Mynd: EPA

Með brunasár á smáum fótum

Mörg dýr hafa fengið skjól í fangi manna í ham­fara­eld­unum í Ástralíu. Margfalt fleiri hafa farist og þeirra á meðal eru þús­undir kóala­bjarna, sem eru ekki aðeins sér­lega krútt­legir heldur mik­il­vægur hlekkur í þegar við­kvæmu vist­kerfi.

Einn kom að húsi í úthverfi og fékk sér að drekka við hlið heim­il­is­hunds­ins. Annar fór upp í bíl og saup á vatns­flösku og sá þriðji skreið í átt að hjól­reiða­manni og þáði sopa úr brúsa.

Þau eru all­nokkur mynd­skeiðin af kóala­björnum í ofsa­hita og ham­fara­eldum sem fólk og fjöl­miðlar deila nú á sam­fé­lags­miðlum. Þessar litlu og krútt­legu skepnur, sem eru reyndar ekki bjarn­dýr heldur poka­dýr, hafa orðið að tákn­mynd gróð­ur­eld­anna miklu í Ástralíu. Talið er að nokkur þús­und þeirra hafi farist síð­ustu mán­uði, jafn­vel um 30 þús­und, sem hefur ýtt enn frekar undir við­kvæma stöðu þeirra. Kóala­birnir hafa reyndar lengi verið tákn lands­ins, þjóð­ar­dýrið og lokkað að ferða­menn í tugi ára, enda nátt­úru­leg búsvæði þeirra hvergi ann­ars staðar að finna í heim­inum.

Það er vart hægt að hugsa um Ástralíu án þess að hugsa sam­tímis um kengúrur og kóala­birni, svo stórt er hlut­verk þeirra í ímynd lands­ins víð­feðma í suðri. Báðar þessar teg­undir þykja sér­lega mynd­rænar, upp­á­tækja­samar og skemmti­legar svo ekki sé talað um óvenju­legar.

Kengúra með brjóst­kassa eins og þrek­inn karl­maður. Kóala­björn að gæða sér á lauf­blöðum með unga sinn á bak­inu. Ljós­myndir og mynd­skeið sem okkur hafa birst í gegnum árin hafa kallað fram bros, fliss og hlátur.

Það eru aðrar til­finn­ingar sem mynd­irnar vekja hjá mörgum nú um stundir. Kengúra á stökki beint fyrir framan stór­kost­legt eld­haf. Kóala­björn að skýla afkvæmi sínu fyrir log­unum og brennur því sjálfur á fót­unum. Hræ kengúru eins og kola­moli flæktur í girð­ingu. Hræ kóala­bjarnar eins og stein­gerv­ingur sam­gró­inn sót­svartri trjá­grein. Mjúki, fal­legi feld­ur­inn svið­inn. Loðnu eyrun hár­laus og líkj­ast helst steiktum lauf­blöðum.

„Þetta hrylli­lega ár þjást allar teg­undir. Það er virki­lega ógn­væn­legt,“ segir ástr­alski líf­fræð­ing­ur­inn Stephen Brend. „Okkur mönn­unum er heitt, dýr­unum er heitt. Þetta er martröð.“

Kingsley Dixon, vist­fræð­ingur við Curtin-háskóla í Perth, segir hættu á útrým­ingu hafa auk­ist. „Margar teg­undir sem voru ekki í hættu eru nú í útrým­ing­ar­hættu. [...] Þetta er líf­fræði­leg úrslita­orr­usta sem sjaldan hefur áður sést.“

Við dögun nýs árs, nýs ára­tugar, hóf fréttum af ham­för­unum mann­skæðu í Ástralíu að rigna yfir heims­byggð­ina. Eldarnir hafa heimt að minnsta kosti 24 manns­líf, þar af fjög­urra slökkvi­liðs­manna. Yfir 2.000 heim­ili hafa eyði­lagst – lík­lega eru þau mun fleiri. Heilu bæirnir munu þurrkast út. Land­svæði á stærð við allt Ísland hefur brunnið og sum­arið rétt nýhafið þarna hinum megin á hnett­inum. Því er nú spáð að eld­arnir muni loga í marga mán­uði til við­bótar.

Reynt hefur verið að slá tölu á fjölda þeirra dýra sem hafa týnt lífi í eld­unum og hit­unum síð­ustu mán­uði. Það er erfitt en sér­fræð­ingar hafa þó sagt að lík­lega sé talan á bil­inu hálfur til einn millj­arður.

Fágætt dýralíf

Í Ástralíu er að finna margar svo­kall­aðar ein­lendar dýra­teg­undir, þ.e. dýr sem finn­ast ekki ann­ars staðar. Það skýrist af ein­angrun lands­ins um millj­ónir ára. Ýmsar slöngur, kengúrur, kóala­birnir og nef­dýr eru þar á meðal. Þetta á líka við um margar trjá­teg­undir og aðrar plöntur þó að þeim hafi á síð­ari tímum verið dreift viða um heim.

Kóalabirnir eru einfarar. Þeir eru frekar smágerðir, verða 60-80 sentímetrar á hæð og um 14-17 kíló að þyngd. Þeir eru jurtaætur og éta lauf í kílóavís á hverjum degi.
Kóala­birnir eru ein­farar. Þeir eru frekar smá­gerðir, verða 60-80 sentí­metrar á hæð og um 14-17 kíló að þyngd. Þeir eru jurta­ætur og éta lauf í kílóa­vís á hverjum degi.

Margar dýra­teg­und­irnar í Ástralíu eru á válista og sumar þeirra metnar í útrým­ing­ar­hættu. „Það er eng­inn sem veit á þess­ari stundu hvort ein­hverjar dýra- eða plöntu­teg­undir muni hverfa alveg vegna skóg­ar­eld­anna,“ segir Trausti Bald­urs­son, for­stöðu­maður vist­fræði- og ráð­gjaf­ar­deildar Nátt­úru­fræði­stofn­unar, í sam­tali við Kjarnann.

Kóala­birn­irnir eru þar á meðal en einnig aðrar teg­undir, m.a. skor­dýr og skrið­dýr. „Það eru sum sé ekki aðeins stóru dýrin sem allir þekkja sem eru í hættu, þó að þau fái mesta athygli í fjöl­miðlum, heldur mörg önnur,“ bendir Trausti á.

Staðbundnir stofnar í hættu

Skóg­ar­eldar eru algengir í Ástralíu en eru óvenju miklir núna og margir velta því fyrir sér hvort að hætta sé hrein­lega á að ákveðnar teg­undir dýra deyi út. Trausti segir að var­lega verði að fara í slíkar vanga­veltur. Margt sé óljóst nú þegar eld­arnir geisa enn. Hann segir að ákveðin hætta sé fyrir hendi, sér­stak­lega hvað varðar stað­bundna stofna fágætra dýra- eða plöntu­teg­unda. „Margir stað­bundnir stofnar gætu tap­ast þótt teg­undin sjálf sé ekki í hættu. En þetta myndi valda því að fjöl­breytni minnkar sem gæti leitt til sér­stakrar þró­unar sem erfitt er að spá fyrir um.“

Líf­fræði­legur fjöl­breyti­leiki Ástralíu er einn sá mesti sem fyr­ir­finnst á jörð­inni og yfir 80% af dýra­teg­undum lands­ins er hvergi ann­ars staðar að finna, þar á meðal 244 spen­dýra­teg­undir. Dýra­ríkið þar var við­kvæmt áður en ham­fara­eld­arnir hófust og 34 teg­undir spen­dýra hafa dáið út á síð­ustu 200 árum.

Þó að dýrin hafi þró­ast þar í millj­ónir ára, líkt og Trausti bendir á, og séu því búin að aðlag­ast vel sum­ar­hitum, eiga þau mörg hver sér­lega erfitt upp­dráttar nú þegar hvert hita­metið af öðru hefur fallið og for­dæma­lausir þurrkar hafa geisað mán­uðum saman. Það eru sum sé ekki aðeins eld­arnir sem eru að strá­fella dýrin. Þá er enn ein hættan fyrir hendi; eyði­legg­ing búsvæða sem mun leiða til sultar.

Hvers vegna flýja kóalabirnir ekki?

Ljóst er að mörg dýr hafa bein­línis orðið eldstungum að bráð. Eðlileg spurn­ing hefur vaknað hjá almenn­ingi: Geta dýrin ekki bara flúið?

Í mörgum til­vikum er það vissu­lega til­fellið. Fuglar og stór dýr á borð við kengúrur geta lagt á flótta og gera það ef aðstæður leyfa. En margar teg­undir hafa ekki sömu hreyfi­getu og aðrar eru alger­lega háðar skóg­unum og fara því hvergi.

Kóala­birnir eru í þeim hópi sem á erfitt með að flýja. Skýr­ing­arnar eru nokkrar. Við eðli­legar aðstæður kunna þeir best við sig í krónum tröllatrjánna. Þar geta þeir setið tímunum saman og étið lauf sem er þeirra helsta fæða. Efna­skipti þeirra eru gríð­ar­lega hæg og þeir sofa 16-20 klukku­stundir á sól­ar­hring. Þeir hreyfa sig af þessum sökum mjög hægt og þekkja ekk­ert annað en skóg­inn og trén sem þeir halda til í, skóg­inn sem veitir þeim skjól og fæðu.

Kóalabjörn á teikningu frá því í lok nítjándu aldar.
Kóala­björn á teikn­ingu frá því í lok nítj­ándu aldar.

Talið er að dýr skyld kóala­björnum hafi orðið til á meg­in­landi Ástralíu fyrir um 45 millj­ónum ára. Elstu stein­gerv­ingar sem fund­ist hafa eru 25 milljón ára gamlir. Ástralía varð með tím­anum þurr­ari, gróð­ur­far þró­að­ist og trölla­tré (eucalyptus) urðu ráð­andi en þau eru einmitt helsta fæða kóala­bjarna nútím­ans.

Frum­byggjar Ástralíu er taldir hafa komið þangað fyrir um 60 þús­und árum. Kóala­birnir, rétt eins og öll önnur dýr sem fund­ust í land­inu, voru mik­il­vægur hluti af menn­ingu þeirra, koma fyrir í mörgum þjóð­sögum og á hella­myndum. Frum­byggjar veiddu kóala­birni sér til matar en nóg var af þeim alla tíð eða þar til Evr­ópu­búar komu þangað árið 1788.

Ekki björn heldur pokadýr

John Price var fyrsti Evr­ópu­bú­inn sem greindi frá til­vist kóala­bjarna. Árið 1798 fór hann um Blue Mountains, skammt frá þeim stað þar sem Sydney er í dag, og lýsti síðar upp­lifun sinni af því er kóala­björn varð á vegi hans. Í fyrstu var talið að um bjarn­ar­teg­und væri að ræða en síðar var ljóst að hann til­heyrði hinum sér­stæðu poka­dýrum sem fæða óþroskuð afkvæmi en bera þau svo í húð­poka á lík­ama sínum í margar vikur og jafn­vel mán­uði.

Unginn er aðeins um 1 gramm að þyngd er hann fæðist og skríður ofan í poka móður sinnar þar sem hann dvelur í marga mánuði.
Unginn er aðeins um 1 gramm að þyngd er hann fæð­ist og skríður ofan í poka móður sinnar þar sem hann dvelur í marga mán­uði.

En af hverju heitir hann kóala­björn?

Talið er að „kóala“ sé dregið af orð­unum „ekk­ert vatn“ á einu af tungu­málum frum­byggja. Sú nafn­gift er sprottin útfrá því að þessi dýr drekka sjaldan vatn heldur fá þann vökva sem þau þurfa frá safa­ríkum blöðum tröllatrjáa. Nú þegar skóg­arnir brenna hafa þau þó nálg­ast menn og sótt í vatn. Þorstinn er orð­inn lífs­hættu­legur.

Strax við upp­haf nýlendu­tím­ans var haf­ist handa við að ryðja skóga. Þar með hófst aðþreng­ing að búsvæðum dýr­anna. Evrópsku land­nem­arnir sáu verð­mæti í feldi kóala­bjarn­ar­ins og hófu miklar veiðar. Upp frá því og þar til á fjórða ára­tug síð­ustu aldar voru millj­ónir kóala­bjarna drepnar og feldur þeirra seldur.

Árið 1924 var þá ekki lengur að finna í fylk­inu Suður-Ástralíu og fá dýr voru eftir í Nýja Suður-Wales. Í Viktoríu-fylki voru lík­lega aðeins um 500 dýr. Stór­tækar veiðar voru oft stund­aðar þar sem mörg hund­ruð þús­und dýr voru felld á nokkrum vikum.

Vernduðu dýrið en ekki heimkynnin

En það kom að því að almenn­ingi stóð ekki lengur á sama og krafð­ist þess að þessum veiðum yrði hætt. Á fjórða ára­tug síð­ustu aldar frið­uðu stjórn­völd allra fylkja lands­ins kóala­björn­inn. En búsvæði hans voru ekki friðuð og skóg­areyð­ingin hélt áfram sem sem hefur síð­ustu ár haft hvað mest áhrif á afkomu hans.

Það er, eins og Trausti hjá Nátt­úru­fræði­stofnun segir, erfitt að slá því föstu hversu margir kóala­birnir hafa drep­ist í eld­unum. Heyrst hafa tölur frá 8-30 þús­und í fjöl­miðlum. Þeirra helstu búsvæði eru í Nýja Suður-Wales og þar hafa eld­arnir verið hvað mestir. Sér­fræð­ingar hafa full­yrt að á Kengúru-eyju, þriðju stærstu eyju Ástralíu, hafi þús­undir kengúra og kóala­bjarna farist en meira en þriðj­ungur eyj­unnar hefur brunnið.

Hlúð að slösuðum kóalabirni í dýraathvarfi. Birnirnir eru margir með brunnið trýni og einnig brunasár á fótunum.
Hlúð að slös­uðum kóala­birni í dýra­at­hvarfi. Birn­irnir eru margir með brunnið trýni og einnig bruna­sár á fót­unum.

Mörg félaga­sam­tök og ein­stak­lingar hafa lagt sitt af mörkum til að bjarga slös­uðum dýrum. Í þeirra hópi er maður í bænum Mallacoota sem bjarg­aði níu kóala­björnum og nágrannar hans eru nú að hjálp­ast að við að byggja skýli fyrir þá. Aðrir hafa skilið eftir vatn og fæðu á víða­vangi fyrir dýrin.

Kona ein, sem missti bústað sem hún átti norður af Sydney, segir að eigna­tjónið sé eitt en að hjálpa öðrum sé mik­il­væg­ara. Hún hefur skilið eftir fæðu handa villtum dýrum og hefur einnig tekið nokkur þeirra að sér.

Já, þeir eru krútt­legir með sín loðnu eyru á stóru höfði og afkvæmi sín á bak­inu hátt uppi í trjánum. En hlut­verk þeirra er þó miklu stærra en að gleðja okkur mann­fólkið. Þeir eru mik­il­vægur hlekkur í vist­kerf­inu.

Mest eru áhrif þeirra í skógum tröllatrjánna. Fyrir komu Evr­ópu­búa voru þeir þar í millj­óna vís en nú telja þeir aðeins nokkra tugi þús­unda. Þeir eyða mestum tíma sínum í trjánum sof­andi eða að éta lauf og hafa þannig hlut­verki að gegna við að grisja skóg­inn, við­halda heil­brigði hans og koma sól­ar­ljósi í gegnum trjákrón­urnar niður á skóg­ar­botn­inn.

Á regn­tím­anum er úrgangur þeirra mik­il­vægur áburður og hjálpar til við vöxt og end­ur­nýjun gróð­urs. Þá éta ýmis smá­dýr einnig skít­inn. Fleiri teg­undir gegna svip­uðu hlut­verki en fæstar þeirra geta klifrað jafn hátt og kóala­birn­irnir. Vera þeirra í trjákrón­unum hefur einnig önnur áhrif: Þeir missa lauf og brjóta greinar sem falla til jarðar og eru fæða fyrir skor­dýr. Er þeir drep­ast éta svo önnur dýr hræ þeirra.

Sjálfboðaliðar og dýralæknar reyna að bjarga öllum þeim kóalabjörnum sem þeir geta. Um allan heim prjónar nú fólk vettlinga eða sokka til að setja á fætur þeirra.
Sjálf­boða­liðar og dýra­læknar reyna að bjarga öllum þeim kóala­björnum sem þeir geta. Um allan heim prjónar nú fólk vett­linga eða sokka til að setja á fætur þeirra.

Þessi hringrás lífs­ins í vist­kerf­inu hefur raskast af manna­völdum síð­ustu ára­tugi. Skóg­arnir hafa verið felldir til að rýma fyrir land­bún­aði af miklum móð. Gróð­ur­eldar eru svo ein helsta ógn kóala­bjarn­anna nú um stundir. Þetta sum­arið hafa eld­arnir verið sér­lega miklir og litlu, loðnu poka­dýrin, sem haldið hafa til í skóg­unum í þús­undir ára, eiga í vök að verj­ast.

„Öll dýr sem eru stað­bundin eru í mik­illi hættu,“ segir ástr­alski líf­fræð­ing­ur­inn Sarah Legge. „Mynd­irnar sem við sjáum af þjáðum kóala­björnum er hræði­legar. En þeir eru útbreidd­ari [en margar aðrar teg­undir í Ástralíu] svo að þeir eru ekki á barmi útrým­ingar á sama hátt og margar aðrar teg­undir.“

Kóala­birnir eru á válista, þar eru þeir flokk­aðir sem „við­kvæm teg­und“ en ekki sagðir í útrým­ing­ar­hættu, enn sem komið er. Hvort að það muni breyt­ast í kjöl­far ham­fara­eld­anna nú á eftir að koma í ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

loftslagsbreytingar

Mest lesið undanfarið ár