Sárar minningar vakna á „holdsveiki-nýlendunni“

Enn einu sinni eru þeir ein­angr­aðir frá umheim­inum, áður vegna holds­veiki en nú vegna COVID-19. Á árum áður skiptu þeir hund­ruðum en í dag eru þeir um tíu. Allir eru þeir aldr­aðir og völdu að dvelja áfram á eyj­unni sem stjórn­völd neyddu þá til fara til.

Kalaupapa-skaginn og þorpið sem þar er enn.
Kalaupapa-skag­inn og þorpið sem þar er enn. Mynd: Kalaupapa-þjóðgarðurinn

Þó að nátt­úran sé þar stór­brotin er það ekki hún sem fyrst og fremst varð til þess að Kalaupapa-þjóð­garð­ur­inn á Hawaii var stofn­aður. Innan hans býr fólk – fólkið sem einmitt var ástæða þess að ákveðið var að frið­lýsa svæðið. Fólk sem var flutt þangað í ein­angrun gegn vilja sínum fyrir ára­tugum en valdi svo síðar þann kost að búa þar áfram.

Á Molokai-eyju í Hawaii-eyja­kla­s­anum umkringja háir og brattir sjáv­ar­hamrar lág­lendan skaga. Skógi vaxin fjöllin bera mildri veðr­áttu eyj­unnar vitni. Á skag­anum er að finna þorp og þar býr um tugur manna sem á sér ákaf­lega sér­staka sögu. Allt var fólkið flutt nauð­ugt til eyj­unnar eftir að hafa smit­ast af sjúk­dómi sem í dag kall­ast Hansen-veiki betur þekkt sem holds­veiki.

Þetta eru þeir einu sem enn lifa og búa á eyj­unni af þeim þús­undum sem fluttar voru þangað í ein­angrun – eða öllu heldur skipað þangað í útlegð – allt frá síð­ari hluta nítj­ándu aldar. Allt var þetta gert á grund­velli sér­stakra laga sem áttu að hefta útbreiðslu holds­veiki á Hawaii. Og íbú­arnir sem fyrir voru á skag­anum og höfðu búið þar kyn­slóð fram af kyn­slóð, voru fluttir annað til að rýma fyrir sjúk­lingum holds­veiki-nýlend­unnar eins og hún var kölluð.

Engir vegir liggja að skag­anum. Þangað þarf að fljúga eða sigla. Þar er eng­inn lög­reglu­maður, ekk­ert sjúkra­hús. Ef ein­hver þarf á lækn­is­þjón­ustu að halda þarf að fljúga með hann til ann­arrar eyju.

[adspot]

Íbúarnir eru aldr­aðir, sumir á tíræð­is­aldri. Og því í hópi þeirra sem geta veikst hvað alvar­leg­ast af COVID-19. Því hefur verið gripið til þess ráðs að banna komur ferða­manna til Kalaupapa-þjóð­garðs­ins. Líkt og ann­ars staðar í heim­inum hafa ferða­lög til Hawaii nán­ast lagst af en þó koma þangað nokkrir tugir ferða­manna í viku hverri og ein­hverjir þeirra höfðu hug á því að heim­sækja Kalaupapa.

Holds­veiki er smit­sjúk­dómur sem orsakast af bakt­eríu sem leggst sér­stak­lega á kald­ari svæði lík­am­ans svo sem fingur, tær, eyru og nef. Talið er að holds­veiki smit­ist við snert­ingu og með dropa- og úða­smiti. Sjúk­dóm­ur­inn leggst á taugar í útlimum og getur valdið til­finn­inga­leysi, krepptum vöðvum og löm­unum. Nú er til auð­veld lækn­ing við holds­veiki en skemmdir á taugum og öðrum vefjum eru þó var­an­legar. Tekist hefur að útrýma holds­veiki víð­ast hvar í heim­inum en hún er þó enn land­læg á vissum svæðum, m.a. á Indlandi.

Frum­byggjar Hawaii voru ein­angr­aðir í hund­ruð ára og þegar fólk af evr­ópskum upp­runa hóf að venja komur sínar þangað bar það með sér smit­sjúk­dóma sem lögð­ust þungt á eyja­skeggja. Talið er að holds­veiki hafi komið þangað um árið 1830. Á árunum 1865-1969, eða í tæpa öld, voru um 8.000 Hawaii-búar sem smit­ast höfðu af sjúk­dómnum fluttir nauð­ugir til Kalaupapa. Talið er að þegar mest lét hafi um 1.200 karlar, konur og börn verið þar sam­tímis. Lang­flestir þeirra voru frum­byggjar og margir þeirra voru teknir frá fjöl­skyldum sínum ungir að árum. Yngsti sjúk­ling­ur­inn sem þangað var fluttur var fjög­urra ára.

Fólkið var lengi vel nokkuð eitt á báti og varð að bjarga sér. Það voru helst trú­boðar og frum­byggjar sem fyrir voru á eyj­unni sem réttu fram hjálp­ar­hönd.

Sífellt fleiri voru sendir til eyj­unnar og lífs­bar­áttan harðn­aði sam­hliða. Og þó að lækn­ing við holds­veiki hafi fund­ist og borist til Hawaii árið 1949 var það ekki fyrr en tveimur ára­tugum síðar sem ein­angr­un­ar­lög­unum hörðu var aflétt. Þá mátti fólkið sem hafði verið flutt á Molokai-eyju loks snúa aftur til síns heima.

Óttuðust útilokun

En margir ákváðu að vera um kyrrt. Það voru meðal ann­ars þeir sem höfðu dvalið þar í ára­tugi, þekktu ekk­ert annað og vildu gera eyj­una að sínu heim­ili til fram­tíðar. Aðrir höfðu misst allt sam­band við fjöl­skyldur sínar og höfðu að engu að hverfa ann­ars staðar. Það var líka hræðslan við úti­lokun og áreiti sem varð til þess að margir töldu það skásta kost­inn að dvelja áfram á „nýlend­unni“.

Næstu ár og ára­tugi fækk­aði fólk­inu á skag­anum ein­angr­aða smám saman og þeir sem eftir voru vildu halda sögu fólks­ins sem þangað hafði verið flutt til haga. Ákveðið var að leita til þjóð­garða­stofn­unar Banda­ríkj­anna og árið 1980 var Kalaupapa-skag­inn gerður að þjóð­garði vegna sögu sinnar.

Þjóð­garðs­verð­irnir í garð­inum hafa ann­ars konar hlut­verk en flestir kollegar þeirra ann­ars staðar í heim­inum. Þeir safna m.a. sögum frá núver­andi og fyrr­ver­andi íbúum. Þá ber þeim einnig að vernda hina fáu íbúa sem eftir eru og veita þeim þá þjón­ustu sem þeir þurfa.

Enginn mátti snerta þá

Á meðan lögin voru í gildi mátti eng­inn nálg­ast þá eða snerta. Á skag­anum var sér­stakt hús sem notað var til að sótt­hreinsa allt sem fór til og frá sjúk­ling­unum. Og eftir að fólkið hafði allt lækn­ast og lögin voru afnumin varð það áfram fyrir miklum for­dómum og mis­munun. Þar sem fólkið bar þess merki að hafa veikst varð það auð­veld­lega fyrir aðkasti.

Áratuga langa ein­angrun er erfitt að rjúfa. Að hafa orðið af snert­ingu í langan tíma hafði miklar afleið­ingar á líðan fólks­ins. Faðmlög og handa­bönd hafa verið hluti af lækn­ing­unni síð­ustu ár. En núna, á tímum COVID-19, hefur orðið að láta af allri snert­ingu á ný. Þetta hefur vakið erf­iðar minn­ingar hjá íbú­unum sem hafa deilt sögum af ein­semd og mis­munun sem þeir urðu fyrir meira og minna allt sitt líf.

Á vef­síðu þjóð­garðs­ins má lesa reynslu­sögur margra þeirra sem fluttir voru á eyj­una. Einn þeirra greinir svo frá dvöl­inni þar sem lauk árið 1977:

„Þeir náðu mér í skól­anum. Þetta var á Stóru-Eyju. Ég var tólf ára. Ég grét og bað um móður mína og fjöl­skyldu. En heil­brigð­is­yf­ir­völd voru ekk­ert að tvínóna við hlut­ina á þessum tíma. Þau sendu mig til Kalaupapa. Þangað sendu þau okkur flest. Flestir komu þangað til að deyja.“

Kona sem bjó á eyj­unni til loka átt­unda ára­tug­ar­ins lýsir sinni reynslu með þessum hætti:

„Ég var á Kalaupapa í þrjá­tíu ár. Ég mátti loks fara árið 1966. Móðir mín var enn á lífi svo ég skrif­aði henni og sagði að ég væri loks­ins læknuð og að ég gæti komið heim. Það leið langur tími þar til svar­bréf hennar kom. Hún skrif­aði: Ekki koma heim. Vertu á Kalaupapa.

Ég held að mamma hafi skamm­ast sín fyrir mig.“

Síðustu ár hafa ætt­ingjar þeirra sem fluttir voru til Kalaupapa komið þangað til að leita upp­lýs­inga um ást­vini sína. Nokkrir graf­reitir eru á skag­anum. Um þús­und grafir eru merktar en stein­arnir eru flestir orðnir mjög veðraðir. Til að kom­ast til Kalaupapa þarf að fá sér­stakt leyfi. Þar er ekki stunduð fjölda­ferða­mennska. Þegar síð­asti íbú­inn fellur frá stendur mögu­lega til að hleypa þangað fleiri ferða­mönnum sem vilja fræð­ast um hina átak­an­legu sögu fólks­ins sem neytt var til að flytja þangað og svo þeirra sem gátu ekki hugsað sér að fara þaðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár