Menntaðir vilja síður að fólki sé refsað fyrir vörslu fíkniefna til einkanota

Meiri­hluti kvenna er fylgj­andi því að vændis­kaup séu refsi­verð en karlar og eldri borg­arar vilja frekar að lög­reglu­menn fái skot­vopn í bif­reiðar. Þetta er á meðal nið­ur­staðna könn­unar sem kynntar voru á Þjóð­ar­spegli Háskóla Íslands.

Mikill meiri­hluti kvenna er fylgj­andi því að vændis­kaup séu refsi­verð en minna en helm­ingur karla. Þetta er á meðal nið­ur­staðna net­könn­unar sem Félags­vís­inda­stofnun fram­kvæmdi í apríl 2015. Tekið var 1176 manna lag­skipt til­vilj­un­ar­úr­tak úr net­panel stofn­un­ar­innar og var svar­hlut­fallið 60 pró­sent. 

Fjallað var um rétt­ar­til­finn­ingu lands­manna og afstöðu þeirra til ýmissa brota í erindi Helga Gunn­laugs­sonar, pró­fess­ors í félags­fræði, og Jónasar Orra Jón­as­sonar félags­fræð­ings á Þjóð­ar­spegli Háskóla Íslands á föstu­dag. 

„Margir fræði­menn telja mik­il­vægt að refsi­lög­gjöfin og dómar séu í sam­ræmi við rétt­ar­til­finn­ingu borg­ar­anna. Dómar sem gangi í ber­högg við sið­ferðis- og rétt­læt­is­kennd borg­ar­anna geti smám saman grafið undan trausti á rétt­ar­rík­inu. Mælingar á afstöðu borg­ar­anna á afbrotum eru því brýnar til að varpa ljósi á hvernig þeir skynja og upp­lifa afbrot og vanda­málin sem þau skapa,“ segir í útdrætti sem birt­ist á Skemm­unni.

Nið­ur­stöður könn­un­ar­innar á við­horfi fólks til refs­inga fyrir vændis­kaup leiða í ljós að konur eru mun hlynnt­ari slíkum refs­ingum en karlar, íbúar af höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru hlynnt­ari þeim en lands­byggð­ar­fólk og háskóla­mennt­aðir lík­legri en fólk með minni menntun til að styðja refs­ing­arnar. Hvað varðar sölu á vændi skipt­ast svar­endur í tvær álíka stórar fylk­ingar, en mun færri vilja refsa fyrir sölu en kaup.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár