Íslendingar erfa sífellt hærri fjárhæðir

Virði eigna íslenskra heim­ila hefur auk­ist gríð­ar­lega á und­an­förnum árum, sér­stak­lega vegna hækk­unar á hús­næð­is­verði. Það hefur leitt af sér að eigið fé lands­manna hefur auk­ist mikið og virði eigna sem erf­ast hækkað skarpt milli ára.

Ein­stak­lingar á Íslandi erfðu alls 46,9 millj­arða króna á árinu 2017. Árið 2016 erfðu þeir 40,5 millj­arða króna og árið 2015 33,7 millj­arða króna. Skatt­skyldur arfur ein­stak­linga sem greiddur var út jókst því um 39 pró­sent milli áranna 2015 og 2017.

Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn frá Jóni Stein­dóri Valdi­mars­syni, þing­manni Við­reisnar, sem birt var á vef Alþingis á laug­ar­dag.

[links]Af þeim 121,1 millj­arði króna sem Íslend­ingar erfðu á þessum þremur árum fóru 8,8 millj­arðar króna til ein­stak­linga sem erfðu yfir 100 millj­ónir króna. Stærsti hlut­inn fór til þeirra sem erfðu yfir 6,5 millj­ónir króna en undir 50 millj­ónir króna, eða 80 millj­arðar króna. Það þýðir að tvær af hverjum þremur krónum sem greiddar voru í arf á tíma­bil­inu voru á því bili.

Upp­lýs­ingar um árið 2018 liggja ekki fyrir þar sem Rík­is­skatt­stjóri vinnur nú úr skatt­fram­tölum ein­stak­linga.

Samkvæmt lögum um erfða­fjár­skatt er ekki greiddu slíkur á fyrst 1,5 milljón króna í skatt­stofni hvers dán­ar­bús og njóta erf­ingjar skatt­frels­is­ins í hlut­falli við arf sinn. Erfða­fjár­skattur er að öðru leyti tíu pró­sent af skatt­stofni dán­ar­bús. Á árinu 2017, þegar alls 46,9 millj­arðar króna erfð­ust, voru tekjur rík­is­sjóðs af erfða­fjár­skatti 4,3 millj­arðar króna.

Gríðarleg aukning eigin fjár

Íslenskur almenn­ingur í heild hefur aukið auð sinn mikið á und­an­förnum árum. Þannig hefur eigið fé lands­manna auk­ist um 162 pró­sent í krónum talið frá lokum árs 2010 og til loka árs 2017, sam­kvæmt tölum Hagstofu Íslands. Alls nam eigið fé, sem eru eignir lands­manna að frá­dregnum skuldum, 4.103 millj­örðum króna í lok árs 2017 en 1.565 millj­örðum króna í lok árs 2010.

[adspot]Þorri eigna lands­manna eru bundnar í hús­næði. Í skýrslu sem Íslands­banki gaf út í októ­ber í fyrra kom fram að áætl­aðar heild­ar­eignir lands­manna á þeim tíma­punkti væru um 7.400 millj­arðar króna og að um 78 pró­sent þeirra væru hús­næð­is­eignir. Í skýrsl­unni sagði enn fremur að eigið fé heim­ila í hús­næð­is­eignum hefði auk­ist um 2.051 millj­arð króna frá árinu 2010, eða um 96 pró­sent. Eigendur hús­næðis hefðu því að með­al­tali aukið sam­eig­in­legan auð sinn um 256 millj­arða króna á hverju ári frá árinu 2010.

Þessi mikla eigna­aukn­ing heild­ar­innar er því fyrst og síð­ast drifin áfram að hækkun á hús­næð­is­verði og betri skil­yrðum lands­manna til að greiða niður lán sín. Raunverð íbúða hækk­aði um 56 pró­sent frá árinu 2010 og út sept­em­ber 2018. Það er næst mesta hækkun í heim­inum á tíma­bil­inu. Einungis í Indlandi hefur hús­næð­is­verð hækkað meira að raun­virði Á sama tíma­bili rúm­lega tvö­fald­að­ist hús­næð­is­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í krónum talið.

Á þessum árum hefur líka ríkt umtals­verður stöð­ug­leiki í verð­bólgu og hún hald­ist undir eða við verð­bólgu­mark­mið Seðla­banka Íslands þorra hans. Þá hafa stjórn­völd gripið til ýmissa fjár­út­láta sem hafa nýst eign­ar­fólki á borð við Leið­rétt­ing­una og nýt­ingu sér­eign­ar­sparn­aðar til skatt­frjálsrar nið­ur­greiðslu á hús­næð­is­lánum. Að auki hafa vextir hús­næð­is­lána lækkað hratt. Nú eru til að mynda lægstu breyti­legu verð­tryggðu vextir 2,15 pró­sent.

Ríkustu tíu prósent þjóðarinnar

Líkt og áður sagði fóru 8,8 millj­arðar króna af því sem erfð­ist á árinu 2017 til hóps sem var að erfa yfir 100 millj­ónir króna á árunum 2015 til 2017. Það er ein­ungis þau tíu pró­sent þjóð­ar­innar sem eiga mest eigið fé sem eiga slíkar fjár­hæðir til að láta renna til ætt­ingja sinna að sér gengnum.

[adspot]Til þess hóps töld­ust 21.535 fjöl­skyldur á árinu 2017 og átti hann alls 2.425 millj­arða króna í eigið fé.

Eignir hóps­ins eru reyndar van­metnar í tölum Hagstofu Íslands,þar sem eign í hluta­bréfum er færð til eignar á nafn­virði, ekki mark­aðsvirði, sem er vana­lega miklu hærra.

Efsta lag lands­manna á nær öll verð­bréf sem eru í eigu ein­stak­linga hér­lendis. Ríkustu tíu pró­sent þeirra eiga til að mynda 87 pró­sent allra slíkra verð­bréfa. Vert er að taka fram að líf­eyr­is­sjóðir lands­ins eru langstærstu eig­endur verð­bréfa – þeir eiga tæp­lega 70 pró­sent mark­aðs­skulda­bréfa og víxla hér­lendis – og eign þeirra er ekki talin með í ofan­greindum tölum.

Þá vantar líka inn í töl­urnar allar þær eignir sem Íslend­ingar eiga erlendis, og eru ekki taldar fram til skatts hér­lendis. Í skýrslu sem unnin var fyrir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið, og birt var í jan­úar 2017, kom meðal ann­ars fram að aflands­fé­laga­væð­ing íslensks fjár­mála­kerfis hefði haft tugi millj­arða króna af íslenskum almenn­ingi í van­goldnum skatt­greiðslum og búið til gríð­ar­legan aðstöðumun þeirra sem hafa, bæði lög­lega og ólög­lega, getað falið fé í erlendum skatta­skjólum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár