Maður fannst látinn í Airbnb-íbúð í Kópavogi

„Þau voru auð­vitað bara í áfalli,“ segir eig­andi Airbnb-íbúðar í Kópavogi, þar sem maður um þrí­tugt fannst lát­inn í afmæl­is­ferð.

Frá Kópavogi
Frá Kópavogi Vina­hópur í Airbnb-íbúð varð fyrir því áfalli að einn úr hópnum vakn­aði ekki að morgni laug­ar­dags­ins.

Maður um þrí­tugt fannst lát­inn að morgni laug­ar­dags í lúxus­í­búð í Sala­hverf­inu í Kópavogi. Maðurinn var hluti af vina­hópi sem hafði leigt húsið vegna afmæl­is­fögn­uðar á Íslandi. Andlát hans varð ljóst þegar leið­sögu­maður kom að sækja hóp­inn um morg­un­inn, en hann sýndi engin við­brögð þegar reynt var að vekja hann. 

„Þau voru auð­vitað bara í áfalli,“ segir eig­andi hús­næð­is­ins í sam­tali við Stundina. „Þau hringdu í mig til að láta mig vita hvað hefði gerst. Þetta var mikið áfall og þau sögð­ust ætla að taka næstu flug­vél heim.“

Maðurinn er banda­rískur, eins og sá sem bók­aði íbúð­ina á Airbnb, en hóp­ur­inn kom til Íslands frá Banda­ríkj­unum, Bret­landi og víðar, þar sem Ísland þótti vera mið­lægur fund­ar­staður.

Gest­gjaf­inn hefur tak­mark­aðar upp­lýs­ingar um það sem gerð­ist og hefur ekki rætt við lög­reglu. „Hann varð bráð­kvaddur. Ég veit bara að þeim var veitt áfalla­hjálp. Ég hef sent sam­úð­ar­kveðjur, og þau sendu til baka „takk fyrir“ og fóru á hótel. Þau gátu ekki hugsað sér að gista þarna aftur. Ég hitti þau aldrei eftir þetta. Ég bara kom að þarna löngu seinna, þegar lög­reglan var búin að ganga frá öllum hlutum. Það fannst mér rosa­lega flott hjá lög­regl­unni að þau voru færð strax í áfalla­hjálp. Ég er sjálf nýbúin að upp­lifa svona erlendis, svona skyndi­dauða, og þar var engin aðstoð, ekki neitt.“

Grímur Grímsson, yfir­lög­reglu­þjónn á mið­lægri rann­sókn­ar­deild Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, segir að ekki sé grunur um að and­látið hafi borið að með sak­næmum hætti. „Það eru öll manns­lát rann­sökuð, en hvort það sé eitt­hvað voveif­legan atburð að ræða er annað mál. Hann hafði verið á ferð með hópi manna. Málið er í eðli­legum far­vegi hvað varðar rann­sókn. Það er allt skoðað í svona málum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár