Barnabætur og sérstakur barnabótaauki skilaði 15 milljörðum til barnafjölskyldna

Íslenska barna­bóta­kerfið hefur verið harð­lega gagn­rýnt und­an­farin ár fyrir að vera fyrst og fremst nokk­urs konar fátækra­hjálp við tekju­lágar fjöl­skyldur. Tekju­tengdu bæt­urnar hækk­uðu lít­il­lega í fyrra og sér­stakur barna­bóta­auki var greiddur út á föstu­dag.

Rík­is­sjóður greiddi út 12,1 millj­arð króna í tekju­tengdar barna­bætur vegna árs­ins 2019. Það er hækkun um 3,5 pró­sent milli ára. Alls fá tæp­lega 48 þús­und manns barna­bætur greiddar út nú vegna síð­asta árs, sem er 2,2 pró­senta fjölgun milli ára.

Þetta kemur fram í umfjöllun á vef fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins um álagn­ingu opin­berra gjalda á ein­stak­linga í fyrra.

Þessi hækkun kemur til vegna þess að bóta­fjár­hæðir voru hækk­aðar um fimm pró­sent milli ára og tekju­skerð­ing­ar­mörk um rúm­lega 24 pró­sent.

Til við­bótar við hefð­bundnu tekju­tengdu barna­bæt­urnar ákváðu stjórn­völd, í tengslum við neyð­ar­að­gerðir sínar vegna efna­hags­legra afleið­inga COVID-19 far­ald­urs­ins, að greiða út þrjá millj­arða króna til alls 78 þús­und ein­stak­linga í formi sér­staks barna­bóta­auka. Hann var greiddur út á föstu­dag.

Barna­bóta­auk­inn er útfærður þannig að þeir fram­fær­endur sem fá greiddar tekju­tengdar barna­bætur sam­kvæmt nið­ur­stöðu álagn­ingar fá til við­bótar greiddar 42 þús­und krónur á hvert barn og þeir fram­fær­endur sem ekki fá greiddar neinar tekju­tengdar barna­bætur vegna skerð­ing­ar­á­kvæða fá greiddan sér­stakan barna­bóta­auka að fjár­hæð 30 þús­und krónur á hvert barn. Það þýðir að ein­stak­lingar sem eiga börn, en hafa að öllu jöfnu verið með of há laun til að fá greiddar barna­bætur fengu 30 þús­und hver í gær óháð því hverjar heild­ar­tekjur þeirra eru.

Fátæktarhjálp fyrir tekjulágar fjölskyldur

Barna­bóta­kerfið á Íslandi hefur verið harð­lega gagn­rýnt af verka­lýðs­hreyf­ing­unni und­an­farin ár. Í skýrslu um íslenska barna­bóta­kerfið sem dr. Kol­beinn Stef­áns­son vann fyrir BSRB og kynnt var á fundi banda­lags­ins í des­em­ber 2019 var nið­ur­staðan að tíma­bært væri að end­ur­skoða íslenska barna­bóta­kerf­ið.

Í skýrslu Kol­beins er barna­bóta­kerfið hér á landi borið saman við kerfi hinna Norð­ur­land­anna en sam­kvæmt skýrsl­unni íslenska barna­bóta­kerfið mjög lág­tekju­miðað sem er ólíkt barna­bóta­kerfum hinna Norð­ur­land­anna. Ísland er ekki eitt um að ver­a ­með tekju­tengdar barna­bætur því bæt­urnar eru einnig tekju­tengdar í Danmörku.

Þar í landi liggja þó skerð­ing­armörkin mun hærra og skerð­ing­ar­hlutföllin lægri en hér á landi og fyrir vikið svipar danska barnabótakerf­inu nokkuð til kerf­anna í Finn­landi, Nor­egi og Svíþjóð sem eru ekki tekju­tengd.

Því var það nið­ur­staða skýrsl­unnar að barna­bætur á Íslandi væru fyrst og fremst nokk­urs konar fátækt­ar­hjálp fyrir mjög tekjulágar barna­fjölskyldur. Skerð­ing­ar­mörk bót­anna væru lág í nor­rænum sam­an­burði og því fengi tölu­verður fjöldi lágtekju­fjölskyldna skertar tekjur, sem bitn­aði sér­stak­lega á ein­stæðum for­eldr­ar. Auk þess fengju milli­tekju­fjöl­skyldur hér á landi lít­inn sem engan stuðn­ing í gegnum kerfið hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár