Eignir ríkustu fimm prósent landsmanna jukust um metupphæð í fyrra

Ríkustu fimm pró­sent þjóð­ar­innar juku eignir sínar um 274 millj­arða króna í fyrra. Það er meira en sama hlut­falll þjóð­ar­innar jók eignir sínar árið 2007.

Bjarni Benediktsson svaraði fyrirspurn Loga EInarssonar um eignir og tekjur landsmanna fyrir skemmstu.
Bjarni Bene­dikts­son svar­aði fyr­ir­spurn Loga EIn­ars­sonar um eignir og tekjur lands­manna fyrir skemmstu. Mynd: Samsett

Heild­ar­eignir rík­ustu fimm pró­sent þjóð­ar­innar uxu um 274 millj­arða króna í fyrra og námu alls 1.852 millj­örðum króna. Það er mesta eigna­aukn­ing í krónum talið hjá þeim hópi á einu ári í að minnsta kosti 20 ár. Þetta má lesa út úr svari Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Loga Ein­ars­sonar, for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, um eignir og tekjur lands­manna á árinu 2017. Vert er að taka fram að um heild­ar­eignir er að ræða, ekki eigið fé þegar búið er að draga skuldir frá.

[links]Alls áttu rík­ustu fimm pró­sent þjóð­ar­innar, um 11.450 fjöl­skyldur, 32 pró­sent af öllum eignum á Íslandi í lok síð­asta árs. Frá lokum árs 2010 hafa eignir þessa hóps auk­ist um 718 millj­arða króna.

Þangað til í fyrra hafði mesta aukn­ingin á eignum fimm pró­sent rík­ustu Íslend­ing­anna verið á árinu 2007, þegar fyr­ir­hruns­góð­ærið náði hámarki. Þá juk­ust eignir hóps­ins um 250 millj­arða króna á einu ári.

Þegar þrengri hópur, nánar til­tekið rík­asta eitt pró­sent lands­manna, er skoð­aður þá stendur eigna­aukn­ing­ar­metið frá 2007 en óhaggað. Það ár juk­ust eignir þess hóps um 141 millj­arð króna. Í fyrra juk­ust eignir rík­asta eins pró­sents lands­manna um 105 millj­arða króna og stóðu í 759 millj­örðum króna í árs­lok. Alls til­heyra 2.290 fjöl­skyldur þessum hópi.

[adspot]Ríkasta 0,1 pró­sent lands­manna, 229 fjöl­skyldur, áttu eignir sem metnar voru á rúm­lega 241 millj­arð króna um síð­ustu ára­mót. Þær höfðu þá auk­ist 33 millj­arða króna á einu ári. Árið 2007 juk­ust þær hins vegar um 67 millj­arða króna á einu ári, sem var og er vit­an­lega met.

Vert er að taka fram að færri fjöl­skyldur til­heyrðu hverjum hlut­falls­hópi á árum áður, enda hefur lands­mönnum fjölgað hratt á und­an­förnum árum. Því er ekki að öllu leyti um sama fólkið að ræða sem til­heyrir efstu lög­unum hverju sinni.

Mjög hátt eiginfjárhlutfall

Kjarninn hefur áður greint frá því að upp­gang­ur­inn í íslensku efna­hags­lífi hafi skilað því að eigið fé lands­manna, eignir þeirra þegar búið er að draga skuldir frá, hefur farið úr því að vera 1.565 millj­arðar króna í lok árs 2010 í að vera 4.103 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. Því hafa orðið til 2.538 nýir millj­arðar króna í hreinni eign á umræddu tíma­bili. Þeir hafa skipst mis­jafn­lega niður á lands­menn.

Á síð­asta ári áttu rík­ustu fimm pró­sent lands­manna 1.647 millj­arða króna, sem þýðir að eig­in­fjár­hlut­fall þeirra var um 89 pró­sent. Þ.e. ein­ungis rétt rúm­lega tíund af eignum þeirra var skuld­sett.

Auður rík­asta eins pró­sents lands­manna, alls 2.290 fjöl­skyldna, hefur auk­ist um 270 millj­arða króna frá árs­lokum 2010, sem þýðir að tæp­lega ell­efu pró­sent nýs auðs hefur farið til þess hluta lands­manna. Alls átti þessi hópur 719 millj­arða króna í lok árs 2017 og eig­in­fjár­hlut­fall hóps­ins var um 95 pró­sent.

Þegar enn minni hóp­ur, 0,1 pró­sent rík­ustu fjöl­skyldur lands­ins er skoð­aður kemur í ljós að hann á tæp­lega 237 millj­arða króna í hreinni eign. Það þýðir að eig­in­fjár­hlut­fall hans er rúm­lega 98 pró­sent.

Rétt er að taka fram að hluta­bréf eru talin á nafn­virði í þessum gögnum og fast­eignir eru taldar á fast­eigna­mats­verði. Mark­aðsvirði beggja, sem eru á meðal helstu eign­ar­flokka á Íslandi, er mun hærra en það virði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár