Orkupakka- og þungunarrofsumræður hreyfa ekki fylgi flokka

Þrátt fyrir hörð átök á póli­tíska svið­inu þá hreyf­ist fylgi blokka á Alþingi varla milli mán­aða. Það hefur raunar hald­ist mjög stöðugt í lengri tíma og mesta hreyf­ingin frá síð­ustu kosn­ingum hefur verið fylg­is­aukn­ing frjáls­lyndra miðju­flokka.

Forystumenn flokka í Kryddsíld Stöðvar 2 um síðustu áramót.
For­ystu­menn flokka í Krydd­síld Stöðvar 2 um síð­ustu ára­mót. Mynd: Skjáskot Stöð 2.

Í maí­mán­uði var hart tek­ist á um tvö mál á hinu póli­tíska sviði. Fyrst um frum­varp um þung­un­ar­rof, þar sem það var heim­ilað fram á 22. viku með­göngu óháð því hvaða ástæður liggja að baki. Áður þurfti ákvörðun um þung­un­ar­rof svo seint á með­göngu að fara fyrir nefnd sem varð að gefa leyfi. Lög þess efnis voru sam­þykkt 16. maí með heilum stuðn­ingi fimm flokka, tveggja úr stjórn og þriggja úr stjórn­ar­and­stöðu.

Í kjöl­farið tók síðan við for­dæma­laust mál­þóf vegna þriðja orku­pakk­ans svo­kall­aða þar sem Mið­flokk­ur­inn lagð­ist einn í mál­þóf, sem sér reyndar enn ekki fyrir end­ann á. Þegar umræðu um orku­pakk­ann var frestað í síð­ustu viku, til að gera fram­göngu ann­arra mála mögu­lega, þá hafði umræðan staðið í 134 klukku­stundir og átta mín­útur. Einungis vantar klukku­stund í að umræðan slái umræðu­met úr Icesave-deil­unni og verður það met vænt­an­lega slegið síðar í dag þegar orku­pakk­inn fer aftur á dag­skrá.

Þrátt fyrir allan hit­ann sem var í umræðum um þessi mál, og skýrar víg­línur sem mynd­ast hafa vegna þeirra, þá hreyf­ist fylgi flokka varla milli mán­aða sam­kvæmt könnun Gallup. Fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna dalar innan skekkju­marka, fylgi frjáls­lyndu miðju­flokk­anna í stjórn­ar­and­stöðu eykst innan skekkju­marka og Mið­flokk­ur­inn tekur aðeins af hinum flokknum sem var heill á móti þung­un­ar­rofi og orku­pakk­anum, Flokki fólks­ins.

Stöð­ug­leik­inn í íslenskum stjórn­málum sem ríkt hefur und­an­farna mán­uði virð­ist lítið ætla að hagg­ast.

Stuðningur aftur undir 50 prósent

Sam­an­lagt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja mælist nú 44,3 pró­sent. Það hefur ekki mælst lægra frá því í nóv­em­ber­lok, eða rétt áður en að Klaust­ur­málið svo­kall­aða komst á almanna­vit­orð. Sam­an­lagða fylgið er umtals­vert minna en í þing­kosn­ing­unum 2017, þegar 52,9 pró­sent kjós­enda kusu Sjálf­stæð­is­flokk, Vinstri græn eða Fram­sókn­ar­flokk. Breyt­ingin á milli mán­aða er þó sára­lítil. Sam­eig­in­legt fylgi flokk­anna mæld­ist 44,9 pró­sent í apríl.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er sem fyrr stærsti flokkur rík­is­stjórn­ar­innar og lands­ins, en 23,4 pró­sent lands­manna segja að þeir myndu kjósa hann. Vinstri græn, flokkur Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, dalar um tæpt pró­sent á milli mán­aða og mælist nú með 12,4 pró­sent fylgi. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn bætir lít­il­lega við sig og myndi fá 8,5 pró­sent atkvæða ef kosið yrði í dag.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina skreið yfir 50 pró­sent í apr­íl­mán­uði, og var það í fyrsta sinn frá því í júní í fyrra sem meiri­hluti lands­manna sagð­ist styðja hana. Í maí féll stuðn­ing­ur­inn að nýju rétt undir 50 pró­sent markið og mælist nú 49,6 pró­sent.

Bæta lítillega við sig

Sam­fylk­ingin er sem fyrr stærsti stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn með 16,6 pró­sent atkvæða, sem er smá­vægi­leg bæt­ing frá könn­un­inni sem gerð var í apríl. Þar á eftir koma Píratar með 11,2 pró­sent fylgi og Viðreisn með 10,9 pró­sent fylgi. Báðir þessir flokkar standa nán­ast nákvæm­lega í stað milli kann­ana. Fylgi þess­arra þriggja flokka, sem eiga sam­leið í mörgum málum og for­ystu­menn þeirra hafa kallað eftir því að myndi kjarn­ann í næstu rík­is­stjórn, mælist sam­an­lagt 38,7 pró­sent.

Þetta sam­eig­in­lega fylgi hefur verið mjög stöðugt und­an­farna mán­uði og svo virð­ist sem hreyf­ing á fylgi flokk­anna þriggja eigi sér fyrst og síð­ast stað á milli þeirra, en leiti lítið á aðra flokka sem eru í boði. Allir flokk­arnir þrír mæl­ast með meira fylgi en þeir fengu í síð­ustu kosn­ingum og sam­eig­in­legt fylgi þeirra er tæpum ell­efu pró­sentu­stigum hærra nú en í októ­ber 2017.

Taka frá hvorum öðrum

Mið­flokknum, sem tek­ist hefur að end­ur­heimta þorra kjör­fylgis síns í kjöl­far Klaust­ur­máls­ins, mælist með tíu pró­sent fylgi. Það er um einu pró­senti meira en fyrir mán­uði síðan og í fyrsta sinn sem flokk­ur­inn nær tveggja stafa tölu í mæl­ingum Gallup frá því að Klaust­ur­málið var opin­berað. Til sam­an­burðar var fylgi Mið­flokks­ins 5,7 pró­sent í des­em­ber síð­ast­liðnum.

Flokkur Fólksins, sem deilir mörgum áherslum með Mið­flokknum, tapar að sama skapi tæpu pró­senti milli kann­ana og mælist með 3,2 pró­sent fylgi. Sam­an­lagt fylgi þess­arar stjórn­ar­and­stöðu­blokkar mælist því 13,2 pró­sent. Það er umtals­vert minna en fylgið sem þessir tveir flokkar fengu í síð­ustu þing­kosn­ingum, þegar 17,8 pró­sent kjós­enda kaus annan hvorn þeirra, og báðir flokk­arnir mæl­ast enn fyrir neðan kjör­fylgi.

Sósíalistaflokkurinn næst minnsti flokkurinn

Sós­í­alista­flokkur Íslands hefur verið að mæl­ast á svip­uðum slóðum og Flokkur fólks­ins í fylgi und­an­farna mán­uði. Frá því í des­em­ber hefur fylgi hans ætið mælst minnst á fjórða pró­sent og í des­em­ber og jan­úar mæld­ist flokk­ur­inn með yfir fimm pró­senta fylgi, sem myndi duga honum til að ná inn manni í kosn­ingum.

Fylgi Sós­í­alista­flokks­ins mælist nú 3,7 pró­sent sem þýðir að fleiri myndu kjósa hann en t.d. Flokk fólks­ins, sem fékk fjóra þing­menn kjörna á þing 2017, þótt ein­ungis tveir þeirra séu eftir í flokknum nú eftir að Ólafur Ísleifs­son og Karl Gauti Hjalta­son gengu til liðs við Mið­flokk­inn.

Þetta fylgi myndi þó ekki duga Sós­í­alista­flokknum til að koma manni inn á þing. Flokkur fólks­ins er auk þess, að minnsta kosti sem sem stendur, tölu­vert frá því að ná í nægj­an­lega mikið fylgi til að ná inn manni á ef kosið væri nú. Því myndu tæp­lega sjö pró­sent atkvæða falla niður dauð miðað við könnun Gallup í maí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár