leyn­i­­legra samn­inga og milli­­­færslum á fjár­­mun­um, m.a. frá Kaup­­þingi hf. inn á banka­­reikn­ing Welling & Partners hjá Hauck & Auf­häuser var þýska bank­­anum tryggt skað­­leysi af við­­skipt­unum með hluti í Bún­­að­­ar­­bank­an­­um.“

[adspot]

Auk þess komst nefndin að því að síð­ari við­skipti á grund­velli leyni­samn­ing­anna hafi vert það að verkum að Welling & Partners hefði hagn­ast um rúm­lega 100 millj­ónir Banda­ríkja­dala sem hafi verið greiddar til tveggja aflands­fé­laga, Marine Choice Limited í eigu Ólafs Ólafs­sonar og Dekhill Advisors Limited sem ekki liggja óyggj­andi upp­lýs­ingar fyrir hver á né hverjir nutu hags­bóta af þeim fjár­munum sem greiddir voru til félags­ins.

Telur sig ekki hafa blekkt ríkið

Nið­ur­staða rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar er nú til með­ferðar hjá stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd. Brynjar Níelsson, for­maður hennar, hefur sagt að hann víki úr nefnd­inni við með­ferð máls­ins og að umfjöllun stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar um rann­sókn­ar­skýrsl­una verði stýrt af Jóni Stein­dóri, vara­for­manni hennar. Ástæðan er sú að Brynjar var um tíma verj­andi Bjarka Diego í saka­­máli sem sner­ist um meint efna­hags­brot. Bjarki er einn þeirra sem gegndi lyk­il­hlut­verki í þeirri fléttu sem ofin var í kringum kaup­in á Bún­að­ar­bank­anum.

Brynjar hefur samt sem áður verið í sam­bandi við Ólaf Ólafsson vegna beiðni hans um að koma fyrir nefnd­ina og Ólafur sendi form­lega beiðni sína um að fá að koma fyrir nefnd­ina á Brynjar.

Í bréf­inu sem hann sendi Brynjari 27. apríl síð­ast­lið­inn sagð­ist Ólafur vilja fá að koma fyrir nefnd­ina til að að færa rök fyrir því að hann „hafi ekki blekkt rík­ið“ þegar S-hóp­ur­inn keypti 45,8 pró­sent hlut í Bún­að­ar­bank­an­um. Hann vill einnig fá tæki­færi til að lýsa sinni hlið „á því hvernig póli­tísk afskipti komu mér fyrir sjónir í ferl­in­u“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hauck&Aufhäuser

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Að opin­bera Ólaf Ólafsson er ekki mann­rétt­inda­brot

Ólafur Ólafsson hefur kært íslenska ríkið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu fyrir það að Alþingi hafi skipað rann­sókn­ar­nefnd til að upp­lýsa um það að hann og sam­starfs­fé­lagar hans hefðu beitt ríkið, fjöl­miðla og almenn­ing allan stór­kost­legum blekk­ingum til að kom­ast yfir Bún­að­ar­bank­ann árið 2003. Ólafur telur að vinna og birt­ing á skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar hafi vegið „alvar­lega að orð­spori og æru“ hans án...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár