Atvinnulausum með háskólamenntun hefur fjölgað um tæp 300 prósent á 10 árum

Aðfluttir Íslend­ingar umfram brott­flutta hafa sjaldan eða aldrei verið jafn fáir og nú þegar ekki er kreppu­á­stand á Íslandi. VR segir í nýrri skýrslu að földu atvinnu­leysi gæti verið um að kenna.

Brott­flutn­ingur frá land­inu er að aukast á sama tíma og aðflutn­ingur dregst saman. Þetta er óvenju­legt í ljósi þess að almennt atvinnu­leysi fer minnk­andi og hag­vöxtur eykst. Fjöldi þeirra sem eru með háskóla­menntun og eru án vinnu hefur þó auk­ist um 275 pró­sent á síð­ustu 10 árum, á meðan VR sendi frá sér skýrslu í morgun þar sem rýnt er í tölur um nettó aðflutn­ing hingað til lands og sjón­unum beint að því sem er kallað falið atvinnu­leysi.

Þegar sagan er skoðuð sést að fólk hefur flutt frá land­inu í meira mæli þegar illa árar í efna­hags­líf­inu. Þó hefur mun­ur­inn á aðfluttum og brott­fluttum aldrei verið meiri á tímum í íslensku efna­hags­lífi sem ekki telj­ast til kreppu­ára, en nú. 

„Mikið magn fjár­magns hefur flætt inn í íslenskt hag­kerfi sein­ustu mán­uði en því getur fylgt ofhitnun hag­kerf­is­ins. Velta á fast­eigna­mark­aði hefur auk­ist mikið sein­ustu árin og nálg­ast, að raun­virði, velt­una 2004. Skuldir heim­il­anna eru ekki að vaxa og því líkur á að stór hluti nýrra útlána banka­kerf­is­ins fari í upp­greiðslur lána Íbúða­lána­sjóðs,” segir í skýrslu VR.

Fram kemur í skýrsl­unni að engar hald­bærar skýr­ingar hafi komið fram fyrir þess­ari þróun en hug­myndir eru um hvort ástæðan sé meðal ann­ars ein­hæf fjölgun starfa und­an­farin ár. Þá er bent á að ferða­þjón­ustan hafi vaxið mikið á þessu tíma­bili en það sé atvinnu­grein sem hafi litla þörf fyrir vinnu­afl með iðn-, tækni- eða háskóla­menntun. 

Þetta end­ur­spegl­ast í tölum Vinnu­mála­stofn­unar um menntun atvinnu­lausra, en á fyrstu 11 mán­uðum árs­ins 2005 var fjöldi atvinnu­lausra með háskóla­menntun 10,6 pró­sent af heild­ar­fjölda atvinnu­lausra. Á sama tíma 2015 var hlut­fallið 25,2 pró­sent. Fjöldi atvinnu­lausra með háskóla­menntun jókst um 272 pró­sent á tíma­bil­inu, en aðeins 9 pró­sent hjá þeim sem hafa lokið grunn­skóla­námi eða öðru sam­bæri­legu. Fyrir þá sem lokið hafa iðn­námi hefur fjöld­inn auk­ist um 84 pró­sent á sama tíma­bili.

„Ef lítið fram­boð verður af verð­mætum störfum á Íslandi á næstu árum er það mikið áhyggju­efni og gæti stuðlað að frek­ari brott­flutn­ingi þrátt fyrir gott ástand í efna­hags­líf­inu,” segir í skýrslu VR.

Í tölum sem ASÍ sendi frá sér í síð­ustu viku, og Kjarninn greindi frá, kemur fram að brott­fluttir íslenskir rík­is­borg­arar hafi verið 0,29 pró­sent umfram aðflutta sem hlut­fall af mann­fjölda frá byrjun árs 2014 og út sept­em­ber­mánuð 2015. Það er ekki ósvipað hlut­fall og brott­flutn­ingur var á fyrri tíma­bilum þar sem margir fluttu af landi brott. Stjórn­völd hafa sett fram gagnýni á þessa fram­setn­ingu og sagt að það virð­ist sem svo að afmark­aður en hávær hópur fólks eigi erfitt með að sætta sig við að hlut­fall brott­fluttra Íslend­ingar sé í raun lágt, séu tölur Hag­stof­unnar skoð­aðar.

Í grein­ingu ASÍ kom einnig fram að ein mögu­leg skýr­ing á land­flótt­anum væru aðstæður á vinnu­mark­aði, það er að það vanti störf fyrir vel menntað fólk.

Í skýrslu VR er kafli sem ber heitið Falið atvinnu­leysi, þar sem fjallað er um að tölur Hag­stof­unnar um atvinnu­leysi segi ekki alltaf alla sög­una um hver staðan raun­veru­lega er. Þeir sem eru í hluta­starfi en vilja vinna fullt starf telj­ast til að mynda ekki atvinnu­lausir, þó að þeir séu ekki að vinna eins mikið og þeir vilja. Einnig er fólk sem er utan vinnu­mark­aðar en getur ekki hafið störf innan tveggja vikna auk þeirra sem eru ekki að leita en eru til­búnir að vinna ef starf stendur þeim til boða. Ein­stak­lingar í síð­ar­nefndu tveimur hóp­unum telj­ast ekki atvinnu­lausir en þá má flokka sem mögu­legt vinnu­afl þrátt fyrir að vera ekki tekið með sem vinnu­afl í form­legu skil­grein­ing­unni, segir í skýrsl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár