Blóðbaðið í smábænum

Tilraun Mose Norman til að kjósa í for­seta­kosn­ing­unum í heimabæ sínum í Flórída fyrir heilli öld varð til þess að múgur hvítra manna réðst til atlögu við svarta íbúa bæj­ar­ins og úr varð blóð­bað, það mesta sem orðið hefur á kosn­inga­degi í land­inu.

July Perry var drepinn og lík hans hengt fyrir framan hús dómara í Orlando.
July Perry var drep­inn og lík hans hengt fyrir framan hús dóm­ara í Orlando.

Þó að frá­sögnum beri ekki að fullu saman um hvernig þetta allt byrj­aði eru tvö atriði óum­deil­an­leg: 2. nóv­em­ber 1920, dag­inn sem banda­rískar konur gátu kosið for­seta í fyrsta sinn, voru framin í smábæ í Flórída mestu ofbeld­is­verk á kosn­inga­degi í sögu Banda­ríkj­anna.

Hin stað­reyndin sem engin velk­ist í vafa um er sú að ofbeld­is­menn­irnir komust upp með verkn­að­inn.

Það sem gerð­ist í smá­bænum Ocoee fyrir hund­rað árum rataði almennt ekki í sögu­bæk­urnar. Þar eru engin minn­is­merki um fórn­ar­lömb að finna eða annað sem minnir á það sem gerð­ist. Reyndar var það ekki fyrr en nýlega að margir afkom­endur fórn­ar­lambanna komust að hinu sanna: Að fólk hefði verið drepið. Að aðrir hafi flúið. Að jörðum, heim­ilum og lífs­við­ur­væri hafi verið rænt af sak­lausum mann­eskjum. „Flestir þeir sem búa í Ocoee vita ekki einu sinni hvað gerð­ist hér,“ segir Pamela Schwartz, for­stöðu­maður menn­ing­ar­sögu­safns í Orlando, í sam­tali við Washington Post.

Bærinn Ocoee var stofn­aður um miðja nítj­ándu öld af hvítum karli sem þar sett­ist að. Þar hélt hann 23 mann­eskjum ætt­uðum frá Afríku í þrælkun. Margir suð­ur­ríkja­menn sem börð­ust – og töp­uðu – í borg­ara­stríð­inu sett­ust þar að og höfðu svart fólk við vinnu á ökrum sínum. Undir lok níunda ára­tugar 19. aldar gafst sumum þessum verka­manna tæki­færi til að kaupa sér land­skika sem var á þessum tíma, sér­stak­lega í banda­ríska suðr­inu, sjald­gæft.

[adspot]

Annað var óvenju­legt. Af mann­tali sem gert var árið 1920, var um þriðj­ungur þeirra 800 manna sem bjuggu í Ocoee svart fólk og í bænum voru ekki sér­stök hverfi svartra eins og víð­ast hvar ann­ars staðar á þessum slóðum. Hvítir og svartir bjuggu hlið við hlið í ára­tugi er hinn hrylli­legi atburður átti sér stað.

Í kjöl­far fyrri heims­styrj­ald­ar­innar snéru banda­rískir her­menn heim af víg­völl­unum í Evrópu þar sem þeir höfðu orðið vitni að jafn­ari rétt­indum svartra og hvítra en í heima­land­inu.

Svartir her­menn höfðu von­ast eftir sam­bæri­legum breyt­ingum í banda­rísku sam­fé­lagi en öfga­sam­tök á borð við Ku Klux Klan reyndu að hindra það og gengu ber­serks­gang í sam­fé­lögum svartra. Hið „rauða sumar“ árið 1919 var lengi í minnum haft.

Konur fengu kosn­inga­rétt og öfga­hóp­arnir ótt­uð­ust að svartir Banda­ríkja­menn myndu reyna að kjósa líka.

Í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna árið 1920 miðl­uðu stjórn­mála­leið­togar í Ocoee upp­lýs­ingum til svartra íbúa um hvernig ætti að skrá sig til að geta kosið og hvernig ætti að kjósa. Ku Klux Klan ærð­ist af reiði og sendi hót­un­ar­bréf til leið­tog­anna þar sem m.a. stóð að standa ætti vörð um yfir­ráð hvíta kyn­stofns­ins og sá sem „skipti sér af því“ myndi fá að kenna á því. Meðlimir Ku Klux Klan héldu fjölda­fundi vítt og breitt um Flórída þar sem svörtum var hótað, myndu þeir taka þátt í kosn­ing­unum.

Þrátt fyrir hót­an­irnar ætl­uðu margir svartir íbúar Ocoee að kjósa.

Leitaði til dómara

Meðal þeirra sem mættu á kjör­stað 2. nóv­em­ber var ávaxta­bónd­inn Mose Norman. Staða hans í sam­fé­lag­inu var góð. Hann naut vel­gengni og var fyrsti íbúi Ocoee til að eign­ast bíl. Á kjör­stað var honum til­kynnt að hann gæti ekki kosið þar sem hann hefði ekki greitt kosn­inga­skatt, skatt sem not­aður var til að hindra að svartir, sem voru almennt mun fátæk­ari en hvítir, nýttu kosn­inga­rétt sinn.

Norman leit­aði til dóm­ara í Orlando með mál sitt og snéri síðar aftur á kjör­stað. Enn á ný var honum vísað frá. Það sem gerð­ist næst er ekki að fullu vitað en talið er að þá þegar hafi múgur hvítra manna, fólk sem hafði lagt leið sína þangað frá Orlando, safn­ast saman við kjör­stað­inn. Norman flúði til vinar síns, July Perry, en yfir­gaf svo bæinn.

Múgurinn, leiddur af fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóra og með­limi í Ku Klux Klan, elti Norman að heim­ili Perrys og þar hófst skot­hríð. Tveir hvítir menn féllu og Perry og dóttir hans særð­ust. Perry var hand­tek­inn og stungið í fanga­klefa í Orlando. En múg­ur­inn braust þar inn, flutti Perry þaðan og drap hann. Lík hans var hengt upp við heim­ili dóm­ar­ans sem hafði ráð­lagt Norman að reyna að kjósa á ný.

Í kjöl­farið var lagt til atlögu við hús svartra í Ocoee. Ekki er vitað hversu mörg heim­ili voru eyðilögð og ekki heldur hversu margir voru drepnir í blóð­bað­inu sem fylgdi. Eitt dag­blað þess tíma sagði sex. En mun lík­legra er talið að milli 30 og 60 hafi verið drepnir.

Fjöl­margir lögðu á flótta þessa nótt, gengu í gegnum fenin með börn sín á hand­leggnum. Í mann­tali nokkru síðar hafði svörtum íbúum Ocoee fækkað úr 255 í tvo. Sumir reyndur að snúa aftur, fólk sem hafði átt land og stundað við­skipti. En þeir voru flæmdir burt á nýjan leik.

Íbúar Ocoee voru nær allir hvítir næstu ára­tug­ina. Það var ekki fyrr en á níunda ára­tugnum að svartir fóru aftur að setj­ast þar að.

Aðeins tvö ár eru síðan að bæj­ar­yf­ir­völd í Ocoee við­ur­kenndu opin­ber­lega að blóð­baðið hefði átt sér stað og verið með þeim hætti sem hér hefur verið lýst. Þau eru nú sögð vinna að því að biðja afkom­endur þeirra sem lét­ust opin­ber­lega afsök­unar og að greiða þeim bætur fyrir þann eigna­missi sem ætt­ingjar þeirra urðu fyrir.

Þá eru hug­myndir uppi um að breyta svæði sem talið er vera kirkju­garður svartra íbúa bæj­ar­ins, í minn­ing­ar­reit.

Rúmlega átt­ræð kona, dóttir hjóna sem flúði ofbeldið árið 1920, býr nú í Ocoee. Hún bauð sig fram til starfa á kjör­stað í kosn­ing­unum í vik­unni. Sonur hennar, sem flutti til bæj­ar­ins fyrir nokkrum árum, mætti á kjör­stað og kaus í for­seta­kosn­ing­unum. Sú stað­reynd að son­ur­inn kaus í heimabæ afa síns hefur að hennar mati mikla þýð­ingu. „Hann þekkir sög­una,“ segir gamla konan. „Við munum halda því sem gerð­ist á lofti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár