Færri vilja koma heim

Ekki hafa færri Íslend­ingar snúið heim eftir búsetu í útlöndum síðan árið 2010. Bilið á milli aðfluttra og brott­fluttra eykst stöðugt.

Bilið á milli fjölda þeirra Íslend­inga sem flytja frá land­inu og þeirra sem snúa aftur heim breikkar stöðugt. Ekki hafa færri flutt heim á ný und­an­farna 12 mán­uði síðan árið 2010, tveimur árum eftir efna­hags­hrun.

Tölur Hag­stof­unnar eru gefnar út á hverjum árs­fjórð­ungi und­an­farin ár og tölu­verðar sveiflur eru á milli árs­fjórð­unga. Yfir­leitt flytj­ast flestir út á haustin, þar sem fólk hefur nám erlendis á þeim árs­tíma, og svip­aðar sveiflur er að sjá þegar tölur eru skoð­aðar varð­andi þá sem flytja heim. 

Það er ekk­ert endi­lega rétt að tala alltaf um auk­inn flótta frá land­inu, þegar fleiri fari út heldur en komi heim, eins og fram kemur í Vís­bend­ingu, Vikuriti um við­skipti og efna­hags­mál. Fram að árinu 2013 fluttu um 4.000 manns burt á árinu, en fækk­aði um nærri þús­und fram að hausti sama ár. Á sama tíma fjölg­aði þeim sem sneru aftur heim. 

Þá segir í Vís­bend­ingu að þessi þróun sé skilj­an­leg í ljósi þess að þarna voru fimm ár liðin frá efna­hags­hrun­inu og áhrif þess höfðu dvínað tals­vert. Þá er bent á að á þessum tíma var komið á jafn­vægi á milli brott­fluttra og aðfluttra Íslend­inga. 

Frá þeim tíma hefur þeim fjölgað sem flytja frá land­inu á sama tíma og þeim fækkar sem snúa aftur heim. Bilið fer breikk­andi á und­an­förnum tveimur árum. 

Skýr þróun

Kjarninn hefur greint frá þess­ari þróun und­an­farin miss­eri. Alls fluttu 3.210 íslenskir rík­is­borg­arar frá Íslandi á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2015, eða um 1.130 fleiri en fluttu til þess. Brott­fluttir íslenskir rík­is­borg­ara umfram heim­komna hafa ein­ungis fimm sinnum verið fleiri sam­kvæmt gagna­grunni Hagstofu Íslands, sem nær til 1961. Það voru árin 1970, 1995, 2009, 2010 og 2011. Öll þau ár komu hins vegar í kjöl­far kreppu­ára, þ.e. ára þar sem sam­dráttur ríkti í íslensku hag­kerfi. Það er ekki raunin nú, þar sem hag­vöxtur hefur verið hér­lendis frá árinu 2011.

Tölu­verðar umræður hafa skap­ast um fram­setn­ingu þess­ara talna. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra gerði þær meðal ann­ars að umtals­efni í ára­mótapistli sínum í Morg­un­blað­inu og Hag­stofu­stjóri sendi einnig frá sér yfir­lýs­ingu. 

VR hefur bent á að brott­flutn­ingur frá land­inu sé að aukast á sama tíma og aðflutn­ingur drag­ist saman, sem sé óvenju­legt í ljósi þess að almennt atvinnu­leysi fer minnk­andi og hag­vöxtur eykst. Fjöldi þeirra sem eru með háskóla­menntun og eru án vinnu hefur auk­ist um 275 pró­sent á síð­ustu 10 árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár