Fá loforð um breytingar í kosningastefnu Vinstri grænna

Kosn­inga­stefna Vinstri grænna er fremur almennt orðuð um flesta hluti, nema helst lofts­lags­mál, þar sem vilji er til að ganga lengra en nú er. Flokk­ur­inn vill að barna­bætur nái til fleiri en þær gera í dag og skoða þrepa­skiptan fjár­magnstekju­skatt.

Bjarni Jónsson oddviti VG í NV-kjördæmi og Katrín Jakobsdóttir flokksformaður á landsþinginu um liðna helgi.
Bjarni Jónsson odd­viti VG í NV-kjör­dæmi og Katrín Jak­obs­dóttir flokks­for­maður á lands­þing­inu um liðna helgi. Mynd: Steinþór Rafn Matthíasson

Efst á blaði í kosn­inga­á­herslum Vinstri grænna, sem mark­aðar voru á lands­þingi flokks­ins um liðna helgi, er að það skipti máli hverjir stjórni, en það var einnig yfir­skrift lands­þings­ins sjálfs. Flokk­ur­inn segir að það þurfi að „láta verkin tala, leysa úr ágrein­ingi og vera reiðu­búin að gera mála­miðl­anir til að árangri fyrir sam­fé­lagið allt.“

Í kosn­inga­stefnu flokks­ins er margt almennt orðað og fá bein­hörð lof­orð um aðgerðir sett fram, en hið sama á raunar við um kosn­inga­stefnur hinna stjórn­ar­flokk­anna tveggja, sem hafa nýverið verið kynntar.

Kjarninn kíkti á það helsta sem Vinstri græn settu inn í kosn­inga­stefnu­skrá sína á dög­unum.[links]

Skoða skuli þrepaskiptingu fjármagnstekjuskatts

Um skatta­mál segir að skatt­kerfið eigi að nýta að til að jafna kjör og meta skuli kosti þess að taka upp þrepa­skipt­ann fjár­magnstekju­skatt, líkt og Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og flokks­for­maður viðr­aði fyrir skemmstu.

Einnig segir að skatt­kerfið eigi að styðja við mark­mið Íslands í lofts­lags­málum, án þess að það sé nánar útskýrt. Skatt­kerfið á sömu­leiðis að vera rétt­látt og ekki veita nein tæki­færi á skattaund­anskotum, sam­kvæmt stefnu flokks­ins.

Vilja minnka losun um 60 prósent fyrir 2030

Vinstri græn segja að Ísland eigi að vera í far­ar­broddi er kemur að því að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, „með tíma­settri áætlun um orku­skipti í sam­göngum, þunga­flutn­ingum, sjáv­ar­út­vegi, land­bún­aði og bygg­ing­ar­iðn­aði,“ sem miði að því að Ísland verði óháð jarð­efna­elds­neyti árið 2045. Það er einna helst í þessum kafla kosn­inga­á­herslna VG sem finna má ein­hver tölu­sett mark­mið.

Vinstri græn segj­ast vilja að mark­mið Íslands um sam­drátt í losun verði upp­færð og stefnt verði að því að minnka losun um a.m.k. 60 pró­sent árið 2030 og að Ísland verði kolefn­is­hlut­laust eigi síðar en árið 2040.

Flokk­ur­inn segir að leggja skuli áherslu á fjöl­breytta sam­göngu­máta og að tryggja þurfi orku­skipti í almenn­ings­sam­göngum sam­hliða efl­ingu þeirra.

[adspot]

„Græn teng­ing milli höf­uð­borg­ar­svæðis og Kefla­vík­ur­flug­vallar verði eitt af for­gangs­mál­unum. Flýta þarf upp­bygg­ingu Borg­ar­línu. Efla þarf almenn­ings­sam­göngur um land allt og gera þær að raun­hæfum val­kosti,“ segir í kosn­inga­á­herslum flokks­ins.

Barnabætur nái til fleiri

Vinstri græn segj­ast vilja vinna gegn fátækt barna og bæta hag tekju­lægri fjöl­skyldna með því að láta barna­bætur ná til fleiri en þær gera í dag. Ekki kemur fram í stefn­unni hver skerð­ing­ar­mörk barna­bóta ættu að vera, að mati flokks­ins.

Flokk­ur­inn seg­ist einnig vilja auka stuðn­ing við félags­legt hús­næði, fjölga almennum íbúðum og gera rétt­látar úrbætur á fram­færslu­kerfi öryrkja, þar sem tekju­lægstu hóp­arnir og öryrkjar með börn verði í for­gangi.

Vinstri græn segj­ast sömu­leiðis vilja efla opin­bera heil­brigð­is­kerfið og lækka kostnað sjúk­linga með því að afnema öll komu­gjöld í heilsu­gæsl­unni og lækka gjöld fyrir aðra heil­brigð­is­þjón­ustu, lyf og hjálp­ar­tæki. Þá seg­ist flokk­ur­inn vilja auð­velda sveigj­an­leg starfs­lok og stuðla að „sam­tali kyn­slóð­anna um stór og lítil mál“ auk þess að vinna gegn ein­mana­leika aldr­aðra.

Flokk­ur­inn seg­ist vilja skapa ný og fjöl­breytt græn störf og koma í veg fyrir atvinnu­leysi. Einnig vilja Vinstri græn halda áfram að styrkja rann­sóknir, nýsköpun og skap­andi greinar og segja næsta skref eiga að vera „að styrkja enn betur við Rann­sókna­sjóð og Tækni­þró­un­ar­sjóð og gera var­an­legar breyt­ingar til að fjölga starfs­launum lista­manna.“

Vinstri græn segja háskóla vera und­ir­stöðu sterk­ari þekk­ing­ar­geira og að tryggja þurfi sam­bæri­lega fjár­mögnun þeirra og tíðkast ann­ars staðar á Norð­ur­löndum. Þetta áherslu­mál er í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur, en markið var sett á að ná þessu tak­marki fyrir árið 2025. Það er „komið vel á veg“, sam­kvæmt mati stjórn­valda sjálfra.

Flokk­ur­inn segir að styðja þurfi betur við inn­lenda mat­væla­fram­leiðslu, vinna tíma­setta áætlun um efl­ingu líf­rænnar fram­leiðslu, auka stuðn­ing við græn­met­is­rækt og tryggja mat­væla­ör­yggi þjóð­ar­innar.

„Sanngjarnt gjald“ af nýtingu auðlinda

Í stefnu Vinstri grænna segir að þau sem nýta auð­lindir í þjóð­ar­eign, „hvort sem það er land, orka, sjáv­ar­auð­lindin eða annað, þurfa að greiða sann­gjarnt gjald af þeirri nýt­ingu“ og að Alþingi eigi að tryggja auð­linda­á­kvæði í stjórn­ar­skrá ásamt skýru ákvæði um umhverfis- og nátt­úru­vernd.

Eins og fjallað hefur verið um hefur orða­lagið í lands­fund­ar­sam­þykktum flokks­ins varð­andi stjórn­ar­skrár­breyt­ingar verið túlkað sem „kúvend­ing“ Vinstri grænna í stjórn­ar­skrár­málum, en Katrín Odds­dóttir for­maður Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins benti á það um helg­ina að í stefnu flokks­ins frá árinu 2017 hefði verið fjallað um að ljúka þeirri vinnu sem hófst með þjóð­fund­inum 2010 og klára nýja stjórn­ar­skrá sem byggði á til­lögum stjórn­laga­ráðs.

Verndun 30 prósent svæða á landi og hafi fyrir 2030

Vinstri Græn segja Ísland geta náð „ein­stökum árangri í nátt­úru­vernd á alþjóða­vísu með því að vernda óbyggð víð­erni“ og vill flokk­ur­inn stefna að því að 30 pró­sent svæða á landi og hafi verði vernduð fyrir árið 2030.

„Áfram þarf að vinna að stofnun þjóð­garðs á mið­há­lendi Íslands og þjóð­garðs á Vest­fjörðum. Slíkir þjóð­garðar eru einnig mik­il­vægir til að tryggja vernd jarð­fræði­legrar og líf­fræði­legrar fjöl­breytni,“ segir í kosn­inga­stefnu flokks­ins.

[adspot]

Þar segir einnig að afgreiða þurfi 3. áfanga ramma­á­ætl­unar og end­ur­skoða lög­gjöf­ina um ramma­á­ætlun. Einnig segir flokk­ur­inn að það þurfi að end­ur­skoða stærð­ar­við­mið virkj­ana­fram­kvæmda þar sem „mega­vött eru ómark­tækur mæli­kvarði á umhverf­is­á­hrif“, auk þess sem halda þurfi áfram að end­ur­skoða reglu­verk vegna vind­orku.

Réttarstaða brotaþola verði betur tryggð

Vinstri græn segj­ast vilja halda áfram því verk­efni að útrýma kyn­bundnu ofbeldi og tryggja betur rétt­ar­stöðu þolenda kyn­bund­ins ofbeldis, kyn­ferð­is­of­beldis og áreitni með „skýrum laga­breyt­ingum og mark­vissri fram­kvæmd.“

Flokk­ur­inn seg­ist líka vilja stíga „stór skref“ í að útrýma kyn­bundnum launa­mun, meðal ann­ars með því að „end­ur­meta störf kvenna­stétta“ og tryggja það að Ísland standi við heims­mark­mið Sam­ein­uðu þjóð­anna um fullt jafn­rétti kynj­anna fyrir árið 2030.

Þá seg­ist flokk­ur­inn vilja brúa bilið á milli fæð­ing­ar­or­lofs og leik­skóla. Næsta skrefið í þeim efnum, nú þegar búið er að lengja fæð­ing­ar­or­lofið, sé „að gera tíma­setta áætlun í sam­starfi við sveit­ar­fé­lögin um hvernig leik­skól­arnir geta tekið við börnum að loknu fæð­ing­ar­or­lofi.“

Þá segir flokk­ur­inn að tryggja þurfi aðgengi að iðn- og verk­námi um allt land og að stefna skuli að því að leggja af sér­stök skóla­gjöld í list­námi. Vinstri græn vilja líka að fram­halds­skóla­nemar hafi meiri sveig­an­leika í lengd náms, til þess að þeir hafi aukið svig­rúm til fjöl­breytni og félags­starfs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár