Kostnaður vegna hlutabótaleiðar og uppsagnarstyrkja gæti orðið 60 milljarðar

Sviðs­mynda­grein­ing gerir ráð fyrir að halli á rík­is­sjóði verði um 330 millj­arðar króna í ár. Þar af mun hluta­bóta­leiðin og styrkir til fyr­ir­tækja til að greiða laun starfs­manna á upp­sagn­ar­fresti kosta 60 millj­arða króna.

Fjöldi þeirra sem eru atvinnulausir að hluta eða öllu leyti hefur margfaldast á örfáum vikum.
Fjöldi þeirra sem eru atvinnu­lausir að hluta eða öllu leyti hefur marg­fald­ast á örfáum vikum. Mynd: Pexels

Í sviðs­mynda­grein­ingu sem Við­skipta­ráð og Samtök atvinnu­lífs­ins hafa látið vinna gerir grunn­s­viðs­myndin ráð fyrir að halli á rekstri rík­is­sjóðs í ár verði 330 millj­arðar króna. Þar af verði áhrif efna­hags­sam­dráttar á rekstur hans nei­kvæð um 230 millj­arða króna og að aukin útgjöld í fjár­auka­lögum gæti orðið 40 millj­arðar króna.

Þá reikna Við­skipta­ráð og Samtök atvinnu­lífs­ins með að kostn­aður vegna hluta­bóta­leið­ar­innar svoköll­uðu og þeirrar ákvörð­unar stjórn­valda að greiða hluta launa starfs­manna sumra fyr­ir­tækja í upp­sagn­ar­fresti muni kosta skatt­greið­endur um 60 millj­arða króna á yfir­stand­andi ári.

Hluta­bóta­leiðin var kynnt til leiks sem grund­vall­ar­að­gerð stjórn­valda til að takast á við yfir­stand­andi efna­hags­á­stand í mars síð­ast­liðnum. Hún átti að hafa það mark­mið að við­halda ráðn­ing­ar­sam­bandi hjá fyr­ir­tækjum sem eru nú með litlar eða engar tekjur. Samkvæmt lög­unum um leið­ina átti Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóður að greiða frá 25 pró­sent og allt að 75 pró­sent af launum þeirra sem gera slíka samn­inga. Upp­haf­lega átti hluta­bóta­leiðin að gilda til 1. júní.

[adspot]Ákveðið var að fram­lengja hana í lok síð­asta mán­aðar. Hún verður með óbreyttu sniði út júní en eftir það verður hún í boði með breyttu sniði – hámarks­greiðslur úr opin­berum sjóðum verða þá 50 pró­sent af greiddum launum í stað 75 pró­sent – og nán­ari skil­yrðum út ágúst.

[links]Samhliða því að þessi ákvörðun var kynnt, þann 28. apríl, var greint frá því að fyr­ir­tækjum sem orðið hafa fyrir umfangs­miklu tekju­tapi verði gef­inn kostur á að sækja um stuðn­ing úr rík­is­sjóði vegna greiðslu hluta launa­kostn­aðar á upp­sagn­ar­fresti til að tryggja rétt­indi launa­fólks og koma í veg fyrir fjölda­gjald­þrot fyr­ir­tækja. Frumvarp vegna þessa er ekki komið fram og því liggur opin­ber kostn­að­ar­grein­ing á úrræð­inu ekki fyrir.

Næstu daga var á fimmta þús­und manns sagt upp í hóp­upp­sögnum. Sem stendur þiggja hátt í 60 þús­und manns bætur frá Vinnu­mála­stofnun vegna þess að þau eru atvinnu­laus að öllu leyti eða hluta. Stofn­unin greiddi út um tólf millj­arða króna um síð­ustu mán­aða­mót, sem er meira en hún greiddi út í bætur allt árið 2018, þegar sam­an­lagðar greiðslur voru ell­efu millj­arðar króna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár