Líf á köldu tungli?

Vís­inda­menn finna bygg­ing­ar­efni lífs undir íshellu á Enceladusi, tungli Sat­úrnusar

Gígarnir á Enceladusi.
Gígarnir á Enceladusi. Gætu þeir mögu­lega hafa þeytt lífi út í geim­inn ... og hingað?! — Þetta er sýn lista­manns af því þegar Cassini-Huygens nálg­ast goss­trók­ana til að taka sýni úr þeim.

Leitin að lífi á öðrum hnöttum hefur tekið nýja stefnu. Athygli vís­inda­manna hefur í bili beinst frá því að hlusta eftir merkjum frá vits­muna­lífi á fjar­lægum sól­kerfum eða greina lit­róf frá fjar­lægum plánetum. Meira að segja tunglið Evrópa við Júpíter, þar sem líf er talið hugs­an­legt undir íshellu, fellur um sinn í skugg­ann af með­al­stóru tungli við Satúrnus þar sem öll helstu bygg­ing­ar­efni lífs­ins virð­ast nú vera til staðar.

Tunglið heitir Enceladus og er sjötta stærsta tunglið við Satúrnus. Gas­ris­inn sá er kunn­astur fyrir sína til­komu­miklu hringa og Enceladus er einmitt á sveimi í útjaðri næstysta hrings­ins. Hann er sautj­ánda stærsta tungl sól­kerf­is­ins en ekki nema rétt rúmir 500 kíló­metrar í þver­mál.

„Ísgígar“ þeyta efni út í geiminn

Yfir­borðið er þakið ís en þótt þar ríki fimb­ul­frost sem svarar 190 gráðum á Celcius, þá er ljóst að í iðrum tungls­ins eru öflug jarð­fræði­leg öfl að verki. Landrek á sér greini­lega stað og hefur mótað íshell­una í alls­konar til­komu­mikið lands­lag.

Landslag Enceladusar er víða hrika­legt.Tunglið heitir risa úr grísku goða­fræð­inni sem var and­stæð­ingur guð­anna og var að lokum graf­inn undir eld­fjall­inu Etnu á Sikiley. Sú nafn­gift hefur reynst furðu vel við hæfi.

Og nálægt suð­ur­pól Enceladusar er dul­ar­fullt svæði sem virð­ist næstum „nýtt“ á jarð­fræði­legan mæli­kvarða. Þar eru til dæmis nærri engar gígar eftir loft­steina sem ann­ars má víða sjá á ísnum. Helst er talið að fyrir aðeins 500.000 árum eða svo hafi átt sér þar stað mikil jarð­fræði­leg umbylt­ing sem hafi ger­breytt lands­lag­inu.

Miklir „ísgígar“ þeyta í sífellu gríð­ar­legum ís út í loftið á þeim sóðum og þó meiri­hluti íss­ins lendi aftur á tungl­inu sem snjór, þá sleppur nægi­legt magn burt til þess að nú er talið að sá hringur Sat­úrnusar þar sem Enceladus heldur sig sé meira og minna mynd­aður úr ísnum frá þessum gígum.

Cassini-Huygens leiðangurinn

Árið 2017 lauk geim­farið Cassini-Huygens 13 ára langri rann­sókn sinni á Sat­úrnusi og tunglum gas­ris­ans. Geim­far­inu var þá steypt niður á gas­ris­ann sjálfan og eydd­ist þar. Það skildi hins vegar sig gríð­ar­legt magn gagna sem vís­inda­menn hafa síðan verið að vinna úr og fyrir fáeinum dögum kynntu menn nið­ur­stöðu úr efna­grein­ingu frá geim­far­inu.

Ísgígar Enceladusar eru sjá­an­legir langt að.

Cassini-Huygens hafði meðal ann­ars flogið nokkrum sinnum gegnum „gosmökk­inn“ sem stendur upp frá ísgígum Enceladusar og nú er seint og um síðir komið á dag­inn að þar er að finna fos­föt í miklum mæli.

Fosföt eru efna­sam­bönd sem inni­halda frum­efnið for­fór og þetta er mik­il­vægt vegna þess að fos­fór er sjötta frum­efnið sem vís­inda­menn telja að séu skil­yrði þess að líf verði til og þró­ist.

Hin efnið fimm eru kolefni, vetni, köfn­un­ar­efni, súr­efni og brenni­steinn (sulfur).

Öll efni til staðar

Undir íshellu Enceladusar er mikið haf sem kann að vera mun hlýrra en yfir­borð tungls­ins vegna þess að kjarn­inn er ber­sýni­lega sjóð­heitur enn. Og í þessu hafi höfðu vís­inda­menn þegar talið sig hafa þefað uppi merki um öll efnin fimm — og nú hefur for­fór sem sé bæst við.

Og það í svo miklu magni að vís­inda­menn sjá í raun­inni ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að líf kunni að hafa orðið til í haf­djúpum Enceladusar, ekki síst vegna þess hver virkt tunglið er jarð­fræði­lega. Einhvers konar hverir á hafs­botni gætu mögu­lega hafa orðið gróðr­ar­stía lífs, eins og sumir telja raunar að hafi gerst á Jörðinni.

Dr. Frank Postberg, einn þeirra sem stýrðu rann­sókn­inni, segir ljóst að skil­yrði til lífs séu öll fyrir hendi á Enceladusi. „Við vitum ekki hvort þarna er líf,“ sagði hann í við­tali við The New York Times. „En það er sann­ar­lega þess virði að gá að því.“

Enceladus, tunglið okkar og Jörðin

Erum við öll frá Enceladusi?

Hætt er við að þrátt fyrir mik­il­vægi hinna nýju nið­ur­staðna muni enn líða ein­hverjir ára­tugir þangað til unnt verður að senda geim­far til Enceladusar til að útkljá málið.

Bill Nye vís­inda­frétta­maður CNN getur hins vegar varla beðið.

„Ef við finnum sann­anir um líf á öðrum heimi, þá breytir það okkar heimi,“ sagði hann í við­tali í fyrra­dag [...] Allir munu upp­lifa það öðru­vísi að vera lif­andi vera.“

Og hann varp­aði meira að segja fram þeirri kenn­ingu — auð­vitað meira í gamni en alvöru á þessu stigi — að það væri ekki úti­lokað að lífið í mjög frum­stæðri mynd hefði borist til Jarðar með geim­steinum úr ís sem þeyst hefðu frá gígum Enceladusi fyrir millj­örðum ára ...

Þvermál Enceladusar er ótrú­ega svipað stærð Íslands.
Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár