Ólafur segist ekki hafa blekkt ríkið og vill lýsa pólitískum afskiptum

Í bréfi sem Ólafur Ólafsson sendi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis fyrir tveimur vikum síðan útlistar hann af hverju hann vilji fá að koma fyrir nefnd­ina til að ræða rann­sókn­ar­skýrslu um aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á Bún­að­ar­bank­anum.

Ólafur Ólafsson
Ólafur Ólafsson Mynd: RÚV/Skjáskot.

Ólafur Ólafsson vill fá að koma fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingi til að færa rök fyrir því að hann „hafi ekki blekkt ríkið“ þegar S-hóp­ur­inn keypti 45,8 pró­sent hlut í Bún­að­ar­bank­anum. Hann vill einnig fá tæki­færi til að lýsa sinni hlið „á því hvernig póli­tísk afskipti komu mér fyrir sjónir í ferl­inu“. Þetta kemur fram í bréfi sem Ólafur sendi Brynjari Níels­syni, for­manni stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis, þann 27. apríl síð­ast­lið­inn sem Kjarninn hefur undir höndum.

Í bréf­inu leggur Ólafur fram form­lega beiðni um að fá að koma á fund nefnd­ar­innar. Fyrr í dag var greint frá því að Ólafur muni koma fyrir nefnd­ina næst­kom­andi mið­viku­dag. Sá fundur verður opin fjöl­miðlum.

Skýr niðurstaða rannsóknarnefndar

Rann­sókn­ar­nefnd sem rann­sak­aði aðkomu þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser að 45,8 pró­sent hlut í Bún­að­ar­bank­anum í jan­úar 2003 skil­aði af sér skýrslu 29. mars síð­ast­lið­inn.

[links]Helstu nið­ur­stöður nefnd­ar­innar voru þær að stjórn­völd, almenn­ingur og fjöl­miðlar hefðu verið blekktir við söl­una. Ítarleg gögn sýni með óyggj­andi hætti að þýski bank­inn Hauck & Auf­häuser, Kaup­þing hf. á Íslandi, Kaupt­hing Bank Luxembourg og hópur manna sem vann fyrir og í þágu Ólafs Ólafs­sonar not­uðu leyni­lega samn­inga til að fela raun­veru­legt eign­ar­hald þess hlutar sem Hauck & Auf­häuser átti í Bún­að­ar­bank­anum í orði kveðnu. „Í raun var eig­andi hlut­ar­ins aflands­fé­lagið Welling & Partners, skráð á Tortóla á Bresku Jóm­frúa­eyj­um. Með fjölda leyni­legra samn­inga og milli­færslum á fjár­mun­um, m.a. frá Kaup­þingi hf. inn á banka­reikn­ing Welling & Partners hjá Hauck & Auf­häuser var þýska bank­anum tryggt skað­leysi af við­skipt­unum með hluti í Bún­að­ar­bank­an­um.“

[adspot]

Auk þess komst nefndin að því að síð­ari við­skipti á grund­velli leyni­samn­ing­anna hafi vert það að verkum að Welling & Partners hefði hagn­ast um rúm­lega 100 millj­ónir Banda­ríkja­dala sem hafi verið greiddar til tveggja aflands­fé­laga, Marine Choice Limited í eigu Ólafs Ólafs­sonar og Dekhill Advisors Limited sem ekki liggja óyggj­andi upp­lýs­ingar fyrir hver á né hverjir nutu hags­bóta af þeim fjár­munum sem greiddir voru til félags­ins.

Segir kynningu á skýrslunni hafa verið einhliða

Ólafur segir í bréf­inu til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar að kynn­ing á skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar, umræða og öll umfjöllun um skýrsl­una hafi verið mjög ein­hliða. „Það er mér mik­il­vægt, þótt seint sé, að nefndin fái að heyra mína hlið, sem er önnur sem sú sem er lýst í skýrsl­unni,“ segir Ólafur. Hann vilji færa rök fyrir því að hann hafi „ekki blekkt ríkið í umræddum við­skiptum, slíkt sé óhugs­andi. Í umræðu um þetta mun ég fara nánar yfir aðdrag­anda söl­unnar, benda á nokkur atriði þess­ari full­yrð­ingu minni til stuðn­ings og benda á mis­fellur í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar sem ég tel vera afvega­leið­andi“.

Ólafur segir enn fremur að í skýrsl­unni séu höfð uppi stór orð um það sem nefndir séu bak­samn­ingar og leyni­samn­ingar og að hann vilji gera grein fyrir aðdrag­anda og eðli þess­ara samn­inga.

Svo segir Ólafur: „Í skýrsl­unni er ekk­ert fjallað um stjórn­mála­á­standið í land­inu á sínum tíma, póli­tísk afskipti, mark­mið, einka­væð­ing­ar­ferli bank­anna í víð­ara sam­hengi og ógagn­sæjar for­sendur. Ég vil fá tæki­færi til að lýsa minni hlið á því hvernig póli­tísk afskipti komu mér fyrir sjónir í ferl­inu“.

Ólafur segir í bréf­inu að hann geri sér grein fyrir því að hann eigi enga lögvarða kröfu til að fá að hitta nefnd­ina en í ljósi þess að hann sé bor­inn þungum sökum í skýrsl­unni og hafi ekki notið and­mæla­réttar, þá finn­ist honum rétt að setja beiðn­ina fram. Ólafur telur sig þurfa 40-45 mín­útur til að setja fram sín sjón­ar­mið og er til­bú­inn að svara spurn­ingum í fram­hald­inu.

Við rann­sókn nefnd­ar­innar var tek­inn vitn­is­burður af Ólafi. Þar sagði hann að eftir því sem hann best vissi væru allar þær upp­lýs­ingar sem íslenska rík­inu voru veittar um kaup­in, og kynntar voru í fjöl­miðlum sam­hliða kaup­um, hafi verið réttar og nákvæmar. Gögn sem nefndin hefur undir höndum sýna þó með óyggj­andi hætti fram á að svo er ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hauck&Aufhäuser

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Að opin­bera Ólaf Ólafsson er ekki mann­rétt­inda­brot

Ólafur Ólafsson hefur kært íslenska ríkið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu fyrir það að Alþingi hafi skipað rann­sókn­ar­nefnd til að upp­lýsa um það að hann og sam­starfs­fé­lagar hans hefðu beitt ríkið, fjöl­miðla og almenn­ing allan stór­kost­legum blekk­ingum til að kom­ast yfir Bún­að­ar­bank­ann árið 2003. Ólafur telur að vinna og birt­ing á skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar hafi vegið „alvar­lega að orð­spori og æru“ hans án...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár