ASÍ segir landflótta frá Íslandi þrátt fyrir góðæri

Þrátt fyrir bætt efna­hags­leg skil­yrði hefur brott­flutn­ingu íslenskra rík­is­borg­ara frá Íslandi auk­ist á und­an­förnum tveimur árum. Fleiri Íslend­ingar flytja frá land­inu en flytja til þess. Frá árinu 1961 hafa verið átta tíma­bil þar sem brott­flutn­ingur á hverju ári hefur verið yfir með­al­tali áranna 1961 til 2015. Sjö þeirra tíma­bila hafa verið í tengslum við öfgar í efna­hags­lífi þjóð­ar­innar á borð við brott­hvarf síld­ar­innar, mikla verð­bólgu eða hátt atvinnu­leysi. Eina tíma­bilið af þessum átta sem sker sig úr er 2014 til 2015 þar sem engar hefð­bundnar efna­hags­legar for­sendur eru fyrir auknum brott­flutn­ingi. Fólk flytur frá Íslandi þrátt fyrir efna­hags­legan upp­gang.

Þetta kemur fram í nýrri grein­ingu frá Alþýðu­sam­bandi Íslands (ASÍ) á brott- og aðflutn­ingi til Íslands síð­ustu rúmu 50 árin.

Þróun sem á sér fá fordæmi

Í grein­ing­unni segir að þeir brott­flutn­ingar sem fylgdu í kjöl­far hruns­ins hafi tekið enda 2013 þegar vinnu­mark­aður fór að rétta úr kútnum og störfum tók að fjölga. „Upp­gangur í ferða­þjón­ustu var þá orð­inn meg­in­drif­kraftur í fjölgun starfa, bæði með beinum hætti ásamt fjölgun afleiddra starfa t.d. í verslun, veit­ingum, hót­el­bygg­ingum. Sú þróun hefur haldið áfram und­an­farin tvö ár auk þess sem efna­hags­leg skil­yrði hafa batnað. Kaup­máttur hefur vaxið, verð­bólga hefur lækkað og atvinnu­horfur eru góðar. Bætt efna­hags­leg skil­yrði hafa hins­vegar ekki dregið úr brott­flutn­ingi Íslend­inga, heldur þvert á móti hefur hann auk­ist und­an­farið.“

Í tölum ASÍ kemur hins vegar fram að hlut­irnir hafi breyst árið 2014. Þar segir að brott­fluttir íslenskir rík­is­borg­arar hafi verið 0,29 pró­sent umfram aðflutta sem hlut­fall af mann­fjölda frá byrjun árs 2014 og út sept­em­ber­mánuð 2015. Það er ekki ósvipað hlut­fall og brott­flutn­ingur var á fyrri brott­flutn­ings­tíma­bilum.

Þróunin 2014-2015 sé hins vegar óvenju­leg og veki upp spurn­ingar „þar sem brott­flutn­ingur Íslend­inga eykst á sama tíma og vinnu­afls­eft­ir­spurn kallar á fjölgun aðfluttra erlendra rík­is­borg­ara. Slík þróun á sér fá for­dæmi hér á landi.“

Vantar störf fyrir menntað fólk

Að mati ASÍ er ein mögu­leg skýr­ing á land­flótta Íslend­inga aðstæður á vinnu­mark­aði. Einhæf fjölgun starfa und­an­farin ár hafi ýtt undir mis­ræmi fram­boðs og eft­ir­spurnar vinnu­afls. „Þannig hefur fjölgun starfa und­an­farin tvö ár að mestu leyti verið drifin áfram af upp­gangi í mann­afls­frekum greinum á borð við ferða­þjón­ustu og tengdum störf. Þær greinar hafa hins vegar litla þörf fyrir menntað vinnu­afl t.d. iðn-, tækni- eða háskóla­menntað. Skýr merki um þessa þróun sjást í sam­setn­ingu atvinnu­lausra þar sem hlut­fall háskóla­mennt­aðra fer nú sífellt hækk­andi.“

ASÍ segir að reynslan sýni að hag­vöxtur og jákvæð efna­hags­leg skil­yrði dragi úr búferla­flutn­ingum Íslend­inga og því sé ekki ólík­legt að sú verði raunin á næstu árum miðað við núver­andi horfur í hag­kerf­inu. „Ef ástæða brott­flutn­inga er hins vegar lítið fram­boð verð­mætra starfa, ósam­keppn­is­hæf lífs­kjör auk skorts á fram­tíð­ar­sýn og tæki­færum þá er það veru­legt áhyggju­efni.“

Pólitísk átök um tölur

Í nóv­em­ber 2015 birti Morg­un­blaðið frétt þar sem sagði að alls hafi 3.210 íslenskir rík­is­borg­arar flutt frá Íslandi á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2015, eða um 1.130 fleiri en fluttu til þess. Brott­fluttir íslenskir rík­is­borg­ara umfram heim­komna hefðu ein­ungis fimm sinnum verið fleiri sam­kvæmt gagna­grunni Hagstofu Íslands, sem nær til 1961. Það voru árin 1970, 1995, 2009, 2010 og 2011. Öll þau ár komu hins vegar í kjöl­far kreppu­ára, þ.e. ára þar sem sam­dráttur ríkti í íslensku hag­kerfi. Það er ekki raunin nú, þar sem hag­vöxtur hefur verið hér­lendis frá árinu 2011. Því er ekki um kreppu­flutn­inga að ræða.

Þar var einnig rætt við Ásgeir Jónsson, dós­ent í hag­fræði við Háskóla Íslands. Hann segir að það virð­ist eitt­hvað djúp­stæð­ara á ferð­inni og að vís­bend­ingar séu um að margt háskóla­fólk flytji úr landi. Batinn á vinnu­mark­aði, sem átt hefur sér stað á und­an­förnum árum, hefði ekki skilað sér til mennt­aðs fólks nema að tak­mörk­uðu leyti.

Hagstofa Íslands brást við frétt­inni með því að birta í lok nóv­em­ber þar sem sagði að eng­ar­mark­verðar breyt­ingar hafi átt sér stað á hlut­falli íslenskra rík­is­borg­ara sem fluttu til og frá land­inu á mis­mun­andi ald­urs­bili árið 2015 borið saman við sam­bæri­legt hlut­fall áranna 1986 til 2014. Aukin fjöldi brott­fluttra er ekki umfram það sem telja má eðli­lega sveiflu miðað við fyrri ár.

Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra, og Sigurður Már Jónsson, upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar,vís­uðu báðir til fréttar Hag­stof­unnar í stöðu­upp­færslum á Facebook í kjöl­farið. Jóhannes Þór sagði að þá geti fólk „hætt að fabúlera um að ungt fólk sé að flýja rík­is­stjórn og „Kaf­ka­íska" spill­ingu á Íslandi miklu meira en áður. Hag­stofan segir nefni­lega að það sé barasta ekk­ert þannig.“

Sagði frétt Hagstofu stórfurðulega

Gylfi Magn­ús­son, dós­ent við Háskóla Íslands og fyrrum efna­hags- og við­skipta­ráð­herra, bland­aði sér einnig í umræð­urnar og sagði leið­rétt­ing­una sem Hagstofa Íslands sendi frá sér vegna fréttar Morg­un­blaðs­ins um fólks­flutn­inga frá Íslandi hafi verið „stórfurðu­leg“ og skildi ekk­ert í því af hverju Hag­stofan láti slíka frétt frá sér. Gylfi sagði tölur Hag­stof­unnar tala skýru máli. „Frá 1961 hafa brott­fluttir með íslenskt rík­is­fang verið að með­al­tali 0,18% af fólks­fjölda á hverju ári. Árið 2013 var hlut­fallið komið niður í 0,01% en hefur síðan farið ört hækk­andi. Í fyrra var það 0,23%, þ.e. meira en í með­al­ári og miðað við fyrstu þrjá árs­fjórð­unga þessa árs verður hlut­fallið 0,46% í ár - sem er tala sem áður hefur yfir­leitt bara sést í efna­hag­skreppum. Brott­flutn­ingur íslenskra rík­is­borg­ara í ár stefnir í að verða meiri en í krís­unni 2008 til 2012.“

Kjarninn birti í kjöl­farið Pælingu dags­ins þar sem spurt var hvort Hagstofa Íslands hafi verið að bregð­ast við póli­tískum þrýst­ingi með frétt sinni. Ólafur Hjálm­ars­son hag­stofu­stjóri brást við með því að skrifa aðsenda grein þar sem hann neitað því.

Forsætisráðherra gagnrýnir þá sem héldu brotflutningi fram

Sig­mundur Davíð gerði svo ofan­greind skoð­ana­skipti, og umræðu um þau, að umfjöll­un­ar­efni í ára­móta­grein sinni í Morg­un­blað­inu. Þar sagði hann að, eins und­ar­legt og það væri, virt­ist afmark­aður en hávær hópur fólks eiga erfitt með að sætta sig við góðar fréttir. Jákvæð þróun veki hjá hópnum gremju, hún sé litin horn­auga og tor­tryggð á allan mögu­legan hátt. Þetta sé sá hópur fólks sem getur ekki sætt sig við að jákvæðir hlutir ger­ist ef þeir ger­ast ekki í krafti hinnar einu „réttu“ hug­mynda­fræði.

Svo sagði for­sæt­is­ráð­herra: „Lýsandi dæmi um þetta birt­ist fyrir fáeinum vikum þegar hópi fólks gramd­ist mjög að Hagstofa Íslands skyldi benda á að engin mark­verð breyt­ing hefði orðið á hlut­falli íslend­inga, á mis­mun­andi ald­urs­bili, sem fluttu frá land­inu árið 2015. Raunar reynd­ist hlut­fall brott­fluttra undir 40 ára aldri lágt í sam­an­burði við liðin ár og ára­tugi.

Áður hafði hinu gagn­stæða verið haldið fram og mikið úr því gert. -Loksins var búið að finna eitt­hvað sem kall­ast gat nei­kvæð þróun, hald­reipi í straumi jákvæðrar þró­unar sam­fé­lags­ins. Reyndar var alltaf ljóst að mun fleiri hefðu flutt til lands­ins en frá því árið 2015 en hald­reipið fólst í þeirri kenn­ingu að óvenju margir ungir íslenskir rík­is­borg­arar væru að flytja frá land­inu.

Þegar Hag­stofan birti svo töl­fræði sem sýndi hið rétta,tölur sem ættu að hafa verið flestum fagn­að­ar­efni, brást nei­kvæði hóp­ur­inn hinn versti við og gengu sumir jafn­vel svo langt að ráð­ast á Hag­stof­una fyrir það eitt að birta töl­fræði­legar stað­reyndir. Stofn­unin var sökuð um að hafa falsað töl­urnar og það hlyti hún að hafa gert vegna póli­tísks þrýst­ings. Svo langt voru sumir til í að ganga til að verja hina nei­kvæðu heims­mynd sína að þeir voru til­búnir til að beita emb­ætt­is­menn ógn­unum, -emb­ætt­is­menn hjá stofnun sem birtir töl­fræði. Þar skyldu menn búast við árásum ef birtar yrðu tölur sem ekki féllu að hinni dökku heims­mynd."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár