Danir inn úr kuldanum hjá Indverjum

Fyrir tólf árum fóru ind­versk stjórn­völd fram á að danskur maður, Niels Holck að nafni, yrði hand­tek­inn og sendur til Indlands. Dómstóll í Danmörku hafn­aði kröf­unni og í kjöl­farið hættu Ind­verjar nær öllum við­skiptum við Dani. Nú hillir undir breyt­ingar.

Þessa dag­ana stendur yfir fjöl­menn við­skipta­ráð­stefna í Ahmeda­bad í Gujarat hér­aði á Indlandi. Þátt­tak­endur eru fleiri en þrjá­tíu þús­und frá fimmtán ,,mik­il­vægum“ við­skipta­löndum Indverja og löndum sem Ind­verjar vilja efla við­skipti við. Danir höfðu um tíu ára skeið verið úti­lok­aðir frá slíkum ráð­stefnum á Indlandi og í raun nær öllum við­skiptum við þessa næst fjöl­menn­ustu þjóð heims. Að baki þeirri ákvörðun lágu sér­stakar ástæður.

Fimm tonn af vopnum

Skömmu fyrir jól árið 1995 flaug rúss­nesk/úkra­ínsk flug­vél yfir Vestur- Bengal á Indlandi. Um borð voru sjö manns, breskur vopna­sali, fimm Lettar og einn maður til við­bótar ásamt fimm tonnum af vopnum. Vopnin, sem menn­irnir köst­uðu úr vél­inni yfir Vestur- Bengal, voru ætluð upp­reisn­ar­mönnum. Ind­verskar her­þotur neyddu vél­ina til að lenda, sex menn voru hand­teknir, og hlutu þunga dóma, en sá sjö­undi komst undan. Einu upp­lýs­ing­arnar sem Ind­verjar höfðu um þann mann voru þær að hann gengi undir nafn­inu Kim Davy, og ind­versku lög­regl­unni tókst ekki að hafa uppi á honum þrátt fyrir mikla vinnu.

Kim Davy var Niels Holck og líka Niels Christian Nielsen.

Árið 2002 sendi danska sjón­varps­stöðin TV2 út sjón­varps­þátt­inn ,,Vopna­smygl­ar­inn“ sem vakti mikla athygli. Í þætt­inum var rakin saga Kim Davy, eða rétt­ara sagt Niels Holck en það er hið rétta nafn manns­ins sem verið hafði um borð í flug­vél­inni sem flutti vopnin til Vestur- Bengal en sloppið hafði undan ind­versku lög­regl­unni. Hann hafði kom­ist til Dan­merkur skömmu síðar og búið þar síðan, alla tíð undir fölsku nafni, Niels Christian Nielsen. Danir könn­uð­ust reyndar vel við þennan mann, í Danmörku gekk hann nefni­lega, af sér­stökum ástæðum undir nafn­inu ,,ber­fætti ræn­ing­inn“.

Indversk stjórn­völd biðu ekki boð­anna, höfðu strax sam­band við dönsk dóms­mála­yf­ir­völd með það fyrir augum að fá Niels Holck fram­seldan til að geta réttað yfir honum vegna vopna­máls­ins. Enginn samn­ingur um fram­sal var hins­vegar í gildi milli Indlands og Dan­merkur og þess vegna varð ekk­ert úr slíku fram­sali. Ind­verjar undu þessu illa, fóru í við­skipta­fýlu (eins og einn danskur fjöl­mið­ill orð­aði það) og drógu mjög úr við­skiptum sínum við Dani.

Breytt löggjöf og framsalsbeiðnir

Eftir hryðju­verkin 11. sept­em­ber 2001 var lögum um fram­sal danskra rík­is­borg­ara til landa utan Evr­ópu­sam­bands­ins breytt og fram­sal heim­ilt væru við­kom­andi grun­aðir um hryðju­verk eða alvar­leg afbrot. Sex árum síðar, árið 2007 lögðu Ind­verjar fram beiðni um fram­sal, Niels Holck fór í felur en var hand­tek­inn árið 2010. Bæj­ar­réttur í Hillerød, þar sem Niels Holck bjó úrskurð­aði að hann skyldi ekki fram­seldur og Eystri-Lands­réttur stað­festi þann dóm. Árið 2012 til­kynnti Niels Holck að hann væri til­bú­inn að mæta til yfir­heyrslu ind­verskra stjórn­valda, með því skil­yrði að þær yfir­heyrslur færu fram utan Indlands. Þeirri kröfu höfn­uðu Ind­verjar og við­skipti Dan­merkur og Indlands minnk­uðu enn frekar.

Árið 2016 kröfð­ust ind­versk stjórn­völd enn á ný fram­sals Niels Holck. Danski dóms­mála­ráð­herr­ann fyr­ir­skip­aði rík­is­lög­manni að kanna mögu­leik­ana á fram­sali. Ganga þannig gegn nið­ur­stöðu dóm­stóla en fjöl­miðlar og and­stæð­ingar á þingi sök­uðu ráð­herr­ann um und­ir­lægju­hátt. Athugun rík­is­lög­manns stendur, form­lega séð, enn.

Nýtt hljóð í strokkinn

Þótt ekk­ert yrði af fram­sali Niels Holck árið 2016 og fram­sal­skrafan stæði ennþá form­lega séð, sneru Ind­verjar við blað­inu. Hægt og rólega. Við­snún­ing­ur­inn byrj­aði með heim­sókn ungs og til­tölu­lega reynslu­lít­ils dansks ráð­herra til ind­versks aðstoð­ar­ráð­herra. Í des­em­ber í fyrra hitt­ust þeir Anders Samu­el­sen utan­rík­is­ráð­herra Dan­merkur og Sushma Swaraj utan­rík­is­ráð­herra Indlands, í Nýju- Delí. Að sögn danska utan­rík­is­ráð­herr­ans ríkti vin­gjarn­legt and­rúms­loft á fundum þeirra. Heim­kom­inn lýsti Anders Samu­el­sen fund­unum þannig að ,,ísinn væri brot­inn í sam­skiptum land­anna“.

Lars Løkke Rasmussen á Indlandi

Síð­ast­lið­inn föstu­dag (18.1. 2019) kom danski for­sæt­is­ráð­herr­ann til Ahmeda­bad í hér­að­inu Gujarat. Ahmeda­bad er fæð­ing­ar­bær Narendra Modi for­sæt­is­ráð­herra Indlands, sem tók þar á móti Lars Løkke Rasmus­sen. Heimsókn danska for­sæt­is­ráð­herr­ans er ekki það sem kall­ast ,,opin­ber heim­sókn“, slík heim­sókn hefði haf­ist í höf­uð­borg­inni Nýju-Delí. Lars Løkke Rasmus­sen sagði við frétta­menn, að fundi loknum, að nú hefði stórt skref verið stigið í bættum sam­skiptum ríkj­anna. Anders Samu­el­sen utan­rík­is­ráð­herra sagði að Ind­verjar hefðu nú (þótt þeir segðu það ekki berum orðum) fall­ist á að krafan um fram­sal Niels Holck og við­skipta­hags­munir væru aðskilin mál­efni.

Gríðarlegir viðskiptahagsmunir

Í við­tali við DR, danska sjón­varpið, sagði Lars Løkke Rasmus­sen að fyrir Dani væri mikið í húfi. Á síð­asta ári hefði útflutn­ingur Dana til Indlands numið 3 millj­örðum danskra króna (55 millj­örðum íslenskum) en til Kína hins­vegar rúmum 60 millj­örðum (1200 millj­örðum íslenskum). ,,Ég las ein­hvers­staðar að Holck málið hefði lítil áhrif haft á við­skipti Dan­merkur og Indlands, en tölur sýna að það passar ekki“ sagði danski for­sæt­is­ráð­herr­ann. Lars Løkke Rasmus­sen nefndi einnig að hvergi í heim­inum væri hag­vöxtur meiri en á Indlandi, hefði verið 7% í fyrra og því væri spáð að árið 2030 yrði ind­verska hag­kerfið hið stærsta í heim­inum. Og Ind­verjum fjölgi ört. Svo ört að eftir þrjú til fimm ár verði þeir orðnir fjöl­menn­asta þjóð heims. Þegar spurt var í hverju aukin við­skipti gætu einkum falist nefndi ráð­herr­ann lausnir á sviði lofts­lags­mála, raf­orku­fram­leiðslu með vind­orku, lyfja­út­flutn­ing og tækni á sviði land­bún­aðar.

Meðan á heim­sókn danska for­sæt­is­ráð­herr­ans stendur opnar hann form­lega nýja sendi­ráðs­bygg­ingu Dan­merkur í Nýju- Delí og sömu­leiðis nýja menn­ing­ar­stofnun Dan­merkur í borg­inni.

Áður en Lars Løkke Rasmus­sen hélt af stað til Indlands hvöttu tals­menn mann­rétt­inda­sam­taka og nokkrir þing­menn hann til að ræða mann­rétt­inda­mál við for­sæt­is­ráð­herra Indlands. Þau mál voru lít­il­lega rædd á fundi ráð­herr­anna en frétta­maður DR, danska sjón­varps­ins, sem staddur er á Indlandi sagði í sjón­varps­fréttum að ,,þeim sem maður vill ving­ast við strýkur maður ekki öfugt“.

Í lokin má geta þess að á vef Kjarnans má finna grein þar sem ítar­legar er fjallað um Niels Holck. Greinin heitir ,,Eins og að hafa ömmu sem líf­vörð“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár