Fjöldi þeirra sem standa utan trúfélaga hefur tvöfaldast frá 2010

Tæpur þriðj­ungur lands­manna, alls 111 þús­und manns, standa nú utan þjóð­kirkj­unnar. Þar af eru tæp­lega 22 þús­und skráðir utan trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga.

Þeim sem eru meðlimir í ríkistrúnni fækkar ár frá ári.
Þeim sem eru með­limir í rík­is­trúnni fækkar ár frá ári. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fjöldi þeirra íbúa á Íslandi sem skráðir eru utan trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga hefur rúm­lega tvö­fald­ast frá því í byrjun árs 2010. Þá voru þeir sem voru skráðir utan slíkra félaga 10.336 tals­ins. Um síð­ustu ára­mót var sú tala komin upp í 20.500 og á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2017 bætt­ust 1.021 manns við sem stóðu utan trú- og líf­skoð­un­ar­fé­laga. Heild­ar­fjöldi þeirra í dag er því orð­inn 21.521. Alls eru 111.042 íbúar utan þjóð­kirkj­unnar, eða 32 pró­sent allra lands­manna.

Þetta má sjá úr tölum Hagstofu Íslands og Þjóð­skrár um breyt­ingar á trú- og líf­skoð­un­ar­fé­lags­að­ild.

Fækkun frá 2009

Umræddar tölur taka til allra skráðra ein­stak­linga hvort sem þeir eru með búsetu á Íslandi eða erlendis. Erlendir rík­is­borg­arar sem skrá sig inn í kerfið hér­lendis flokk­ast sem ótil­greindir, en ekki sér­stak­lega skráðir í trú- eða líf­skoð­un­ar­fé­lög eða utan þeirra.

Á sama tíma og fjöldi þeirra sem kjósa að standa utan trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga eykst ár frá ári þá fækkar sífellt þeim sem skráðir eru í þjóð­kirkj­una. Árið 1992 voru 92,2 pró­­­sent lands­­­manna skráðir í hana. Sex árum síðar var hlut­fallið komið undir 90 pró­sent en fjöldi ein­stak­linga sem voru í þjóð­kirkj­unni hélt samt sem áður áfram að vaxa fram til árs­ins 2009. Þá náði fjöldi þeirra sem í hana eru skráðir hámarki, en þá voru 253.069 manns í Þjóð­kirkj­unni. Það sama ár fór hins vegar hlut­fall þjóð­ar­innar sem fylgdi rík­is­trúnni í fyrsta sinn undir 80 pró­sent.

Þeim sem standa utan þjóðkirkju fjölgað um 80 þúsund

Frá árinu 2009 hefur fjöldi þeirra sem skráðir eru í þjóð­kirkj­unni dreg­ist saman á hverju ein­asta ári. Um síð­ustu ára­mót voru þeir 236.481 tals­ins, sem þýddi að undir 70 pró­sent þjóð­ar­innar væri í kirkj­unni.

Það sem af er árinu 2017 hafa 1.261 gengið úr þjóð­kirkj­unni en 488 verið skráðir í hana. Þeim sem í kirkj­unni eru hefur því fækkað um 773 á fyrstu níu mán­uðum árs­ins í ár, og eru skráðir með­limir því 235.708 tals­ins. Í lok sept­em­ber bjuggu 346.750 manns á Íslandi. Það þýðir því að 111.042 lands­menn standi utan þjóð­kirkj­unnar, eða 32 pró­sent þeirra. Um síð­ustu ald­ar­mót var fjöldi þeirra sem stóðu utan þjóð­kirkj­unnar 30.700. Þeim hefur því fjölgað um 80.342 síðan þá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár