Eldar helgarinnar slæmur fyrirboði

„Svarta sum­arið“ er öllum Áströlum enn í fersku minni. Nú, ári seinna, hafa gróð­ur­eldar kviknað á ný og þó að slökkvi­starf hafi gengið vel um helg­ina er ótt­ast að framundan sé óvenju heit þurrka­tíð.

Barist við elda í Ástralíu.
Barist við elda í Ástralíu. Mynd: EPA

Eldar logar á að minnsta kosti fimm­tíu stöðum í ástr­alska fylk­inu Nýja Suður-Wales. Slökkvi­liðs­menn hafa barist við gróð­ur­elda á svæð­inu alla helg­ina í kjöl­far hita­bylgju og vinda. Þegar mest lét börð­ust þeir við yfir 200 elda. Mestir voru þeir norð­vestur af Sydney og þar eyði­lagð­ist að minnsta kosti eitt hús.

Þó eldar logi enn er talið að slökkvi­lið hafi náð tökum á þeim flestum. Í bili. Því á morgun, þriðju­dag, er búist við að hita­stigið nái aftur um 40°C.

Ástandið um helg­ina hefur vakið erf­iðar minn­ingar hjá mörgum Áströlum. Gróð­ur­eldar eru árlegir í land­inu en í fyrra voru þeir sér­stak­lega skæðir og „svarta sum­arið“, eins og það er kallað, verður lengi í minnum haft.

Fyrstu skóg­ar­eldar árs­ins kvikna vana­lega um svipað leyti og ástr­alska vorið gengur í garð – á sama tíma og það fer að hausta hjá okkur á norð­ur­hveli. En í fyrra sköp­uð­ust óvenju­leg skil­yrði, með gríð­ar­legum þurrkum, fyrr en venju­lega og þegar í júlí höfðu fyrstu eld­arnir kviknað og gróður, þar á meðal fornir skógar, brunnu við­stöðu­laust mán­uðum saman eða þar til lang­þráðar haustrign­ingar hófust.

[links]Mestir voru eld­arnir í des­em­ber í fyrra og í jan­úar í ár og áður en yfir lauk höfðu tæp­lega 19 millj­ónir hekt­arar lands brunnið, meira en 5.900 bygg­ingar eyði­lagst og að minnsta kosti 34 mann­eskjur týnt lífi. Vís­inda­menn telja að um þrír millj­arðar hrygg­dýra hafi drep­ist, m.a. hund­ruð millj­óna skrið­dýra. Kóala­birnir, sem halda til í trjám og flýja í trjákrónur þegar hætta steðjar að, féllu í hrönnum. Að minnsta kosti átta þús­und þeirra drápust sem hafði gríð­ar­leg áhrif á teg­und­ina sem er í útrým­ing­ar­hættu. Fágætir páfa­gaukar týndu einnig töl­unni sem og fjöldi ann­arra sjald­gæfra dýra­teg­unda sem ein­kenna hið sér­stæða dýra­líf Ástralíu.

Í frétt Sydney Morning Herald í morgun var haft eftir reyndum slökkvi­liðs­stjóra að þó að tek­ist hafi að ná tökum á eld­unum um helg­ina hefði getað brugðið til beggja vona og þurr gróð­ur­inn mun valda frek­ari vanda þegar líður á sum­arið.

Annar slökkvi­liðs­stjóri brýnir fyrir fólki að til­kynna elda um leið og það verður þeirra vart. „Ekki ganga út frá því að ein­hver annar hafi til­kynnt þá,“ segir hann. „Um helg­ina þá börð­umst við með öllu sem við áttum við eldana til að stöðva útbreiðsl­una og það tókst. Þannig munum við halda áfram að vinna á morgun en við þurfum hjálp almenn­ings.“

Þó að 5,5 millj­ónir hekt­ara lands hafi brunnið í Nýja Suður-Wales í fyrra er það aðeins um 7 pró­sent af land­svæði fylk­is­ins. „Þannig að um 90 pró­sent fylk­is­ins er enn næmt fyrir eldum,“ hefur Sydney Morning Herald eftir slökkvi­liðs­stjór­anum Ron Rogers. Hann seg­ist ekki hafa góða til­finn­ingu fyrir næstu vikum og mán­uðum og ótt­ast hið versta.

Í ein­hverjum til­fellum leikur grunur á að eldar helg­ar­innar hafi ekki kviknað af nátt­úru­legum orsökum og því mun bann við því að kveikja eld taka gildi á morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár